28.04.1970
Neðri deild: 88. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (2017)
215. mál, skemmtanaskattur
Halldór E. Sigurðsson:
Herra forseti. Út af því, sem hæstv. menntmrh. sagði hér um tekjurnar af skemmtanaskattinum, að það væri fráleitt að ætla sér að láta þetta mál bíða og hafa sömu skiptingu í lögunum og nú er, þá vil ég segja það, að ef unnið er að þessum málum af heilindum og það verður afgreitt í haust, þá hefur annað eins skeð áður í meðferð hæstv. ríkisstj. á málefnum eins og það, að Félagsheimilasjóður gæti notið teknanna frá því 1. maí og fram í október, þó að ekki væri búið að breyta lögunum. Það væri einmitt hægt, ef hæstv. ríkisstj. vildi, að láta þau verka þannig, að þessir mánuðir fylgdu með. Nú eru senn 4 mánuðir liðnir af þessu ári, og þess vegna sé ég ekki, að þetta væri vandamál, sem hæstv. menntmrh. ætti ekki að geta yfirstigið, ef hann á annað borð vildi vinna að málinu.
Ég vil líka segja í sambandi við það, sem hann sagði hér áðan um, að það væru ýmsir erfiðleikar á samkomuhaldi á hinum minni stöðum, — er þá ekki ástæða til, að hæstv. ráðh. kynni sér það mál hjá þeim, sem bezt þekkja? Er ekki of mikið flaustursverk að leggja einum fyrrv. hæstaréttardómara það verk í hendur að breyta þessu eftir hugdettu hæstv. ráðh. þann og þann daginn? Er hér ekki um stærra mál en svo að ræða? Á ekki æskan í landinu kröfu á því og félagsmálamennirnir í landinu, að þeir fái að láta til sín heyra í slíku máli sem þessu?
Hæstv. ráðh. sagði, að það væri ekki ástæða til að fara að mismuna dansleikjum, eins og hann orðaði það. Ég kom hér með tvö dæmi áðan, sem sýndu tölur frá samkomum úti um landsbyggðina, þar sem ekki er hægt að koma öllu fleira að, eins og t. d. í samkomuhúsi okkar í Borgarnesi, og hv. 4. þm. Norðurl. v., Pálmi Jónsson, studdi það hér áðan og skýrði frá sömu niðurstöðu. Getur Alþ. gengið fram hjá því að taka tillit til staðreynda, eins og þeirra, sem þarna eru bornar fram?
Þetta mál er hið mesta flaustursmál. Það er ekki athugaður nema einn þáttur málsins; það er verið að breyta þessu til þess að lækka skattinn á kvikmyndahúsunum og ekkert hugsað um aðrar afleiðingar. Þess vegna legg ég enn á ný áherzlu á það, að hv. dm. kynni sér málið og geri sér grein fyrir, hvaða afleiðingar það getur haft, og taki tillit til þess.