28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1409 í B-deild Alþingistíðinda. (2014)
215. mál, skemmtanaskattur
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. mikið, sem hér hafa farið fram. Ég tek undir það með hæstv. menntmrh., að meginatriði þessa frv., sem hér er til umr., og fylgifrv. þess um félagsheimili eru þær lagfæringar, sem gerðar eru vegna Félagsheimilasjóðs og heimildar til skuldabréfaútgáfu hans, og svo þær leiðréttingar, sem gerðar eru vegna reksturs kvikmyndahúsanna hér í þéttbýlinu.
Hins vegar hafði ég ætlað að mæla hér nokkur varnaðarorð vegna hinna miklu útgjalda, sem hlaðizt hafa á skemmtanahald í strjálbýli, með dálítið svipuðum hætti og hv. 3. þm. Vesturl. gerði hér áðan, þó að ég hefði e. t. v. ekki tekið að öllu leyti jafnsterkt til orða. Ég hef í mínum höndum upplýsingar um þau útgjöld, sem á skemmtanir leggjast, sem koma alveg heim við það, sem þessi hv. þm. rakti hér, og sé ég ekki ástæðu til þess að rengja þær, úr því að okkur tveimur þm. hafa borizt nokkurn veginn samhljóða upplýsingar um þetta efni. Það er því ljóst, að þarna er við vandamál að etja, sem ég vil vænta, að sú hv. n., sem þetta frv. fær til meðferðar, taki til gaumgæfilegrar athugunar.
Það eru ýmis fleiri atriði í þessu frv., sem ég hefði talið að ástæða væri til að athuga nánar, en ég skal samt ekki fara langt út í það. Ég vænti þess, að hv. menntmn. athugi þetta frv. vel. Í sambandi við skemmtanaskattinn af dansleikjum í 3. fl. 2. gr., þá skal af öllum skemmtunum þess flokks, sem eru dansskemmtanir, trúðleikasýningar og fjölleikasýningar, greiða 20% skemmtanaskatt af brúttóverði aðgöngumiða. Í 5. fl. er talað um þau veitinga- og samkomuhús, þar sem vínveitingar eru leyfðar. Þar sýnist mér, að sé harla lítið samræmi, því að í þessum húsum er ekki greiddur aðgangseyrir, a. m. k. ekki svo neinu nemi, enda er skatturinn í því formi, að hann skal lagður á hvern gest, sem aðgang fær að húsinu á því kvöldi, og er 10 kr. Eins og fram kom í ræðu hv. 3. þm. Vesturl., þá er algengast að verð aðgöngumiða að dansleikjum sé 200 kr. í þeim húsum, sem ekki hafa vínveitingaleyfi, þ. e. a. s. í nær öllum félagsheimilum og nær öllum samkomuhúsum úti um land. Það þýðir, að skemmtanaskattur af dansskemmtunum í þessum húsum er a. m. k. fjórum sinnum hærri en í þeim húsum þéttbýlisins, sem vínveitingaleyfi hafa. Þessu vildi ég vekja athygli á þegar við þessa 1. umr. frv., og ég vænti þess, að sú hv. n., sem fær frv. til meðferðar, taki þennan mismun til athugunar, eða geri sér a. m. k. grein fyrir því, í hverju það liggur að þessi munur er á hafður.
Ég skal ekki lengja þessar umr. Mér er það þó ljóst, að ég hefði óskað eftir, að þetta frv. fengi nánari athugun en vænta má, að það geti nú fengið á allra síðustu dögum þingsins. En ég treysti því, að hv. menntmn. taki það hlutverk sitt alvarlega, að skoða það til hlítar, og gangi ekki fram hjá því, sem hefur komið fram í ræðum okkar, nokkurra þm., og hafi hliðsjón af þeim miklu útgjöldum og þeim miklu erfiðleikum, sem því eru samfara að halda uppi skemmtanalífi úti í hinum strjálu byggðum landsins.