16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1277 í B-deild Alþingistíðinda. (1704)
43. mál, Fjárfestingarfélag Íslands
Björn Pálsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja tímann mikið. Ég talaði hér nokkur orð við 1. umr. og skal reyna að endurtaka sem minnst, en get þó ekki látið hjá líða að segja nokkur orð um þetta.
N. hefur nú skilað nál. og er klofin um málið. Hv. 4. þm. Austf. leggst gegn því, að frv. verði samþ. og gerir stutta, en sérlega góða grein fyrir skoðunum sínum.
Ég álít þetta frv. dálítið furðulegt. Hins vegar er ekkert óeðlilegt, að þetta komist í gegnum þingið, því að það er nú oft svo með vitleysurnar, að þeim gengur vel að komast áfram svona í byrjun, en svo þegar reynslan kemur, þá verða vandkvæðin oft löguð.
Í fyrsta lagi halda þeir því fram, sem mæla með þessu frv., að þetta séu hlutir, sem búið sé að framkvæma hjá nágrannaþjóðum okkar og séu til fyrirmyndar og við eigum að taka upp. Í sannleika sagt liggur ekkert fyrir um þetta, og mér hefur skilizt á þessum mönnum, sem mest eru að mæla með þessu frv., að þetta sé aðallega amerísk hugmynd og eitthvað iðkað svipað þessu í Ameríku, en að nágrannaþjóðir okkar séu að hugsa um að taka eitthvað líkt upp. Annars erum við lögfróðir hérna, en þó að við séum vel að okkur í íslenzkum fræðum, er ég nú ekki alveg viss um, að þessir mætu menn, sem eru að mæla með þessu, séu svo þrautkunnugir lögum nágrannaþjóða okkar og allra sízt amerískum lögum, þar sem eru svo mörg ríki og sérstæð lög fyrir hvert þeirra í málefnum eins og þessum.
Í öðru lagi er það engin fyrirmynd, þó að eitthvað hliðstætt þessu væri til í Ameríku, því að það er víst ekki til svo vitlaust, aumt og ábyrgðarlaust brask, að það fyrirfinnist ekki í því landi. Þar að auki erum við ekki hliðstætt þjóðfélag við það ameríska. Við erum aðeins 200 þús. með lítið fjármagn, en fyrir 200 millj. með mikið fjármagn eru möguleikarnir meiri til að braska. Ég legg því ákaflega lítið upp úr þeim áróðri, að það sé gert eitthvað hliðstætt þessu í Ameríku og líklegt sé, að nágrannaþjóðir okkar taki sér þetta ameríska kerfi til fyrirmyndar og fari að búa til eitthvað svipað.
Ég tel, að með þessu frv. sé komið á hlutdrægni, og ég er á móti allri hlutdrægni. Þetta félag á að vera skattfrjálst svipað og Landsbankinn þar til 1977. Það er nú svo með ýmis fríðindi, að þegar búið er að koma þeim á, er erfiðara að taka þau af aftur. Ég sé ekki nokkra ástæðu til að fara að stofna braskhlutafélag, sem hefur sérstöðu í skattamálum. Ef við þurfum að breyta okkar hlutafélagalögum er sjálfsagt að láta eitt yfir alla ganga. Einnig er ég á móti því, að einkabönkum sé heimilað að kaupa hlutabréf eða eiga í félaginu, af þeirri einföldu ástæðu, að þá kemur þar einnig hlutdrægni fram. Þeim er ætlað að kaupa hlutabréf í þessu félagi; og þá eru þeir orðnir eigendur í því. Þeim er því skylt að lána fé í það. Þetta er gagnstætt þeim ákvæðum, sem nú gilda. Ég tel, að þetta muni veikja traust manna á einkabönkum. Það er ekki ríkisábyrgð fyrir innistæðu í þeim. Og í öðru lagi tel ég það algerlega óeðlilegt, að bankar séu að eiga í fyrirtækjum, því að það er allt önnur aðstaða, sem þeir eru í gagnvart þeim fyrirtækjum en gagnvart öðrum fyrirtækjum, sem þeir lána fé. Banki er lánastofnun. Og það var þannig skilgreint hjá Seðlabanka Íslands, þegar skrifuð var ritgerð um það, að hann sé til að lána peninga, en ekki til þess að eiga í rekstri. Það er annað að vera atvinnurekandi en að vera bankastjóri. Það á ekki að blanda því saman, vegna þess að um leið og banki er farinn að eiga í fyrirtæki, þá er hann orðinn háður fyrirtækinu og bankastjórinn hefur ekki aðstöðu til að taka óhlutdræga afstöðu til þeirra, sem hann lánar. Ég tel stórhættulegt að fara inn á þá braut, fyrir utan að þarna eru með einu pennastriki þverbrotin þau lagaákvæði, sem gilda um þessa banka. Hvar á að stöðva? Komast ekki ríkisbankarnir inn á það sama? Það var hér frv. í vetur um það, að Framkvæmdabankanum væri heimilað þetta, og hann er þegar byrjaður á þessu. Þetta tel ég óeðlilegt. Það getur verið eðlilegt, að lánastofnanir neyðist í bili til þess að eiga í fyrirtæki, en það á ekki að vera stefnumál, og viðkomandi lánastofnun á að losa sig við þær eignir við fyrstu hentugleika. Við eigum ekki að blanda saman útlánastarfsemi og atvinnurekstri. Það eiga að vera tveir aðilar, sem geta komið óháðir fram, hvor gagnvart öðrum.
Nm. leggja til vissar brtt., m. a. leggja þeir til, að 3. gr. sé breytt, og hún skuli hljóða þannig: „Forgöngu að stofnun félagsins hafa Verzlunarráð Íslands, Félag ísl. iðnrekenda, Samband ísl. samvinnufélaga og þeir aðilar, sem samtök þessi kveðja til,“ — og bæta svo við: „Öllum skal gefinn kostur á að gerast hluthafar með almennu hlutafjárútboði.“ Það er hálfambögulega að þessu farið. Fyrst er sagt, að það séu þeir aðilar, sem samtök þessi kveðja til, og svo er því bætt við, að allir megi gerast aðilar að því, sem vilja. Hvað á þá þetta að þýða? Er þá ekki bezt að sleppa þessari setningu: „og þeir aðilar, sem samtök þessi kveðja til,“ ef öllum á að vera heimil þátttaka í því? Þarna virðist því vera ástæða til að breyta orðalagi, hvað sem efnisákvæðunum líður.
Annars er ég ekkert hrifinn af því, að SÍS sé að blanda sér í þetta mál eða því sé gefin heimild til þess. Þetta á að vera Verzlunarráð Íslands og Félag ísl. iðnrekenda. Geta ekki alveg eins önnur samtök komið og óskað eftir að fá að stofna félög með hliðstæða aðstöðu, að þau séu skattfrjáls og fái aðstöðu til að fá fé úr einhverri lánastofnun, og hvernig á að neita þeim um það? Geta ekki bændasamtökin beðið um það? Geta ekki sjómannasamtökin komið með ósk um eitthvað svipað, að þau fái að mynda hlutafélag, sem sé skattfrjálst, og t. d. Fiskveiðasjóður og Fiskimálasjóður mættu kaupa hlut í einhverju félagi? Ég sé bara ekkert því til fyrirstöðu. Og jafnvel eru mörg félög nauðsynlegri en þetta félag. Hvar ætlið þið að draga línuna á milli? Hvernig á Alþ. að neita þessum aðilum, ef þeir fara að óska eftir því að fá að stofna hliðstætt félag með hliðstæðri löggjöf? Ég álít, að þegnar landsins eigi að búa við hliðstæð kjör, — og hvernig í ósköpunum ætlar Alþ. að neita slíkri fyrirgreiðslu, ef slík samtök fara fram á þetta? Ég sé ekki annað en að það væri betra fyrir Samband ísl. samvinnufélaga að vera sér og óska svo eftir því, að við flytjum frv. á næsta þingi um, að það fái að stofna hliðstætt hlutafélag og þetta. Hvernig ætlið þið að neita SÍS um hliðstæða fyrirgreiðslu og samvinnufélögunum í heild? Ég held, að það yrði erfitt. Svo ætti það að vera skattfrjálst; jú, það gæti sett fram einhverja sex punkta, einhver afrek, sem það ætlaði að vinna.
Svo vil ég benda á það, að ég skil eiginlega ekki, hvernig á að reka þetta ágæta fyrirtæki. Það eru þarna í 6 liðum verkefni, sem það á að hafa heimild til þess að vinna að, og þetta eru algerlega óskyld verkefni, sem það ætlar að taka að sér.
Í fyrsta lagi ætlar það að vera frumkvöðull að stofnun, endurskipulagningu og sameiningu atvinnufyrirtækja. Til þess þarf ekki litla þekkingu á atvinnumálum, þ. e. að skipuleggja atvinnufyrirtæki landsins. Og það þarf meira en í einni atvinnugrein, því samkvæmt þessu frv. á það að grípa yfir alla atvinnuvegi landsmanna. Hver á að borga öllum þeim hálærðu sérfræðingum, sem þarf til þess að hafa vit á öllu þessu? Og hvaða trygging er fyrir því, að þetta félag hafi nokkra möguleika á því að hafa þessa menn í þjónustu sinni? Eiga fyrirtækin, sem þeir ætla að skipuleggja, að borga, og á að troða þessari fyrirgreiðslu upp á þau, án þess að þau kæri sig nokkuð um það? Það getur vel komið til greina, að þau þurfi að gera miklar breytingar á atvinnurekstri sínum með breyttum tímum og breyttum aðstæðum. Það verður að gera meira og minna með frjálsum samtökum. Við þurfum ekkert braskhlutafélag til þess að geta gert slíka hluti. Þetta er eitt vandasamasta verk í okkar þjóðfélagi. Reynsla og þekking þeirra manna, sem að þessum félögum standa, verður að skera úr um, hvað hagkvæmt er í þessu efni, og hvað ekki.
Í öðru lagi að kaupa, eiga og selja hlutabréf í atvinnufyrirtækjum og skuldabréf þeirra. Þarna er nokkurs konar kauphallarbrask á ferðinni. Ég hef ekkert við það að athuga, þó að einhver verðbréfaviðskipti kæmust á hér á landi. En ég sé ekki, að það þurfi að standa í sambandi við það að endurskipuleggja atvinnuvegina að braska með hlutabréf. Og sannleikurinn er sá, að við höfum ekki nein ósköp af hlutabréfum, sem eru útgengileg, þannig að ég held, að atvinna við að braska með þau yrði afar takmörkuð. Við höfum sannarlega ekki mikið af hlutabréfum, sem eru það eftirsótt, að menn sláist um þau eða líklegt sé, að þau gefi varanlegar tekjur.
Að greiða fyrir útgáfu hlutabréfa og skuldabréfa atvinnufyrirtækja með beinni og óbeinni þátttöku í útboðum og annarri dreifingu þeirra. Ég held satt að segja, að það sé það mikið af hlutafélögum hér á landi, að menn kunni orðið nokkurn veginn til þess að sjá um útgáfu hlutabréfa og skuldabréfa fyrir atvinnufyrirtæki.
Hið fjórða, að útvega, veita og ábyrgjast lán til atvinnufyrirtækja, sem félagið tekur þátt í að beita sér fyrir. Þarna er nú alveg sérstakur liður, sem er sá sami og Framkvæmdabankinn á að annast um. Það var verið að tala um, að þetta mundi greiða fyrir því, að við fengjum lán úr dótturfyrirtæki Alþjóðabankans, sem er raunar ekkert nema vitleysisskraf. Svo eru lögð fram ýmiss konar meðmæli frá hinum og þessum, en það er algerlega kastað til þess arna höndum, t. d. frá Fiskveiðasjóði Íslands, en þar er það Davíð einn, sem mælir með því, hinir eru ekki spurðir. Ég hef heyrt einn af stjórnarmönnum Fiskveiðasjóðs tala á móti þessu. En Davíð skrifaði undir. Þetta hefur verið skipulagt með áróðri að fá meðmæli með þessu frv., af því að Eyjólfur Konráð er aðalflm. þessa frv., en hann er dugnaðarmaður og áróðursmaður. Menn hafa kastað til þess arna höndum, án þess að gera sér nokkra grein fyrir því, hvað þetta félag ætti að gera eða hvaða starfsmöguleika það hefði.
Viðvíkjandi þessum lánum, þá er hægara að taka lán en að borga þau. Við höfum verið duglegir að útvega okkur lán, og við höfum verið að betla út vaxtalaus lán. Sannleikurinn er sá, að við megum gæta þess, hvar við erum staddir á þessari leið. Við töpum sjálfsvirðingu okkar á því að vera að biðja um lán, án þess að það sé eftir eðlilegum lánaleiðum, þ. e. hæfilegir vextir og eðlileg endurgreiðsla. Er ekki skynsamlegasta leiðin að reyna að skapa fjármagnið með eigin hagsýni og sparsemi, en vera ekki alltaf að fá lán? Það er siður aumingja að geta aldrei gert neitt nema með lánum. Það köllum við búskussa á Íslandi. Hina köllum við búmenn, sem fara skynsamlega að hlutunum og reyna að skapa sér eigið fjármagn í fyrstu og ávaxta það svo á skynsamlegan hátt.
Í sjötta lagi, annast tæknilega og viðskiptalega ráðgjafarþjónustu við stofnun og rekstur atvinnufyrirtækja. Ég held, að það séu nokkrir tugir af vísindamönnum starfandi í þessum rannsóknarráðum okkar og öllu því kerfi, og væri sennilega rétt að endurskipuleggja það á þann hátt að launa þeim þannig, að þeir væru sæmilega starfhæfir. En það er nú þetta virðulega hlutafélag, sem braskar með hlutafé, útvegar lán og er frumkvöðull að endurskipulagningu á atvinnulífi okkar, sem ætlar að taka þetta að sér líka. — Tæknilega og viðskiptalega ráðgjafarþjónustu við stofnun og rekstur atvinnufyrirtækja í þessu landi! (Gripið fram í.) Mér lízt ekki vel á þetta. Satt að segja virðist þarna vera blandað saman alveg óskyldum hlutum, án þess að bent sé á neinar líkur til, að félagið hafi möguleika til að inna þessa þjónustu af hendi, sem það ætlar að taka að sér.
Ég sé ekki annað en þetta sé meðal allra vitlausustu frv., sem hafa verið lögð hér fram og ábyrgðarlausustu. Svo á að vaða í einkabankana. Einn nm. leggur til, að ríkisstj. verði að samþ. það. En hvað er það, sem ríkisstj. samþ. ekki, ef þjónar hennar biðja hana vel? Þarna á að beita hlutdrægni, sennilega eitthvað ámóta og gert var í Fiskveiðasjóði, þegar sumum var lánað með gengisáhættu og öðrum ekki. Ég sé ekki annað en þarna sé ruglað saman óskyldum verkefnum, og ég álít, að við höfum nægilegt brask og hlutdrægni í okkar þjóðfélagi, þó að þetta bætist ekki við. Þess vegna ætla ég að greiða atkv. á móti þessu, og þó að grg. 4. þm. Austf. væri ekki löng, var hún skýr, og ég álít, að það, sem þar er sagt, sé algerlega rétt.
Ef þið viljið drífa þetta frv. í gegnum þingið, megið þið eiga heiðurinn af því, ég ætla að hafa sóma af því að vera á móti.