29.04.1970
Sameinað þing: 50. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1477 í B-deild Alþingistíðinda. (2047)
Almennar stjórnmálaumræður
Forseti (BF):
Umr. fer þannig fram í kvöld, að hver flokkur fær 40 mínútna ræðutíma, sem skiptist í 3 umferðir, 15 mínútur í 1. umferð, 15 mínútur í 2. umferð og 10 mínútur í 3. umferð. Röð flokkanna í öllum umferðum verður þannig: Alþb., Sjálfstfl., Alþfl., Samtök frjálslyndra og vinstri manna, Framsfl. Ræðumenn verða: fyrir Alþb.: í fyrstu umferð Eðvarð Sigurðsson, í annarri umferð Geir Gunnarsson, í þriðju umferð Magnús Kjartansson, fyrir Sjálfstfl.: í fyrstu umferð Magnús Jónsson, í annarri umferð Ingólfur Jónsson, í þriðju umferð Jóhann Hafstein, fyrir Alþfl.: í fyrstu umferð Birgir Finnsson, í annarri umferð Unnar Stefánsson, í þriðju umferð Benedikt Gröndal, fyrir Samtök frjálslyndra og vinstri manna: í fyrstu umferð Hannibal Valdimarsson, í annarri umferð Björn Jónsson, í þriðju umferð Hannibal Valdimarsson, fyrir Framsfl.: í fyrstu umferð Eysteinn Jónsson, í annarri umferð Þórarinn Þórarinsson og í þriðju umferð Halldór E. Sigurðsson.
Hefst nú umr., og tekur fyrstur til máls Eðvarð Sigurðsson og talar af hálfu Alþb.