24.04.1970
Neðri deild: 81. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1316 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)
129. mál, almannatryggingar
Frsm. (Friðjón Þórðarson):
Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur fjallað um frv. þetta til l. um breyt. á l. nr. 40 frá 30. apríl 1963, um almannatryggingar. Frv. er þess efnis, að síðasti málsl. 56. gr. almannatryggingalaganna orðist svo:
„Ef hlutaðeigandi er algjörlega tekjulaus, er Tryggingastofnuninni heimilt að greiða honum sjálfum allt að 25% lágmarksbóta.“
Hingað til hefur gilt sú regla, að þegar öryrki dvelur langdvölum á sjúkrahúsi eða dvalarheimili, þá hefur Tryggingastofnun ríkisins heimild til að greiða honum sjálfum allt að 10% lágmarksbóta. Hefur sú upphæð numið um 1080 kr. á ársfjórðungi, en með þessu frv. er gert ráð fyrir, að greiðslan hækki í um það bil 900 kr. á mánuði. Heilbr.- og félmn. hefur orðið sammála um að styðja samþykkt þessa frv., en einstakir nm. hafa þó áskilið sér rétt til þess að fylgja brtt., sem fram kynnu að verða bornar.