28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2016)

215. mál, skemmtanaskattur

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Ég er satt að segja steinhissa á málflutningi hv. þm. Stefáns Valgeirssonar. Hann virðist halda, að það mundi gilda einu, þó að þessi tvö frv. yrðu látin bíða, en fellt yrði niður 200% álag á skemmtanaskatt, sem nú er heimild fyrir í lögum. Það er rétt, að 200% álagið gefur svipaðar tekjur og gert er ráð fyrir, að tekjur af skemmtanaskatti lækki samkv. þessu frv. Það er rétt athugað. En hann gleymir því algerlega, að þá væru í gildi eftir sem áður reglurnar um skiptingu skemmtanaskattsins, eða m. ö. o. lækkun skemmtanaskattsins miðað við töluna árið 1968 úr 10.9 millj. niður í 4.9 millj. kr., ætti að skiptast eins og önnur lagaákvæði segja nú til um: 45% í Félagsheimilasjóð, 45% í Þjóðleikhús og 10% í Sinfóníuhljómsveitina. Sú stofnun, sem hann ber aðallega fyrir brjósti, er Félagsheimilasjóðurinn. M. ö. o.: ef þetta eitt yrði gert, þ. e. frv. dregin til baka og álagið fellt niður, þá hefði það þýtt 1968, að tekjur Félagsheimilasjóðs af skemmtanaskatti hefðu lækkað úr því sem þær voru, 4.9 millj., í 2.7 millj. kr. Þetta er nú sú gáfulega niðurstaða af hugmyndum hans í ræðunni hér áðan. Þetta er auðvitað fáránlegt. Þess vegna var nauðsynlegt að gera miklu víðtækari breytingar á öllu lagakerfinu heldur en bara þær að lækka skemmtanaskatt af kvikmyndahúsunum. Nei, auðvitað þurfti að gera meira. Það er ekki nóg að lækka skemmtanaskattinn, heldur verður að endurskipta honum, endurskipta hinum lækkuðu tekjum, og það er það, sem er gert með öðrum lagaákvæðum í þessu frv. Þjóðleikhúsið skal framvegis ekkert fá, félagsheimilin skulu fá 90% í staðinn fyrir 45%, en sinfónían eftir sem áður 10%. Þetta er því alger endileysa hjá hv. þm., og þykir mér miður, að hann skuli gera sig sekan um jafnflónslegan málflutning og hér er um að ræða.

Sama gildir náttúrlega efnislega séð um hitt. — Ég bið afsökunar á því, að ég notaði sömu tölu um dansleikina og um kvikmyndahúsin, af því að ég var að tala um það sitt á hvað. Það er rétt, að það voru 15% á kvikmyndasýningum og 20% á dansleikjum. — Hitt er auðvitað fullkomin fjarstæða, að þau geti jafngilt samkomubanni, því þessi ákvæði snerta tiltölulega mjög fáa aðila. Mér er algerlega ljóst, að í minnstu sveitarfélögunum eru mikil vandkvæði á því að halda uppi hvers kyns samkomuhaldi. Manna síðastur skal ég vera til þess að draga úr þeim erfiðleikum, sem þar er um að ræða. Við það sjónarmið hefur verið gengið til móts með mínu samþykki í hv. Ed., að kvikmyndasýningarnar, sem eru mikilvægustu skemmtanirnar í minnstu héruðunum, skuli njóta sams konar undanþágu og þær hafa notið fram að þessu. En að því er snertir dansleiki, þá endurtek ég, að ég sé ekki ástæðu til þess að gera þann greinarmun á dansleikjahaldi í þéttbýli og í dreifbýli, sem hingað til hefur verið gerður, og tel það spor í réttlætisátt, að af öllum dansleikjum, hvar sem þeir eru haldnir í landinu, skuli greiða sama lága skemmtanaskattinn.