30.04.1970
Efri deild: 87. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1352 í B-deild Alþingistíðinda. (1901)
109. mál, atvinnuleysistryggingar
Frsm. (Björn Jónsson):
Herra forseti. Í hv. Nd. hefur verið gerð ein orðalagsbreyting á 1. gr. þessa frv. Hún er, að í stað orðsins „kauptúnum“ komi: sveitarfélögum.
Í hv. Nd. urðu nokkrar umr. um það, hvernig skilja bæri meiningu 1. gr. frv., og til þess að taka þar af allan vafa fluttu menn úr öllum flokkum brtt. um þessa umorðun. Þarna er ekki, eftir því sem málið er túlkað í grg. með frv. og hvernig ég sem flytjandi þess flutti það hér, um neinn meiningarmun að ræða, heldur eingöngu að hafa orðalagið svo skýrt, að ekki verði um villzt. Fjhn. þessarar hv. d. hefur rætt þessa breytingu og hún mælir einróma með því, að hún verði staðfest hér í þessari hv. deild.