28.04.1970
Sameinað þing: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (2038)

Almennar stjórnmálaumræður

Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Góðir áheyrendur. Maður er nefndur Herbert Marcuse. Hann er Þjóðverji, en háskólakennari í heimspeki vestur í Kaliforníu. Verk hans hafa notið lítillar hylli meðal fræðimanna, og þess vegna hefur hann leitað sér að öðrum lesendahópi og fundið hann, þar sem er örlítill hluti stúdenta í Ameríku og V.-Evrópu. Bækurnar, sem hann ætlar þessum lesendum sínum, eru skrifaðar í ofsatrúarstíl. Í þeim ræðst hann gegn skipulegu þjóðfélagi og telur lög og rétt andstætt mannlegu eðli. Í því skyni að brjóta lög og rétt á bak aftur prédikar hann hvers konar ofbeldisaðgerðir. Á friðsamlegum mótmælafundum og mótmælagöngum hefur hann megnustu lítilsvirðingu. Megináherzlu leggur hann á storkun við réttvísina, — með umferðartruflunum, innrásum í opinberar byggingar, truflun á kennslu í skólum, — allt í því skyni að lenda í áflogum við lögregluþjóna. Sérstaka áherzlu leggur hann á, að blöð, útvarp og sjónvarp fái sem gleggsta vitneskju um allar aðgerðir og einkum þó um áflogin við lögregluna. Ef einhver áflogaseggurinn hlýtur skrámu, ber að ota henni að sjónvarpsskerminum. Ef einhvers staðar er vitað um einhverja óánægju, ber að lýsa yfir stuðningi við hina óánægðu og egna þá til einhvers konar ofbeldisaðgerða. Allri óánægju ber að veita í einn farveg og virkja hana í þágu byltingar gegn þjóðskipulaginu. Hann telur fráleitt, að t. d. stúdentar berjist fyrir aukinni fjárhagsaðstoð sér til handa, nema því aðeins að óskir þeirra séu smávægilegur liður í baráttu fyrir byltingu og stjórnleysi.

Lítill hluti stúdenta í Ameríku og Evrópu hefur reynzt móttækilegur fyrir þennan hugmyndavaðal prófessors Marcuse. En þótt hópurinn sé ekki stór, hefur honum með dyggilegri aðstoð blaða, útvarps og sjónvarps tekizt að vekja á sér miklu meiri athygli en efni standa til. Þessar kenningar, ef kenningar skyldi kalla, eru sumpart í ætt við kommúnisma, en minna þó mest á stjórnleysisstefnu. Þær hafa engin áhrif haft í stjórnmálum V.-Evrópu og Ameríku, nema þá helzt þau að styrkja þau öfl í þjóðfélaginu, sem skortir umburðarlyndi gagnvart unglingum og nýjum sjónarmiðum og krefjast þyngri refsinga en tíðkazt hafa á síðustu tímum. Sem dæmi má nefna, að uppþot stúdenta í París vorið 1968 hafði þær afleiðingar einar að tryggja völd De Gaulle hershöfðingja og þar með afturhaldssömustu ríkisstj. í evrópsku lýðræðisríki.

Fjölmiðlunartækin hafa orðið til þess, að örlítill hópur íslenzks æskufólks hefur tekið að herma eftir áflogaseggjum úti í heimi, og þó fyrst og fremst félagar í Æskulýðsfylkingu kommúnista og örfáir öfgamenn aðrir. Þessu fólki finnst það vera hafið yfir lög og rétt. Það megi brjóta lög, þótt aðrir megi það ekki. Það sé að berjast fyrir betra þjóðskipulagi. Ef ellefu drukknir unglingar réðust inn í íslenzkt sendiráð erlendis eftir dansleik, telur þetta fólk, að þeim ætti að sjálfsögðu að refsa og þá ætti að dæma. En ef ellefu stúdentar gerðu hið sama í því skyni að mótmæla EFTA og NATO og vekja athygli á nauðsyn sósíalistískrar byltingar, þá er ekkert við það að athuga. Þeir eru ekki aðeins saklausir og glæpsamlegt að refsa þeim, heldur má ekki einu sinni segja frá því, hverjir þetta gerðu. Hins vegar eiga fjölmiðlar að skýra sem greinilegast frá atburðunum, annars mega starfsmenn blaða, útvarps og sjónvarps eiga von á innrásum á vinnustaði sína. Ef hópur eyfirzkra bænda ryddist inn á bæjarskrifstofurnar á Akureyri, ræki starfsfólkið út og settist þar um öll gólf, telur þetta fólk, að auðvitað ætti að refsa þeim harðlega. En ef hópur skólakrakka ræðst inn í rn., truflar þar störf og kemur í veg fyrir, að þeir, sem þangað eiga erindi, komist leiðar sinnar, þá er allt í himnalagi. Innrásin á ekkert skylt við lögbrot, því að unglingarnir eru að mótmæla kúgun valdastéttarinnar. Og ef lögregluþjónar neyðast til þess að bera unglingana út, af því að þeir neita að bera fyrir sig fæturna, þá er lögreglan sek um valdníðslu og svívirðilegt ofbeldi. Lögregluna ber að kæra fyrir sérhverja smáskrámu, sem hún kann að veita. Hitt er sjálfsagt, að stelpugopar veiti lögregluþjónum áverka með kjafti og klóm. Stelpurnar hafa nefnilega heilagan málstað, og þess vegna er glæpur að hindra aðgerðir þeirra, hvað þá að refsa fyrir þær.

Mörgum mun þykja undarlegt, að fólk, sem komið er í framhaldsskóla, að ég ekki tali um háskóla, skuli geta aðhyllzt jafnfáránlegar skoðanir og haft svo brenglaða dómgreind. En sannleikurinn er sá, að hér er alls ekki um skoðanir að ræða. Þessi afstaða unglinganna á ekkert skylt við vitsmunalíf, hún er skyldust umbrotum sálarlífsins á gelgjuskeiði. Það er sem betur fer sjaldgæft, að erfiðleikar unglinga á gelgjuskeiði verði að þjóðfélagslegu vandamáli. Þó getur það vel gerzt. Unglingar hafa valdið slíkum spjöllum á Þingvöllum og víðar í drykkjuæði og uppþotaseggirnir raska vinnufriði í þjóðfélaginu. Að sjálfsögðu verður að koma í veg fyrir slíkt með einhverjum ráðum.

En ég mundi ekki gera þetta að umtalsefni hér á Alþ., ef ég teldi þennan fámenna unglingahóp algerlega einangraðan í þjóðfélaginu. Málgögn fjögurra stjórnmálaflokka af fimm, sem fulltrúa eiga á Alþ., hafa fordæmt athafnir stúdentanna 11 í Stokkhólmi. Afstaða þeirra er ugglaust hin sama til ólátanna í menntmrn., og þó er afstaða Tímans í morgun ekki ótvíræð. En málgagn Alþb., Þjóðviljinn, hefur ekki sagt eitt aukatekið orð til fordæmingar á þessum tiltektum. Þjóðviljinn birtir langlokugreinar eftir forsprakka ólátaseggjanna með sýnilegri velþóknun. Og enginn þm. Alþb. hefur séð ástæðu til þess að láta í ljós andúð á tiltækinu í umr. hér á Alþ. Er hægt að skilja þetta öðruvísi en þannig, að þeir hafi ekkert við þetta að athuga?

Íslenzkur almenningur ætti að gefa þessu gaum. Sumir leiðtogar Alþb. hafa stundum gefið í skyn, að eiginlega væri flokkur þeirra vaxinn upp úr kommúnisma, sem hafi einlægt skipt um nafn, þeir væru eiginlega ósköp saklausir vinstri jafnaðarmenn og einlægir lýðræðissinnar. En slík orð eru næsta marklaus. Hitt ber miklu haldbetra vitni um afstöðu þeirra, hvernig þeir bregðast við atburðum eins og áflogum unglinganna við lögregluna, og þar er ekki um að villast. Halldór Laxness lét að því liggja í sjónvarpsviðtali á dögunum, að fyrrverandi samherjar hans meðal íslenzkra kommúnista hefðu staðnað á þroskaferli sínum. Þeir hefðu engu gleymt og ekkert lært frá því á unglingsárum sínum, frá því að þeir voru að slást við lögregluna á háskólaárum sínum í stað þess að taka próf. Viðbrögð þeirra við óspektunum í Stokkhólmi og Reykjavík virðast óneitanlega staðfesta þetta.

Unglingar, sem stofna til óspekta og öskra heimskuleg slagorð í stað þess að fylkja sér um nýjustu poppstjörnuna eða stytta og síkka pils sín eftir auglýsingum tízkufrömuðanna, eru næsta meinlaust fyrirbæri. Hitt er öllu alvarlegra umhugsunarefni, að á Íslandi skuli heill stjórnmálaflokkur vera á gelgjuskeiði og málgagn hans engan skilning hafa á grundvallarsjónarmiðum lýðræðis.

Þá ætla ég að snúa mér að þingmáli, sem mikla athygli vakti fyrir skömmu, verðgæzlufrv. og örlögum þess. Ég geri það af því, að meðferð þess í þinginu varpar á vissan hátt sams konar ljósi á Framsfl. og afstaða leiðtoga Alþb. til óeirðanna í Stokkhólmi og hér í Reykjavík varpar á Alþb.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að frá 1927 og til 1959, eða í meira en 31 ár, hafði Framsfl. mjög mikil áhrif í íslenzkum stjórnmálum og var þá lengst af í ríkisstj. Höfuðeinkenni stefnunnar í efnahagsmálum á öllu þessu tímabili voru innflutnings- og gjaldeyrishöft. Þegar innflutningurinn er takmarkaður með höftum og framboð erlendrar vöru er ekki nægjanlegt til þess að mæta eftirspurn innanlands, þá er nauðsynlegt að hafa eftirlit með verðlagi, til þess að umframeftirspurnin leiði ekki til óeðlilegra verðhækkana. Meðan innflutnings- og gjaldeyrishöftunum var beitt í nálægum löndum á stríðsárunum og fyrstu árin eftir stríð, var þar einnig um verðlagseftirlit að ræða. En þegar innflutnings- og gjaldeyrishöft voru afnumin í þessum löndum, voru bein verðlagsákvæði í formi reglna um hámarksálagningu eða hámarksverð afnumin, en hins vegar víðast hvar tekið upp eftirlit með samkeppnishömlum og hringamyndun til þess að koma í veg fyrir óeðlilega verðmyndun, og er þá gripið í taumana, ef um slíkt er að ræða. Í Bretlandi t. d. er ríkisstj. nú að koma fram slíkri löggjöf.

Við Íslendingar urðum fyrir meira en 10 árum á eftir nágrannaþjóðum okkar í því að afnema gjaldeyris- og innflutningshöft. Það var gert, þegar Framsfl. varð áhrifalaus í stjórn landsins. En við afnámum ekki verðlagsákvæðin samtímis, eins og aðrar þjóðir höfðu gert. Sjálfstfl. var að vísu algerlega fylgjandi því, og framsóknarmenn tóku að gagnrýna verðlagsákvæði í vaxandi mæli. Framsfl. virtist í raun og veru vera andsnúnari verðlagsákvæðum en höftunum. Vitað var, að Alþb. var andvígt afnámi verðlagsákvæða. En í Alþfl. sýndist mönnum sitt hvað. Ýmsir vildu fylgja fram sömu stefnu og jafnaðarmenn í nálægum löndum hafa fylgt og láta setja löggjöf um samkeppnishömlur og hringamyndun, halda jafnframt heimild til almenns verðlagseftirlits, þannig að hægt væri að grípa í taumana, ef um óeðlilega verðmyndun væri að ræða, en hverfa smám saman frá því að treysta á ákvæði um hámarksálagningu og hámarksverð til þess að halda verðlagi í skefjum, enda hafi reynslan sýnt, að skaðleg áhrif slíks kerfis eru til lengdar meiri en gagnleg áhrif þess. Ýmsir töldu hins vegar of áhættusamt að hverfa frá þessu kerfi og vildu halda því. Samkomulag varð þó um að skipa nefnd, sem skyldi semja frv. að nýrri löggjöf um verðgæzlu og samkeppnishömlur. Vann hún ágætt verk með aðstoð erlends sérfræðings. Í n. áttu sæti fulltrúar stjórnmálaflokka og ýmissa hagsmunasamtaka. Fulltrúi Sjálfstfl. í n. var fylgjandi frv. Fulltrúi Framsfl. var því einnig fylgjandi, þótt hann skrifaði ekki undir nál. vegna fjarveru. En fulltrúar Alþfl. og Alþb. voru því andvígir. Þegar frv. var rætt í þingflokki Alþfl., reyndust 6 þm. því fylgjandi, en 3 andvígir. Það var því uppástunga mín innan Alþfl., að við skyldum reyna að binda enda á langt deilumál með því að hafa þetta mál ekki flokksmál, að flokkurinn tæki m. ö. o. ekki afstöðu til þess sem slíks, heldur greiddi hver þm. atkv. eins og honum sýndist. Þessi till. mín var síðan samþ. með miklum meiri hl. í miðstjórn Alþfl. Ég tilkynnti félögum mínum í ríkisstj. um þetta. Það var þannig augljóst, að úrslit málsins mundu velta á því, hver afstaða framsóknarmanna yrði.

Ég er þeirrar skoðunar, að jafnnauðsynleg og verðlagsákvæði eru, þegar beitt er innflutnings- og gjaldeyrishöftum, þá séu þau skaðleg, þegar innflutningur er að mestu leyti frjáls. Menn eru áreiðanlega ekki búnir að gleyma öllum hrakspám, þegar verið var að gera innflutninginn frjálsan. Engin þeirra hefur rætzt. Hið sama gildir um verðlagsákvæðin, enda gæti varla verið, að allar nálægar þjóðir hefðu afnumið hjá sér sams konar fyrirkomulag og það, sem hér gildir, ef það afnám væri þjóðhættulegt. Hitt er annað mál, að mér hefur aldrei komið til hugar, að öll verðlagsákvæði væru afnumin allt í einu. Slíkt þarf að gera smám saman og fylgjast nákvæmlega með þróuninni. Af þessum sökum hafði ég auðvitað mikinn áhuga á því, að verðgæzlufrv. næði fram að ganga. Ég taldi mig hafa örugga vissu um, að það hefði fylgi meiri hl. þm. Fulltrúi frá Framsfl. í n. átti einnig sæti á þingi sem varamaður, en hann hafði, meðan á nefndarstörfum stóð, verið fylgjandi frv. Nokkrir þm. Framsfl. höfðu á fundi í Framsóknarfélaginu lýst fylgi sínu við meginstefnu frv. Þm. úr Framsfl. höfðu á síðasta þingi gagnrýnt ríkisstj. fyrir það, hversu undirbúningur frv. tæki langan tíma, og krafizt upplýsinga um, hvenær það yrði lagt fyrir. Forstjóri Sambands ísl. samvinnufélaga var í n. og var fylgjandi frv., og vitað var, að kaupfélög landsins voru yfirleitt mjög fylgjandi þeirri stefnu, sem í því fólst. Ég hefði búizt við því, að einhver ágreiningur yrði um málið innan þingflokks Framsfl. Mér skilst, að þar séu menn nú orðið varla sammála um nokkurn skapaðan hlut. En ég þóttist þó viss um, að þar hlytu að vera a. m. k. 3, sem fylgdu samvizku sinni í atkvgr. um málið, þannig að það næði fram að ganga.

Framsóknarmenn hafa talað um það eins og einhverja fjarstæðu, að við í ríkisstj. skyldum hafa treyst á atkv. framsóknarmanna með málinu, og jafnframt, að undarlegt sé, að við skyldum þá aldrei hafa talað við þá um málið. Við vorum búnir að tala við þá, með því að gefa þeim kost á að eiga fulltrúa í n., sem samdi frv. Hann var frv. fylgjandi. Þegar framsóknarmenn lýsa furðu sinni á því, að ríkisstj. skuli hafa treyst því, eins og þeir segja, að Framsfl. eða einhver hluti hans styddi stjórnarfrv. og það næði þannig fram að ganga, þá lýsir þetta svo dæmalausum hugsunarhætti, að á honum verður að vekja sérstaka athygli.

Það var einmitt þetta atriði, sem olli því, að ég kaus að gera þetta mál sérstaklega að umræðuefni. Fyrir Framsfl. skiptir m. ö. o. engu máli, hvort mál er gott eða vont, hvort frv. stefnir í rétta átt eða ranga. Afstaða hans fer ekki eftir því. Afstaða hans mótast af hinu, að andstæðingurinn flytur málið. Flokkurinn er á móti öllu því, sem kemur frá andstæðingi, hvort sem hann hefur rétt fyrir sér eða rangt. Í þessu máli er sannað, að nokkur hluti þm. Framsfl. var fylgjandi meginstefnu frv. Samt gerði þingflokkurinn ályktun um, að hann skyldi allur greiða atkv. gegn því og fella það, án þess að bera fram nokkra brtt. Efni málsins skipti m. ö. o. engu máli fyrir Framsfl. Skoðanir einstakra þm. fá ekki að koma fram. Ofstæki nokkurra misviturra forustumanna fær því ráðið, að ímyndaður möguleiki á því að koma illu af stað á milli stjórnarflokkanna er talinn þyngri á metaskálunum en rétt mál, sem meiri hl. þm. er raunverulega fylgjandi.

En auðvitað tókst Framsfl. ekki að koma neinu illu af stað milli stjórnarflokkanna. Hafi mál þetta haft nokkur áhrif í herbúðum okkar, hafa áhrifin verið þau ein, að sú skoðun hefur styrkzt, að Framsfl. sé aldrei treystandi, hann sé ósamvinnuhæfur. Fyrir 10–15 árum þekkti ég mun betur til í Framsfl. en ég geri nú. Ég hika ekki við að fullyrða, að meðan Hermann Jónasson var formaður Framsfl., hefði jafnraunalegur skrípaleikur og átti sér stað í Framsfl. í sambandi við verðgæzlufrv. aldrei átt sér stað. Forusta Framsfl. er komin í hendur manna, sem ráða ekki við nokkurt vandamál. Það er undantekning, að þeir taki skynsamlega afstöðu til máls. Það er ekki aðeins, að þeir hafi ekkert lært af þróun síðasta áratugs, aðhyllist úreltar kenningar á flestum sviðum og séu í raun og veru mesti afturhaldsflokkur landsins, heldur er ekki einu sinni heildarsvipur á íhaldsseminni. Stefnan er eins tækifærissinnuð og hugsanlegt er, ekki aðeins já — já í dag og nei — nei á morgun, heldur stundum bæði já-já og nei-nei í sama málinu. Það hlýtur að vera þeim, sem unna íslenzku lýðræði, áhyggjuefni, að þannig skuli vera komið fyrir forustumönnum næststærsta flokks þjóðarinnar.

Góðir áheyrendur. Að síðustu langar mig til þess að fara nokkrum orðum um stjórnmálaástandið almennt. Það, sem nú er athyglisverðast í íslenzkum stjórnmálum, er, að stærri stjórnarandstöðuflokkurinn, Framsfl., lýtur stefnulausri og tækifærissinnaðri forustu og minni stjórnarandstöðuflokkurinn, Alþb., sem einu sinni átti að sameina íslenzka alþýðu, er þríklofinn. Enginn veit, hversu mikið fylgi hvert flokksbrot hefur. En allir hljóta að sjá, að ekkert þeirra getur nú haft nokkur áhrif í íslenzkum stjórnmálum. Sú hreyfing, sem hófst með stofnun Kommúnistaflokks Íslands 1930, komst inn á Alþ. 1934 og náði verulegum áhrifum, þegar honum tókst að kljúfa Alþfl. 1938, og hefur haldið þeim áhrifum þangað til nú, — þessi hreyfing er nú sundruð og dæmd til algers áhrifaleysis. Alþfl. hefur staðið af sér þrjár klofningstilraunir: þegar kommúnistar klufu hann 1930, þegar Héðinn Valdimarsson klauf hann 1938 og þegar Hannibal Valdimarsson klauf hann 1956. Það er áreiðanlega engin tilviljun, að klofningsmennirnir skuli nú sjálfir vera klofnir í þrennt.

En Alþfl. hefur alltaf reynzt trúr grundvallarstefnu sinni og tekizt að vinna þjóðinni meira gagn en klofningsmönnunum hefur nokkru sinni tekizt. Alþfl. er nú samhentari en nokkru sinni fyrr. Hann hefur verið að auka fylgi sitt í síðustu kosningum. Hann bætti við sig sæti í síðustu borgarstjórnarkosningum í Reykjavík, og ári síðar vann hann einn mesta kosningasigur í sögu sinni. Í síðustu alþingiskosningum bætti hann við sig hér í Reykjavík hvorki meira né minna en 20% atkv. frá borgarstjórnarkosningunum áður, og þingmannatala flokksins jókst. Alþfl. var þá næststærsti flokkurinn í Rvík. Meðan Alþb. er í upplausn, er Alþfl. í sókn. Þeirri sókn mun Alþfl. halda áfram. Barátta hans mun ekki byggjast á lýðskrumi. Barátta hans mun ekki byggjast á óraunhæfum loforðum. Hann mun verða ábyrgur í afstöðu sinni og heiðarlegur í málflutningi sínum. Hann mun vinna að því að bæta þjóðfélagið og gera það réttlátara. Hann mun beita áhrifum sínum til þess, að aukin framleiðsluafköst og hækkað verðlag erlendis verði vinnandi fólki til hagsbóta. Hann vill bæta afkomu þess og auka öryggi þess. Hann veit, að Íslendingar vilja, að stjórn landsins sé í höndum ábyrgra og heiðarlegra manna, sem hugsa um það eitt að vinna störf sín af vandvirkni og efla stöðugar framfarir. Við þeim óskum góðra Íslendinga vill Alþfl. verða. — Góða nótt.