28.04.1970
Sameinað þing: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1459 í B-deild Alþingistíðinda. (2041)
Almennar stjórnmálaumræður
Matthías A. Mathiesen:
Herra forseti. Góðir hlustendur. Þegar hagstæðir atburðir gerast rétt í hlaðvarpanum, lítum við á þá sem sjálfsagða hluti, en gerist minnisstæð atvik í fjarska, finnst okkur mun meira til þeirra koma og okkur dreymir þá stundum um, að slíkir atburðir gerist í návist okkar. Árið 1969 er tvímælalaust merkilegt tímamótaár í sögu þjóðar okkar, enda þótt flestum okkar finnist þeir merkilegu atburðir, sem þá gerðust, sjálfsagðir, svo sjálfsagðir, að menn gleyma jafnvel hverjir voru með og hverjir voru á móti, og menn eru undrandi, þegar rifjað er upp, að ekki voru allir sammála. Álbræðslan í Straumsvík og Búrfellsvirkjun tóku til starfa. Fyrsta jökulfallvatn hér á landi var beizlað til raforkuframleiðslu og fyrsta stóriðjufyrirtækið á þessu sviði hóf framleiðslu sína. Þar með er fyrsta áfanganum náð í uppbyggingu nýrrar mikilvægrar útflutningsgreinar, er byggir á orkuforða landsmanna. Alþingi Íslendinga samþykkti á s. l. ári inngöngu Íslands í Fríverzlunarbandalag Evrópu, sem gefur Íslendingum tækifæri til þess að byggja upp útflutning iðnaðarvarnings, sem fær tollfrjálsan aðgang að um það bil 100 millj. manna markaði. Þessir atburðir marka án nokkurs vafa þáttaskil í atvinnusögu Íslendinga, en grundvallarmarkmið stóriðju og EFTA-aðildar eru hin sömu: að bæta lífskjör og atvinnuöryggi landsmanna með því að skapa nýjar og hagkvæmar útflutningsatvinnugreinar við hlið sjávarútvegsins, sem verið hefur svo til eini útflutningsatvinnuvegur okkar Íslendinga frá öndverðu. Hér er um að ræða árangur af jákvæðri stefnu og starfi þeirra stjórnmálaflokka, sem skipa meiri hl. Alþ. og staðið hafa að ríkisstjórnum þeim, sem starfað hafa s. l. 10 ár undir forsæti formanna Sjálfstfl., þeirra Ólafs Thors og dr. Bjarna Benediktssonar, en svo langt og stöðugt stjórnarsamstarf er einstakt fyrirbrigði í íslenzkri stjórnmálasögu.
Í upphafi þessa stjórnarsamstarfs var mörkuð sú stefna, sem skapað hefur þá möguleika, sem nú blasa við og eiga óefað eftir að hafa hagstæð áhrif á lífskjör okkar Íslendinga um ókomna framtíð. Það efnahagsáfall, sem þjóðarbúið varð fyrir 1967 og 1968, minnti okkur óþyrmilega á, hvílíkt öryggisleysi það er hjá einni þjóð að eiga afkomu sína út á við undir einni framleiðsluatvinnugrein. Þá fengum við og bezt staðfest, að við höfðum lagt inn á réttar brautir til þess að mæta efnahagsáföllum án stórkostlegra afleiðinga. En það er ekki nóg að auka hagnýtingu auðlinda landsins, að stofna til nýrra atvinnufyrirtækja, að afla nýrra markaða, ef ekki er grundvöllur fyrir atvinnureksturinn í landinu til að blómgast og dafna, vegna þess að fyrirtækjum er ekki af hálfu skattheimtu ríkisins gert kleift að fjármagnast, m. a. vegna þess að einstaklingar hafa ekki áhuga á að leggja fé sitt til atvinnurekstrar miðað við óbreytt skattalög.
Það hefur verið á það bent, hvað mjög það hefur háð atvinnurekstrinum í landinu, hversu lítið eigið fjármagn atvinnufyrirtækjanna hefur verið, og það oft og tíðum talið meginorsök lélegs árangurs í rekstri fyrirtækjanna. Með breytingu þeirri, sem gerð var á skatta- og tekjustofnalögunum 1962, var stigið rétt spor í þá átt að efla atvinnulífið. En það sýnir sig, þegar á móti blæs, að betur má gera. Fjárhagslega sterk og vel rekin fyrirtæki verða ævinlega grundvöllur að blómlegu atvinnulífi.
Á Alþ. hafa þessi mál verið á dagskrá að undanförnu. Á síðasta þingi vakti ég athygli á máli þessu með flutningi frv., þar sem lagt var til, að hlutur hlutafjáreigenda yrði bættur og reynt þar með að örva einstaklinga til þess að fjárfesta í atvinnurekstrinum. Um sama leyti fól hæstv. fjmrh., Magnús Jónsson, sérstakri embættismannanefnd að vinna að till. um breytingu á skatta- og tekjustofnalöggjöfinni vegna væntanlegrar aðildar Íslands að EFTA. Var nefnd þessari og falið að gera brtt. við nefnda löggjöf í þá átt, að fyrirtækjum væri gert kleift að fjármagnast með eðlilegum hætti og hlutur hlutafjáreigenda yrði bættur með tilliti til sparifjár.
Frv. til 1. um breyt. á skatta- og tekjustofnalögum hefur nú verið lagt fyrir Alþ. Hér er um að ræða, eins og kemur fram í grg. með frv., till., sem fást að áliti nefndarinnar eingöngu við hluta af þeim atriðum, sem nauðsyn ber til að marka afstöðu til á þessu sviði, og eru því fyrsta skrefið í endurskoðun á skatta- og tekjustofnalögum. Í frv. þessu felast fjölmörg nýmæli og till. um svo veigamiklar breytingar á þessum málum varðandi fjármögnun og rekstur fyrirtækja svo og aðstöðubreytingu hlutafjáreigenda, að eðlilegt þótti að leggja frv. fram nú á þessu þingi til að kynna þm. málið svo og öðrum, sem hagsmuna hafa að gæta, og gera ekki ráð fyrir afgreiðslu málsins fyrr en á næsta þingi að öðru leyti en bráðabirgðaákvæði varðandi fyrningar, sem ætlað er að komi til framkvæmda við álagningu fyrir tekjuárið 1969.
Þannig er nú unnið að því að tryggja íslenzkum atvinnurekstri samkeppnisaðstöðu við EFTA-löndin skattalega séð, svo og tryggja æskilega fjármögnun fyrirtækjanna og glæða áhuga einstaklinga fyrir fjárfestingu í atvinnurekstri. Þá mun iðnþróunarsjóðurinn, sem nú hefur tekið til starfa, tvímælalaust veita iðnfyrirtækjum mikla aðstoð við endurskipulagningu vegna þeirra breyttu aðstæðna, sem innganga í EFTA hefur í för með sér fyrir íslenzkan iðnað. Fyrir tveim dögum voru samþ. lög á Alþ. um Fjárfestingarfélag Íslands h. f. Er hér um að ræða merkilega nýjung, sem Verzlunarráð Íslands og Félag ísl. iðnrekenda hafa beitt sér fyrir og hv. varaþm. Norðurl. v., Eyjólfur Konráð Jónsson, hefur gerzt talsmaður fyrir hér á hv. Alþ. Hlutverk Fjárfestingarfélagsins verður að efla íslenzkan atvinnurekstur og örva til þátttöku í honum með því að fjárfesta í atvinnufyrirtækjum og veita þeim fjárhagslega fyrirgreiðslu og beita sér fyrir nýjungum í atvinnumálum. Skatta- og tekjustofnalagabreyting sú, sem fyrirhuguð er, svo og stofnun þessa félags mun tvímælalaust verða til þess að örva mjög fjármögnun atvinnurekstrar og gera atvinnulíf okkar fjölskrúðugra.
Mér hefur orðið tíðrætt um þær breytingar, sem nú eiga sér stað og munu eiga sér stað í íslenzku atvinnulífi á næstunni, leiðir, sem farnar hafa verið til þess að skapa meira jafnvægi í íslenzku atvinnulífi og þá um leið reyna að fyrirbyggja svo sem mögulegt er stórar sveiflur í efnahagslífi Íslendinga. En hvað þá um höfuðútflutningsatvinnuveg okkar? Hefur ekkert verið hugað að eflingu sjávarútvegsins? Þegar við höfum eldhúsdag hér á Alþ., er komið að lokum vertíðar, mjög aflasællar vertíðar, sem færir okkur heim sanninn um það, að sé fisk úr sjó að fá, höfum við dugmikið fólk til þess að sækja aflann og verka. Við höfum gætt þess að eiga ávallt vel búin tæki til þess að ná í aflann og vinna hann. Ég hirði ekki um að telja upp skipafjölda né mannafjölda skipastólsins né gera samanburð, ekki heldur að gera grein fyrir afkastagetu fiskverkunarstöðva og frystihúsa. Staðreyndin talar sínu máli. Hefði ekki verið sköpuð aðstaða til að sækja allan þennan afla, væri hann ekki á land kominn. Hefði ekki verið sköpuð aðstaða í landi til verðmætaaukningar aflans, væri aflinn ekki orðinn það útflutningsverðmæti sem raun ber vitni.
Einn þáttur sjávarútvegsins hefur þó dregizt aftur úr um stund, en það er togaraútgerð. Kemur hér til breyting, sem hefur orðið á tilkostnaði þessa atvinnurekstrar. Vel má vera, að sá dráttur sé ekki eins óhagstæður og hann virðist vegna mikilla breytinga, sem orðið hafa á þessum atvinnutækjum s. l. ár. Í dag voru samþ. á Alþ. lög um kaup á 6 skuttogurum. Er gert ráð fyrir nokkurri fyrirgreiðslu hins opinbera. Ég er þeirrar skoðunar, að sú aðstoð muni ekki duga til að skapa þann rekstrargrundvöll, sem nauðsynlegur er, ef við á annað borð ætlum að viðhalda togaraútgerð. Ég vil í þessu sambandi benda á, að allar þjóðir innan Efnahagsbandalags Evrópu, sem togaraútgerð stunda, munu greiða með einu eða öðru móti niður stofnkostnað togaraútgerðarinnar að einhverju leyti. Við megum ekki gleyma því, að við höfum gengið á hlut togaraútgerðarinnar, fyrst með mismunum á fiskverði, síðan með aðstöðumismun á fiskimiðum í landhelgi. Þrátt fyrir látlausa gagnrýni stjórnarandstöðunnar hefur lítið sem ekkert jákvætt frá þeim komið, eins og við höfum heyrt í kvöld. Allt það jákvæða í þjóðfélaginu á sér stað að þeirra dómi þrátt fyrir slæma stjórn, en það, sem miður hefur farið í þjóðfélaginu, ber að kenna ríkisstj. og stuðningsflokkum hennar. En hvernig hafa hv. þm. stjórnarandstöðunnar staðið að afgreiðslu þeirra vandasömu stórmála, sem Alþ. hefur fjallað um? Þeir hafa ýmist verið á móti málum eða lagt til, að málum yrði frestað. Þeir hafa hvorki haft kjark né dug til þess að takast á við vandann og engar umtalsverðar till. haft fram að færa. Rétt er þó að geta þess vegna ummæla hv. 4. þm. Austf., Lúðvíks Jósefssonar, hér í kvöld, að hann flutti brtt. við frv. um kaup á skuttogurum og lagði til, að keyptir yrðu 12 togarar í staðinn fyrir 6. Ég var hissa, að þessi hv. þm. skyldi ekki leggja til, að keyptir yrðu 15 togarar. Sérstaklega er honum þessi tala minnisstæð og geðfelld, eins og fram kom í kvöld, frá því að hann sem sjútvmrh. vinstri stjórnarinnar lofaði þjóðinni því, að smíðaðir yrðu 15 nýir togarar. Hv. 4. þm. Austf., þá sem sjútvmrh., stóð ekki við þessi loforð sín, en í kvöld treysti hann á, að þetta væri gleymt, og nú sagði hann, að ef Alþb. hefði ráðið, þá væru 15 nýir skuttogarar komnir til landsins. Trúi hver sem trúa vill.
Góðir hlustendur. Síðasti áratugurinn sýnir okkur, hversu þýðingarmikið það er, að stjórnarforustan sé í höndum manna, sem gera sér grein fyrir þeim margvíslegu viðfangsefnum, sem við er að glíma í samfélagi manna, og hvernig bregðast skal við vandanum af raunsæi, þegar hann ber að höndum. Þá gerist það, sem nú gerist í íslenzku þjóðlífi. Upp úr öldudal efnahagsörðugleika stefnum við fram til aukinna lífskjara, fram til betra lífs. Það er og verður stefna sjálfstæðismanna hvar sem þeir stjórna. — Góða nótt.