13.01.1970
Efri deild: 33. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (181)

138. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu

Sjútvrh. (Eggert G. Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þetta þarf ekki langa framsögu. Það skýrir sig sjálft, enda ekki stórt að vöxtum. Sá kostnaðarhluti útgerðar, sem dragast átti frá óskiptu samkvæmt l., sem afgr. voru héðan á fyrri hl. s.l. árs, var ákveðinn þá 17%, en samkvæmt eindreginni ósk beggja deiluaðila nú um áramótin, þ.e.a.s. útgerðarmanna og sjómanna, skal þessi kostnaður nú vera 11%, eða lækka um 6%. Þetta er meginefni þessa frv. og er flutt til staðfestingar á þeirri yfirlýsingu, sem ríkisstj. gaf við þá samningagerð, en mér var tjáð í gær af einum helzta forsvarsmanni sjómanna, að mikill meiri hluti, nánast meginhluti þeirra aðila, sem í deilu stóðu um þessi áramót, hefði nú þegar samþ. þá samninga, sem gerðu ráð fyrir fullnægingu á þessu ákvæði, eða þessari yfirlýsingu, sem ríkisstj. gaf. Að öðru leyti tel ég ekki þörf að skýra málið nánar, nema sérstakt tilefni gefist til.

Ég legg til, herra forseti, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. sjútvn.