26.01.1970
Efri deild: 39. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í B-deild Alþingistíðinda. (183)

138. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu

Frsm. meiri hl. (Jón Árnason):

Herra forseti. Eins og fram kemur í grg. fyrir máli þessu, tengdust kjarasamningar sjómanna og útvegsmanna fiskverðsákvörðun að þessu sinni með þeim hætti, að sjómenn óskuðu endurskoðunar á kostnaðarhlutdeild fiskkaupenda, svo sem það var ákveðið með l. nr. 79 frá 31. des. 1968, um ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenzkrar krónu. Þegar það svo lá fyrir í Verðlagsráði sjávarútvegsins, hver hækkun fiskverðs gæti orðið með hliðsjón af þeirri hækkun, sem átt hafði sér stað á sjávarafurðum í markaðslöndunum, náðist svo sem kunnugt er samkomulag um það milli samningsaðila að óska eftir því, að breyt. yrði gerð á 1., sem hér er lögð til, en það er, að kostnaðarhlutdeildin, sem er tekin af óskiptum afla, lækkar úr 17% í 11 %.

Sjútvn. hefur rætt mál þetta á tveim fundum sínum og hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þess með þeirri breyt., sem fram kemur á þskj. 237. Er hér um bráðabirgðaákvæði að ræða, sem talið er nauðsynlegt að sett verði með tilliti til þeirra lágmarksákvæða, sem sett voru á árinu 1969 og hafa gildistíma fram á yfirstandandi ár. Eftir því sem n. er kunnugt um, mun þetta bráðabirgðaákvæði aðeins ná til endurskoðunar á lágmarksverði á rækjum, en samningar um rækju munu ná til júlíloka á yfirstandandi ári og ef ekki kæmi til nein endurskoðun á því verði, eftir að þessi l. koma til framkvæmda, mundi af því leiða, að rækjuverðið mundi lækka frá því, sem samið var um á s.l. ári eins og það er samkvæmt þeim samningum, sem ég hef vísað til. En það er ekki meiningin, heldur að endurskoðun fari fram og gerðar verði nauðsynlegar breytingar með hliðsjón af því, sem þetta nýja frv. tekur til um það ákvæði, það er hlutdeildarkostnaðinn í fiskverðinu. Enda þótt sjútvn. sé sammála um að mæla með samþ. þessa frv. með þeirri breyt., sem ég hef nú skýrt frá, undirrituðu tveir nm. nál. með fyrirvara, þeir hv. 1. þm. Norðurl. v. og hv. 1. þm. Vestf. En hv. 5. þm. Reykn. tjáði sig samþykkan frv. einnig með umræddum breytingum, en óskaði samt sem áður að skila séráliti um málið, svo sem hann hefur gert og sem sjá má á þskj. 238.

Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um þetta frv., en vil leyfa mér að leggja til, að það verði samþ. með þeirri breyt., sem n. leggur til, og frv. að lokinni þessari umr. verði vísað til 3. umr.