27.04.1970
Neðri deild: 85. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1890)
109. mál, atvinnuleysistryggingar
Frsm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Ég hef nú fátt nýtt um málið að segja. Ég hef þegar talað tvisvar og skal nú vera stuttorður. Ég held, að misskilningurinn, sem hér hefir verið á ferðinni, sé vegna þess, að tilvísunin til verkalýðsfélaga í kauptúnum vísar til þeirra sjálfra. Verkalýðsfélög skulu vera í kaupstað eða kauptúni, en réttindi laganna skulu ná til meðlima verkalýðsfélaga, hvar sem þeir eru búsettir.
Ég mundi vilja taka það til athugunar, til þess að taka af allan vafa, að flytja brtt. við 3. umr. um málið, ef það ekki tefðist nú, og segja: „allra meðlima verkalýðsfélaga í kauptúnum og kaupstöðum“. Þá væri þetta alveg óyggjandi, en þó held ég, að bara „meðlima verkalýðsfélaga“ nægi, því að það eru auðvitað engir þar undanskildir. Ef maðurinn uppi í Kjós er í verkalýðsfélagi og ef maðurinn út frá Hveragerðisfélaginu er meðlimur verkalýðsfélags, þá nær rétturinn til þeirra, þó þeir búi utan kauptúnsins.
Ef till. hv. 4. þm. Austf. er um að láta réttinn ná til allra sveitarfélaga, og það fer langt út fyrir þann ramma, sem lögunum er markaður nú. Hins vegar væri mér mikil eftirsjá í því, ef frv. næði ekki fram að ganga og yrði núna stöðvað, vegna þess að það þyrfti að fara til Ed. aftur, því að það hlýtur að vera óskemmtilegt verk fyrir stjórn atvinnuleysistrygginganna að úrskurða þá verkamenn frá réttindum, sem stunda trillubátaútgerð og njóta því aðeins réttinda nú, að það sé úrskurðað, að þeir séu að meiri hluta verkamenn í landi. Ég sé ekki að það, að þeir bregða sér í trilluna sína hluta af árinu, eigi að svipta þá rétti. En í þessu stendur atvinnuleysistryggingastjórnin núna og það er ekki sízt vegna þess atriðis, sem frv. þarf að ná fram að ganga.
Hins vegar kom mér það mjög á óvart, að Eðvarð Sigurðsson, hv. 2. landsk. þm., skuli mæla á þann veg, sem hann gerir hér, því hann er búinn að mæla með þessu orðalagi frv. á þremur stöðum. Í fyrsta lagi í miðstjórn Alþýðusambandsins, en þar mælti hann með jákvæðri umsögn um frv., af því að það leysti vanda Dagsbrúnarmanna utan Reykjavíkurborgar og þar með vanda verkamanna utan kauptúnanna um allt land. Hann hefur einnig mælt með frv. svona orðuðu í framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands. Og hann hefur í þriðja tagi mælt með frv. svona í stjórn atvinnuleysistrygginganna. Þess vegna kemur mér það ákaflega mikið á óvart, að hann skuli hér á síðustu stundu koma með allt annan skilning, mæla gegn frv. og segja, að það nái ekki þeim tilgangi, að allir Dagsbrúnarmenn falli undir þetta og þar með allir verkamenn utan kauptúnanna, ef félagið sjálft er á tryggingaskyldu svæði í kaupstað eða kauptúni.
En ég endurtek það, að frv. verður stofnað í hættu með þeirri víðtæku brtt., sem hv. 4. landsk. þm. flytur og áreiðanlega miðast við að láta þetta ná til allra sveitarfélaga, eins og hann sjálfur sagði. En ég mundi vilja taka það til athugunar að setja inn orðið „allra“ fyrir 3. umr., ef menn gætu þá talið, að það næði til allra meðlima verkalýðsfélaganna í kaupstöðum og kauptúnum, því félögin sjálf verða að vera á tryggingarskyldu svæði.
Ég vona, að ég hafi ekki brotið af mér með of löngum ræðuhöldum.