16.04.1970
Efri deild: 71. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1361 í B-deild Alþingistíðinda. (1964)
214. mál, félagsheimili
Frsm. (Auður Auðuns):
Herra forseti. Þetta frv. er eins og það frv., sem hér var síðast til umr., flutt af menntmn. d. að beiðni hæstv. menntmrh., og hafa nm. óbundnar hendur um afstöðu til málsins.
Ég skal ekki hafa mörg orð um frv. Bæði er það, að hæstv. menntmrh. vék að efni þess allmikið nú fyrir stundu, í umr. um frv. til l. um skemmtanaskatt, og auk þess fylgir frv. grg., þar sem skýrt er frá, hvaða breytingar frá núgildandi lögum það hafi að geyma. Þetta frv. er, eins og það, sem seinast var hér til umr., flutt af n., og ég geri því ekki till. um, að því verði vísað til n., en það mun, eins og frv. til l. um skemmtanaskatt, verða tekið til ítarlegri athugunar í menntmn. á milli umr.
Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði vísað til 2. umr.