26.01.1970
Neðri deild: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (175)

2. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins

Frsm. (Guðlaugur Gíslason):

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er sent þessari hv. d. frá Ed., þar sem það hlaut einróma afgreiðslu. Frv. er til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 26. júní 1969. Efni þess, samkv. 1. gr., er að lengja þau lán, sem hvíla á tilteknum framkvæmdum ríkisins í Breiðholti, en samkv. samningum þar um hafði verið gert ráð fyrir, að hin tilgreindu lán yrðu greidd upp á árunum 1969 og 1970. Með brbl. er gert ráð fyrir, að þau greiðist með jöfnum afborgunum á næstu 6 árum, eða á árunum 1970—1975, og að vextir af þessum lánum lækki í 5%. Þetta er, eins og fram kom í umr. í hv. Ed., samkomulag við þá aðila, sem þarna eiga hlut að máli og er talið, að með þessu sé þeim gert kleift að standa í skilum með þær skuldbindingar, sem þeir tóku á sig, þegar þeir keyptu íbúðir í hinu tiltekna hverfi, Breiðholti. Heilbr.-- og félmn. þessarar d. fékk frv. til athugunar og mælir hún með, að það verði samþ. Einn nm., Jón Kjartansson, hefur skrifað undir frv. með fyrirvara. Eftir að n. hafði afgreitt málið frá sér, kom fram hér í d. brtt. við það, en þó má segja, að efni þeirrar till. sé mun almennara og snerti ekki nema að takmörkuðu leyti efni þeirra brbl., sem frv. þetta er staðfesting á. N. sem slík hefur ekki haft aðstöðu og ekki tekið afstöðu til þeirrar till., sem hér liggur fyrir, en mælir hins vegar með, eins og ég tók fram, að frv. verði samþ. óbreytt.