28.04.1970
Sameinað þing: 48. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (2042)

Almennar stjórnmálaumræður

Ágúst Þorvaldsson:

Herra forseti. Heiðruðu áheyrendur. Formaður Alþfl., Gylfi Þ. Gíslason ráðherra, var að reyna að læða þeirri skröksögu í eyru hlustenda, að í Framsfl. væri hver höndin upp á móti annarri. Þá væri nú munur í Alþfl. Hann er svo samhentur, Alþfl., að ráðh. flokksins drepur frv., sem hann með öðrum ráðh. hefur lagt fram. Slíkt er mjög nýstárleg samheldni. Hún er orðin þrúguð, þjóðin, ef ekki hefur verið hlegið við útvarpstækin, þegar þessi samlíking og saga ráðh. kom hér áðan.

Þegar horft er yfir íslenzkt þjóðlíf eftir rúmlega áratugs valdaferil þeirrar stjórnar, sem hér situr, og þessi þingmeirihl., er hana styður, — en þessi valdasamsteypa kenndi sig upphaflega við viðreisn, kallaði sig viðreisnarstjórn, en er nú hætt af skiljanlegum ástæðum að nefna það nafn, — þá kemur ýmislegt fróðlegt og athyglisvert í ljós af pólitískum verkum stjórnarinnar, þó að ég hafi ekki tíma til að nefna nema fátt eitt hér í stuttri ræðu. Meginhluta þessa valdatíma hefur verið gott árferði og aflabrögð meiri en áður eru dæmi um. Skylt er þó að geta áranna 1967–1968, en þá féll verð sjávarafurða erlendis og síldarafli brást, en slíkt hefur oft áður borið við. Segja má, þegar litið er yfir þetta 10–12 ára tímabil, að afrakstur af auðlindum þjóðarinnar til lands og sjávar hafi verið miklu meiri en áður. Þó hafa á þessum árum verið gerðar fjórar gengisfellingar hver annarri stærri. Til marks um það, hversu hrikalegar þessar gengisfellingar hafa verið, er það, að 1958 var verð eins Bandaríkjadollars 16.32 kr., en nú er verð dollarsins komið yfir 88 kr. Þessi lækkun á gengi íslenzku krónunnar miðað við Bandaríkjadollar er um 440%. Skyldi nokkur maður vita dæmi um slíka meðferð gjaldmiðils annars staðar í heiminum?

Þetta er fyrsta myndin, sem við blasir, þegar litið er yfir þjóðlífssviðið að liðnum rúmlega áratugs valdaferli þeirrar stjórnar, sem gaf sjálfri sér nafnið viðreisnarstjórn. En það gerði hún í sama tilgangi og þeim, sem vakti fyrir Eiríki rauða, þegar hann gaf hinu gróðursnauða og snævi þakta heimskautslandi nafnið Grænland til þess að menn fýsti fremur þangað að flytja. Hið falska græna viðreisnarnafn ríkisstj. átti að hæna menn að hennar flokkum, en nú sjá væntanlega flestir, þegar 10 ára reynsla liggur fyrir, að ekki er nóg að ganga undir fínu nafni. Mönnum er vonandi farið að skiljast, að hin óða verðbólga, sem hér hefur geisað þennan síðasta áratug, og þær firnaháu skuldir, sem safnazt hafa við aðrar þjóðir, eru ekki sízt afleiðing hinnar glæfralegu meðferðar á gjaldmiðli þjóðarinnar.

Hvernig er svo staða atvinnuveganna eftir allt saman? Ég rifja aðeins örfá atriði upp. Bændum hefur fækkað um mörg hundruð. Sjávarútvegur berst í bökkum þrátt fyrir góðan afla. Togaraútgerð hefur dregizt saman um rúmlega helming. Á síðasta ári fækkaði skipum landsmanna og smálestatala skipastólsins lækkaði. Iðnaðurinn er í klípu og þúsundir manna hafa, samkv. tölum um skráningu atvinnulausra, orðið að draga fram lífið á atvinnuleysisstyrk. Vinnuafl þessa fólks hefur því ekki getað komið að notum fyrir þjóðfélagið og er það tjón ómetið. Þá má ekki gleyma því, sem sorglegast er í sambandi við þessi mál, en það er, að yfir 1800 manns fóru af landi burt á s. l. ári, margir að því er virðist fyrir fullt og allt. Flest er þetta fólk á bezta starfsaldri. Þetta er mikil blóðtaka lítilli þjóð. Fleira mætti nefna, sem kemur inn í þjóðlífsmyndina, sem er viðreisnarstjórninni ekki til vegsauka.

Það er eðlilegt, að menn spyrji, hvernig á því standi, að svona skuli hafa farið í höndum þessara manna, sem setið hafa við stjórnvölinn á þjóðarskútunni. Ekki er það af því, að þeir séu illviljaðir, og ekki er það heldur af því, að þá skorti þekkingu og vitsmuni. Nei, annarra skýringa verður að leita, og skýringin er nokkuð auðsæ. Þetta hefur farið svona af því, að valdhafarnir eru haldnir trú á svokallað „lögmál efnahagslífsins.“ Fyrir því lögmáli telja þeir sig eiga og verða að beygja sig. Það er þeirra trú. Gagnvart náttúruöflunum reyna menn að brynja sig svo vel sem þeir geta og hefur talsvert áunnizt. En valdhafarnir á Íslandi eru svo mjög haldnir trú á eitthvert lögmál, sem gilda á í efnahagslífinu, að þeir vilja ekki reyna að stjórna í andstöðu við þetta ímyndaða lögmál. Þeir telja gengisfellingar eins sjálfsagðar og fellibylji, sem rífa veiku trén upp með rótum og feykja þeim til jarðar. Þjóðin hefur nú reynsluna af því í rúman áratug, hvernig það er að verða að hlíta leiðsögn og stjórn þeirra, sem slíkri trú eru haldnir. Mér dettur ekki annað í hug en að játa, að baráttan við verðbólgu er mjög erfið, en í þeirri baráttu er til mikils að vinna að draga úr og tefja ferð hennar og hver smásigur, sem vinnst, er betri en enginn sigur. Reynslan hefur sýnt það hér, að hinar stórtæku gengisfellingar og háu vextir hafa verkað eins og olía á verðbólgubálið. Flestar þjóðir vilja mikið á sig leggja til að bjarga gjaldeyri sínum frá falli, þegar hann kemst í hættu. En hér hefur fjórum sinnum á 10 árum verið leitað undan straumnum, en ekki á móti, og alþýða manna hefur orðið að taka á sig hverja kjaraskerðinguna á fætur annarri af þeim sökum. Hvað skyldu t. d. margir fjölskyldufeður vera búnir að missa íbúðir sínar og aðrar eignir á nauðungaruppboðum síðustu árin vegna þessara kjaraskerðinga, sem af gengisfellingunum hafa leitt? Aftur hafa þeir vaxið að sama skapi, sem ráð hafa átt á fjármagni og þessar eignir hafa keypt. Þetta er í samræmi við peningalögmálið, sem ríkisstj. trúir á.

Þetta er sú þróun, sem við framsóknarmenn viljum stöðva og teljum hægt að stöðva, ef vilji er fyrir hendi hjá stjórnvöldum. Við teljum, að framar öllu beri að styðja og efla undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar og hjálpa nýjum atvinnugreinum að þróast og ná fótfestu. Ríkisvaldið þarf að styðja að eðlilegri dreifingu atvinnutækja um byggðarlög landsins og veita fjármagni til þeirra með sanngjörnum hætti. Þannig verður bezt lögð undirstaða að fjárhagslegri velmegun lands og lýðs. Það er talið, að Íslendingar séu meðal þeirra þjóða, sem hæstar eru að þjóðartekjum miðað við mannfjölda. Sé það rétt, ættu þeir að geta búið við traustan efnahag og almenna velmegun. Það fer hins vegar ekki fram hjá þeim, sem sjáandi eru, að lífskjör fólks hér á landi eru mjög misjöfn og margir eru bláfátækir. Í landi, sem hefur háar þjóðartekjur miðað við mannfjölda og engan herkostnað, þar hlýtur að vera hægt að útvega öllum atvinnu, útrýma fátækt og veita þeim, sem vilja menntast, allgóða aðstöðu til þess. Þetta krefst þess að vísu, að stjórnað sé með slíkt markmið fyrir augum, að föstu skipulagi sé komið á í þjóðarbúskapnum og náð verði sem víðtækustu samstarfi stjórnmálaflokka um löggjafarmál, er taka til þessara höfuðviðfangsefna.

Ég vil þá víkja nokkrum orðum að landbúnaðarmálum, en sá þáttur í þjóðarbúskapnum er mjög þýðingarmikill. Í fyrsta lagi fæðir landbúnaðurinn þjóðina að miklu leyti. Í öðru lagi veitir hann á milli 10 og 20% þjóðarinnar atvinnu, fyrir utan alla þá vinnu, sem hann skapar við verzlun og dreifingu landbúnaðarvara. Þá er einnig mikill iðnaður í sambandi við landbúnaðarvörur og fer vaxandi. Hvernig er nú skilningur valdhafanna gagnvart þörfum þessa elzta atvinnuvegar? Ég nefni nokkur dæmi: Bændur eru látnir borga sérstakan skatt af hinu lága kaupi sínu í lánasjóðinn. Bændur verða að borga miklu hærri vexti af fjárfestingarlánum sínum heldur en stéttarbræður þeirra í nálægum löndum og lánin eru,til miklu skemmri tíma en annars staðar þekkist. Bændur hér eiga engan fastan aðgang að rekstrarlánum. Afurðalán til bænda hér standa næstum í stað að krónutölu, þó að verðbólgan vaxi með hverju ári og þótt framleiðslan hafi aukizt að magni. Hér verða bændur að bíða eftir afurðaverðinu eða hluta af því mánuðum og missirum saman, öfugt við það, sem er í nálægum löndum, þar sem meginhluti verðsins er greiddur við afhendingu framleiðslunnar. Þá bætist það og við, að hér eru rekstrarvörur bænda, eins og t. d. áburðurinn, skattlagðar eins og um lúxusvörur væri að ræða. Má þar nefna, að söluskatturinn af rafmagninu, sem Áburðarverksmiðjan notar, hækkaði verð Kjarnans nú í vor um 170 kr. á hvert tonn, sem þýðir fleiri millj. kr. útgjöld fyrir bændastéttina í heild. Hvað þýðir svo þetta í verðbólgumálunum? Það þýðir, að verð landbúnaðarvara verður að hækka. Það leiðir svo aftur af sér bæði minnkandi neyzlu þessarar hollu fæðu og nýtt og nýtt launaskrið. Síðan getur svo farið við minnkandi neyzlu landbúnaðarvara, að birgðir hlaðist upp. Það getur orsakað, að bændur fái ekki það verð, sem þeir eiga að fá. Ég nefni sem dæmi, að við söluskattshækkunina í vetur minnkaði sala bæði á ostum og smjöri. Á sama tíma og þetta gerist, er hafin í landinu framleiðsla á gervivörum til að keppa við framleiðslu bænda og ryðja henni til hliðar, meðan valdhafar halda enn að sér höndum. Þannig leiðir hvað af öðru og dýrtíðar- og skattahækkunarspólurnar snúast með meiri og meiri hraða. Þessi frammistaða í málum bænda leiðir af sér fækkun þeirra, og þeir, sem gefast upp við búskapinn, bætast í hóp þeirra í bæjum og þorpum, sem þurfa á atvinnu að halda.

Bændum hefur á síðustu árum fækkað um nokkur hundruð. Þó mun stefnan vera sú hjá stjórninni, að þeim fækki enn örar á næstu árum, því að samkv. áætlun eða spá Efnahagsstofnunarinnar er gert ráð fyrir, að bændur verði ekki nema 3700 árið 1980. En nú eru þeir taldir vera um 5000. Þó er því spáð, að þjóðinni muni fjölga um 50 þús. á sama tíma. Bændur eru samkv. opinberum skýrslum alltaf tekjulægstir allra starfsstétta í landinu, og auk þess búa margir þeirra við minni þægindi en fólk í þéttbýli. Ég dáist að seiglu og þrautseigju þess bændafólks, sem bíður og vonar, að sú langþráða stund renni upp, að rafmagnið verði leitt í bæi þess til að veita orku, ljós og yl, en sér þó enn engin merki um, að slíkir draumar geti rætzt í bráð. Nú má ekki lengur bíða með að taka lokasprettinn og ljúka því, sem eftir er. Það hljóta allir að skilja, að óvissan fyrir þá, sem bíða, er orðin óþolandi. Það er mín skoðun, að á öllum byggilegum stöðum landsins eigi að vera aðgangur að rafmagni frá samveitum. Það má eiginlega með sanni segja, að slíkt sé jafnnauðsynlegt fyrir nútímamanninn eins og að hafa vatn og andrúmsloft. Ég álít, að ekki sé meira eftir að gera í þessu efni en svo, að það sé vel hægt fjárhagslega að ljúka því á 3–4 árum, og það verði að gera það.

Minn tími hér í þessum umr. mun nú senn liðinn. Ég vil að lokum segja við þjóðina, að hún má ekki gleyma því, að þótt stundum geti orðið hart árferði hér, þá eigum við gott land, sem áreiðanlega getur veitt öllum landsins börnum allgóð lífskjör, ef fast er sótt til fanga hvort sem er til lands eða sjávar. Þjóðin verður auðvitað að gera miklar kröfur til sjálfrar sín, öðru vísi vegnar engri þjóð vel. Hún verður líka að vera ströng við þá, sem hún felur völdin, hverjir sem þeir eru, og heimta það, að heilbrigð skynsemi ráði gerðum valdhafanna og umhyggja fyrir allra hagsæld. Þjóðin verður að byggja landið allt og leiðarstjarna valdhafanna verður að vera sú, að hagsæld þegnanna sé sem jöfnust. Það er léleg búmennska að misfóðra hjörðina, ofala suma, en hálfsvelta aðra. Slíkt getur endað á sama hátt og í draumi Faraðs, þegar mögru kýrnar tóku sig til og átu þær feitu.