16.03.1970
Neðri deild: 60. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í B-deild Alþingistíðinda. (1707)

43. mál, Fjárfestingarfélag Íslands

Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Það var aðallega ein lítil fsp., sem mig langaði til að koma á framfæri í framhaldi af þeim umr., sem hafa átt sér stað. Það er ljóst, að menn ræða um þetta fyrirhugaða Fjárfestingarfélag jöfnum höndum sem venjulegt hlutafélag, sem annast margvíslegan rekstur, og sem bankastofnun, að vísu svolítið afbrigðilega bankastofnun, en þó stofnun, sem á að hafa með höndum mikið af þeim verkefnum, sem venjulegir bankar annast.

Hv. 1. þm. Norðurl. e. ræddi hér um þetta fyrirhugaða félag þannig, að hann taldi, að hér væri verið að efna til eins nýs bankans enn í landinu, og benti á það, að þessu félagi væri ætlað að annast margvísleg störf, sem bankar nú annast. Ég tók líka eftir því, að hv. flm. frv., sá sem hér talaði næst á undan mér, hv. 5. þm. Vesturl., ræddi einnig um það, að félagið mundi e. t. v. hafa möguleika á því að komast yfir eitthvað af fjármagni umfram það, sem venjulegir bankar og aðrar peningastofnanir í landinu komast yfir, og gæti þá þannig notað þetta fjármagn í því skyni, sem um er fjallað í þessu frv.

Þá vaknar þessi spurning: Kemur þetta sérstaka félag, sem er tvenns konar náttúru, að vera venjulegt hlutafélag og í rauninni líka banki, — kemur það til með að heyra undir eftirlit Seðlabanka Íslands, eins og aðrar peningastofnanir í landinu, og verða að lúta þeim reglum, sem hann setur hverju sinni um peningaleg viðskipti? Kemur þetta sérstaka félag t. d. til með að heyra undir bankaeftirlitið í landinu eða stendur þetta félag fyrir utan slíkt eftirlit og yfirstjórn Seðlabankans og hefur þá algera sérstöðu á peningalegu sviði að þessu leyti til? Þetta er engan veginn ljóst, því að satt að segja hefur mér, eins og ég sagði í upphafi míns máls, fundizt þetta frv. vera þannig, að hér væri í rauninni hvorki um fugl né fisk að ræða. Þetta er ákaflega sérkennilegt fyrirbæri, sem hér er gert ráð fyrir að setja á fót.

Ég get ekki séð annað, ef þetta félag á fyrst og fremst að flokkast með öðrum hlutafélögum og lúta þeim lögum og reglum, sem slík félög verða að lúta, en að það fái býsna sérkennilega aðstöðu. Það fær aðstöðu til þess að vera skattfrjálst eins og bankar, en hins vegar er því ætlað að annast ýmiss konar verkefni, sem ýmsir aðilar reka nú þegar í landinu og eru skattskyldir í sambandi við þann rekstur. T. d. í 6. lið 1. gr. frv. er tekið fram, að þetta félag eigi að annast tæknilega og viðskiptalega ráðgjafarþjónustu við stofnun og rekstur atvinnufyrirtækja. Það vita allir, að til eru fyrirtæki hér, sem annast svona starfsemi nú í dag og verða vitanlega að greiða skatt af tekjum sínum af slíkri starfsemi. Mér sýnist líka, að það sé alveg augljóst, að þetta félag fær aðstöðu til þess að taka að meira eða minna leyti þátt í beinum atvinnurekstri. Það má kaupa hlutabréf í hlutafélögum, og það eru engin sérstök mörk sett um það. Ef stjórnendum þessa hlutafélags býður svo við að horfa, geta þeir ákveðið að eignast meiri hlutann af hlutabréfum í t. d. einhvers konar slippfyrirtæki, einhvers konar ölgerð, einhvers konar hóteli eða einhverju slíku, sem menn finna upp á hverju sinni. En félagið nýtur þessara sérstöku hlunninda, það er skattfrjálst. Mér sýnist sem sagt, að þarna sé verið að blanda saman venjulegri bankastarfsemi, lánastarfsemi og þátttöku í atvinnurekstri á þann hátt, sem verður að teljast mjög vafasamt að gera, og mér finnst einnig, að það hafi ekki verið upplýst nándar nærri nægilega vel í þessum umr., hvernig rekstur þessa sérstaka félags er í rauninni hugsaður.

Ég vil benda á það, að það er afar einfalt fyrir forráðamenn þessa félags, sem að sjálfsögðu verða kosnir á hluthafaþingi, að mismuna mjög mikið einstökum aðilum í landinu. Einn aðili í einhverri tiltekinni starfsgrein getur notið þeirrar náðar, að félagið rétti honum hjálparhönd, t. d. með því að kaupa hlutabréf, þó að aðrir aðilar í greininni verði ekki aðnjótandi slíkrar aðstoðar. Við þessu væri að mínum dómi ekkert að segja, ef hér væri byggt upp hlutafélag á venjulegum grundvelli, þannig að það hefði safnað fjármagni hjá hluthöfum sínum. En hér er einnig verið að gera ráð fyrir því, að þetta hlutafélag geti starfað með fé frá opinberum aðilum, þ. e. frá opinberum lánasjóðum. Þá fer það að verða mjög hæpið, að svona félag geti rekið starfsemi, sem í eðli sínu hlýtur að mismuna að meira eða minna leyti einstökum aðilum.

Ég skal nú ekki ræða þetta mál frekar. Ég var búinn að gera það hér áður. En ég spyr fyrst og fremst hæstv. bankamálaráðh., sem hér er staddur: Telur hann, að þetta félag, sem gert er ráð fyrir að stofna samkv. þessu frv., mundi flokkast undir hið almenna eftirlit Seðlabankans með peningastofnunum í landinu? Mundi starfsemi þess í rauninni eiga að lúta eftirliti bankaeftirlitsins? Ég vildi gjarnan fá þetta upplýst.