29.01.1970
Neðri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 213 í B-deild Alþingistíðinda. (194)

138. mál, ráðstafanir í sjávarútvegi vegna breytingar gengis íslenskrar krónu

Frsm. minni hl. (Lúðvik Jósefsson):

Herra forseti. Með frv. þessu er gert ráð fyrir því að gera minni háttar breyt. á 1., sem sett voru í desembermánuði 1968 að lokinni síðustu gengislækkun. Sú löggjöf var mjög umdeild og hefur leitt til allmikilla deilna á milli sjómanna og útvegsmanna og stöðvana í sjávarútvegsframleiðslu. Þegar þau l. voru sett, var það afstaða mín og okkar Alþb.–manna, að við vorum andvígir þessari lagasetningu og töldum, að með henni væri farið inn á mjög óeðlilega braut, en gert var ráð fyrir því, að samningum þeim, er í gildi höfðu verið milli sjómanna og útvegsmanna, yrði breytt með l. og samkomulaginu milli útvegsmanna og sjómanna um hlutaskiptakjör var raskað í grundvallaratriðum sjómönnum í óhag.

Með þessu frv. er gert ráð fyrir því að slaka nokkuð til á því óréttlæti, sem þá var samþ. í þessum 1. og ég get því fyrir mitt leyti verið með því að samþykkja þetta frv., af því að það leiðréttir nokkuð þá ágalla, sem eru á gildandi löggjöf, en vil þó nota tækifærið til að undirstrika það, að ég tel, að í frv. sé um allt of litla breyt. að ræða og enn þá sé hér um hættulegt deiluefni að ræða milli sjómanna og útvegsmanna varðandi launakjör sjómanna og allar líkur séu til þess, að þetta leiði enn til endurtekinna átaka sjómanna og útvegsmanna og framleiðslustöðvana vegna þeirra óeðlilegu ákvæða, sem ég tel vera í þessari löggjöf og grípur inn í launakjörin.

Í fsp.–tíma á Alþ. í gær voru gefnar býsna athyglisverðar upplýsingar, sem snerta þetta mál. Þá var frá því skýrt, að talið væri, að afborganir og vextir, sem til falla á árinu 1969 af togurum í landinu, mundu nema 31.5 millj. kr. Hins vegar var upplýst, að greiðslur til Fiskveiðasjóðs samkvæmt þeim 1., þessum umdeildu l., sem ég hef gert að umtalsefni, mundu verða samtals 124 millj. M.ö.o. er á þennan hátt gert ráð fyrir því að taka af óskiptu aflaverðmæti togaranna upphæð, sem nemur 124 millj. kr. í því skyni, að þetta eigi að fara til þess að borga afborganir og vexti af skipunum, sem skipverjum, sem ekki eiga beina aðild að rekstri útgerðarinnar, kemur ekki við út af fyrir sig. Þessi upphæð er tekin af óskiptum aflahlut í því skyni, að það eigi að borga með þessu afborganir og vexti, sem þó er ekki nema 31.5 millj. kr. Hér er auðvitað augljóslega verið að blekkja og það er verið að raska þeim samningsgrundvelli, sem við hafði verið miðað og það er verið að skila á þennan hátt til útgerðarinnar allverulegum hluta af framleiðsluverðmætinu, án þess að það eigi að koma undir almenn skipti. Sama er að segja varðandi önnur fiskiskip, þó að tölurnar líti nokkuð öðru vísi út.

Með þeim upplýsingum, sem voru gefnar á Alþ. í gær, var frá því skýrt, að talið væri, að afborganir og vextir af stofnlánum annarra fiskiskipa, en togara mundu nema á árinu 1969 um 302 millj. kr. Hins vegar var upplýst, að samkvæmt þessum l. mundi verða greidd til Fiskveiðasjóðs vegna afborgana og vaxta annarra fiskiskipa upphæð, sem nemur 304 millj. kr. eða nokkru hærri upphæð, en sem nemur öllum afborgunum og vöxtum þessara fiskiskipa.

Nú er það svo, að í framkvæmd verður þetta auðvitað þannig, að af einstökum fiskiskipum er tekið samkvæmt lögunum miklu meira, en sem nemur öllum afborgunum og vöxtum af stofnlánum þeirra, en af öðrum verður auðvitað tekið eitthvað minna, því að þau hafa ekki fiskað jafnmikið. Í reyndinni verður þetta því þannig, að skipverjar eru á þennan hátt látnir standa undir þessum reksturskostnaði skipanna, sem þeir höfðu þó ekki samið um í sínum kjarasamningum, en það verður þannig að vera, samkvæmt þessum ósanngjörnu l.

Það var einnig upplýst á Alþ. í gær, að það ákvæði l., sem fjallar um, að það skuli renna beint til útgerðarmanna 17% af lönduðu aflaverðmæti, án þess að sú upphæð komi til hlutaskipta, muni nema um 391 millj. kr. á árinu 1969. Það er því mjög sennilegt, að á þennan hátt hafi verið tekið af skipverjum á öðrum fiskiskipum, en togurum í kringum 200 millj. kr. af þeirra kauphluta samkvæmt því hlutaskiptafyrirkomulagi, sem í gildi hafði verið, ef maður reiknar með því, að skipshöfnin sem heild með aukahlutum eigi í kringum helming aflaverðmætisins, sem mun vera mjög nærri lagi, þegar meðaltalið er tekið. Þessi atriði eru þess eðlis, að ég er þeim andvígur og tel, að þetta sé ósanngjarnt og það sé mjög hætt við því, að þetta leiði til endurtekinna átaka á milli sjómanna og útvegsmanna og framleiðslustöðvana.

Eins og menn vita varð framleiðslustöðvun vegna þessara l. í byrjun vetrarvertíðar árið 1969 og allt útlit var einnig á því, að svo færi að þessu sinni, þó að samkomulag yrði um að falla frá stöðvun einmitt með því, að slakað var nokkuð til á ákvæðum l. á þann hátt, sem gert er nú ráð fyrir að staðfesta með þessu frv.

Afstaða mín er sem sagt sú, að ég er, eins og við Alþb.–menn höfum lýst yfir, þeirrar skoðunar, að sjómenn og útgerðarmenn eigi í frjálsum samningum að ákveða launakjör sjómanna og Alþ. eigi ekki að grípa inn í slíka samningagerð án þeirra vilja. Með tilliti til þessa er afstaða okkar til þessara l., sem sett voru í desembermánuði 1968, óbreytt. Við teljum, að þarna sé um ósanngjörn l. að ræða, en þar sem hér er um það að ræða að draga nokkuð úr því misrétti, sem felst í l., get ég út af fyrir sig fallizt á að greiða þessu frv. atkv. Það breytir ekki afstöðu minni til meginlaganna.