29.04.1970
Sameinað þing: 50. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1503 í B-deild Alþingistíðinda. (2054)
Almennar stjórnmálaumræður
Landbrh. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Góðir áheyrendur. Það er orðin föst venja, að svokallaðar eldhúsdagsumr. fari fram rétt fyrir þinglok. Stjórnarandstaðan notar þá tækifærið og eys úr skálum reiði sinnar, eins og heyra mátti í gærkvöld og aftur nú í kvöld. Gremja og biturleiki hreiðrar um sig meðal stjórnarandstöðunnar, villir henni sýn og kemur í veg fyrir, að hún greini rétt frá röngu. Er raunalegt að þetta skuli koma fyrir tiltölulega gætna menn og ráðsetta, sem oft vilja hafa það sem sannara reynist. Sem betur fer láta hlustendur yfirleitt ekki blekkjast af áróðri og fullyrðingum, sem ekki hafa við rök að styðjast. Árangur stjórnarandstöðunnar af þessum umr. mun verða eins og venjulega, mjög lítill.
Framsóknarmenn tala við ýmis tækifæri um landbúnaðarmál, þótt það sé nú sjaldnar en áður. Hugur þeirra hefur í seinni tíð beinzt að því, sem þeir telja mikilvægara, þ. e. að taka þátt í kapphlaupi Alþb.-manna um hvers konar kröfugerð og yfirboð. Þarf ekki annað en að fletta þskj., sem fyrir liggja frá síðari þingum, og líta í þingtíðindin til að sannfærast um þetta. Hafa margir gætnir menn, sem fylgt hafa Framsfl. að málum, áhyggjur af ábyrgðarleysinu og stefnuleysinu, sem flokkurinn sýnir.
Framsóknarmenn segja, að landbúnaðurinn hafi átt dýrðardaga, þegar þeir fóru með mál landbúnaðarins í ríkisstj. Þeir segja fleira. Eysteinn Jónsson sagði hér áðan: „Allir höfðu verk að vinna 1958.“ En fáir hafa gleymt því, að vegna óðaverðbólgu voru útgerðin og aðrir atvinnuvegir komnir í strand á nóvemberdögum 1958. Þess vegna hrökklaðist vinstri stjórnin frá völdum. Framsóknarmenn höfðu lengi farið með landbúnaðarmálin, áður en þeir gáfust upp við að stjórna þeim ásamt öðrum málum 1958.
Benda má á margt, sem vissulega er til viðvörunar í nútíð og framtíð á þeim valdaferli. Hlutur bænda var oft fyrir borð borinn. Þeir höfðu sérstöðu að því leyti, að afurðaverðinu var haldið niðri, sérstaklega í tíð vinstri stjórnarinnar. Í ársbyrjun 1960 voru útflutningsbætur á búvöru lögfestar, og var það einn þátturinn í því að leiðrétta þær skekkjur, sem framsóknarmenn höfðu innleitt. Einnig var verðgrundvöllur búvöru leiðréttur með þeim árangri, að bændur náðu jafnréttisgrundvelli við launþega árið 1965. Ef kólnandi og versnandi tíðarfar hefði ekki komið til síðustu 3–4 árin, væri hagur bændastéttarinnar nú mjög góður. Vegna bættrar aðstöðu, réttlátara búverðs, aukinnar ræktunar og tækni hefur landbúnaðinum tekizt að standa af sér áfallalítið óþurrka, kal og aðra erfiðleika síðustu árin. En til marks um það, að hagur landbúnaðarins fari batnandi á ný, eru auknar tekjur ársins 1969. Á síðustu 10 árum hefur framleiðsla búvöru aukizt mjög mikið. Ræktun hefur aldrei verið eins mikil og á þessu tímabili. Bændum hefur fækkað nokkuð, en þær jarðir, sem farið hafa í eyði, eru nýttar að fullu. Jarðir, sem eru sæmilega í sveit settar og hafa nægilegt land, byggjast strax og þær koma úr ábúð. Fyrir stuttu var auglýst ein jörð til ábúðar, og þótt komið væri að vordögum komu margir umsækjendur til að líta á jörðina til ábúðar. Þannig hefur áhugi manna fyrir landbúnaði farið vaxandi í seinni tíð, og hefur áróður framsóknarmanna um samdrátt í landbúnaðinum því ekki við rök að styðjast.
Þegar talað er um, að rekstrarvörur landbúnaðarins séu dýrar, þ. á m. áburður, er rétt að geta þess, að rekstrarvörurnar eru tollfrjálsar. Áburðarverksmiðjan er skattlaus. Fóðurbætisverð hefur aldrei verið eins hagstætt og það er nú, miðað við afurðaverð. Tollar af búvélum eru mun lægri nú en þeir voru í stjórnartíð Framsóknar. Fullyrðingar framsóknarmanna um afurðalánin eru fjarstæðukenndar. Þeir halda því fram, að afurðalánin hafi verið óbreytt í 10 ár, sbr. fullyrðingarnar í gærkvöld og við mörg önnur tækifæri. Rekstrar- og afurðalánin hafa stórhækkað, eins og flestir ættu að vita. Afurðalán út á dilkinn voru á s. l. hausti nærri 1200 kr., en fyrir 10 árum 230 kr. Lán út á mjólkurafurðir hafa verið hækkuð í samræmi við þetta. En framsóknarmenn þreytast ekki á að fullyrða, að lánin hafi staðið óbreytt í 10 ár.
Þá ræða framsóknarmenn mikið um skuldasöfnun bænda og erfiðleika bændastéttarinnar. Ég vil ekki gera lítið úr þeim erfiðleikum, sem ýmsir hafa við að stríða, en í heild eru skuldir bænda ekki miklar, miðað við þær framkvæmdir, sem gerðar hafa verið. Í árslok 1967 voru meðalskuldir bænda yfir landið allt 262 þús. kr., og miðað við brúttóeign 1 480 000 kr. Þetta er tekið úr skýrslu, sem samin var af sérstakri n., sem gerði athugun á stöðu landbúnaðarins og efnahag bændastéttarinnar. Skilvísi við Búnaðarbankann hefur aldrei verið betri en við síðustu áramót. Lán við Stofnlánadeild landbúnaðarins og veðdeild Búnaðarbankans eru stærsti hluti af skuldum bænda. Það verður því að telja nokkurn mælikvarða á greiðslugetu þeirra, hvernig skilvísi þeirra er við Búnaðarbankann. Ákveðið er að taka til athugunar, hvort möguleiki er á að létta undir með þeim, sem verst eru settir, og er nú unnið að grg. um það í Búnaðarbankanum.
Nútímalandbúnað þarf að reka á vísindalegum grundvelli. Þess vegna er menntun bændaefna nauðsynleg. Fyrir áratug var lítil aðsókn að bændaskólunum. Þá var talað um það í alvöru, að nægilegt væri að hafa einn bændaskóla, miðað við aðsóknina, sem að skólunum var, Hvanneyrarskóli hafði að jafnaði 60 nemendur, en Hólaskóli nálægt 20. Trú ungra manna á landbúnaðinum eftir framsóknarstjórnina var ekki meiri en það, að einn bændaskóli virtist nægja um það leyti. Nú hefur þetta breytzt. Engum dettur lengur í hug, að nægilegt sé að hafa einn bændaskóla í landinu, auk Garðyrkjuskóla ríkisins. Garðyrkjuskólinn er byggður upp frá grunni og getur hann tekið 30 nemendur. Verið er að endurbyggja Hvanneyrarskólann, sem mun taka 100 nemendur. Miklar byggingarframkvæmdir og lagfæringar hafa einnig átt sér stað á Hólum. Á þessu ári eru 40 nemendur á Hólum og 90 á Hvanneyri, og hefur þó ekki tekizt að taka allar umsóknir til greina. Lög um bændaskóla á Suðurlandi eru frá 1945. Meðan þeir skólar, sem fyrir eru, voru ekki fullsetnir, var ekki grundvöllur fyrir nýjum skólum. Nú er kominn tími til þess að hefjast handa við undirbúning og byggingu þriðja bændaskólans, þrátt fyrir hina miklu stækkun Hvanneyrarskólans. Bændur þurfa að búa sig undir lífsstarfið með því að sækja bændaskóla og læra almenna búfræði. Aðrir, sem verða ráðunautar, rannsóknarmenn og kennarar, þurfa að vera í framhaldsdeild Hvanneyrarskólans. Þegar námi er lokið þar, er æskilegt að fara eitt til tvö ár til framhaldsnáms erlendis. Með þetta í huga hefur ríkisstj. ákveðið, að nemendur úr framhaldsdeild Hvanneyrarskólans njóti sambærilegrar fyrirgreiðslu og aðrir íslenzkir námsmenn erlendis. Fram að þessu hefur sú fyrirgreiðsla verið bundin að mestu við framhaldsnám stúdenta.
Rannsóknir í þágu atvinnuveganna eru mjög mikilvægar og nauðsynlegar. Rannsóknastofnun landbúnaðarins hefur nú fengið bætta aðstöðu, aukið húsnæði og rannsóknartæki. Eru því miklar vonir bundnar við þá stofnun, sem hafa mundi þá samband við ráðunauta, tilraunastöðvar og bændur um land allt. Fjárframlög eru aukin með ári hverju til rannsóknastarfseminnar. Rannsóknastofnun landbúnaðarins fær á þessu ári um 25 millj. kr. til starfsemi sinnar, en hafði aðeins 4 millj. kr. fyrir einum áratug.
Fjármagn hefur verið tryggt til stækkunar Áburðarverksmiðjunnar. Verður öll áburðarframleiðslan 75–80 þús. smálestir árlega. Framleiddur verður algildur blandaður áburður, kornaður Kjarni og kalísaltpétur.
Á þessu þingi hafa verið samþykkt lög um dýralækna, sem miða að því að auka þá þjónustu, sem dýralæknar geta veitt. Eru lögin til mikilla hagsbóta fyrir landbúnaðinn.
Lög um lax- og silungsveiði voru samþykkt á Alþ. í dag. Lögin miða að því að auðvelda fiskrækt og stefna að því, að ár og stöðuvötn verði fyllt af nytjafiski. Stofnaður verður Fiskræktarsjóður, sem kemur til með að standa undir kostnaði við tilraunir, rekstur eldisstöðva, gerð mannvirkja og annað fiskrækt viðkomandi. Eru miklar vonir bundnar við þessi nýju lög.
Nýlokið er við að semja frv. um lífeyrissjóð fyrir bændur. Hefur frv. verið lagt fram á Alþ., en bíður afgreiðslu til haustsins. Með frv. er gert ráð fyrir, að lífeyrissjóður bænda taki til starfa 1. janúar 1971.
Almannatryggingar voru settar í því skyni að fyrirbyggja allar tegundir skorts. Það var vel hugsað og tryggingakerfið hefur vissulega veitt ómetanlega hjálp. Það hefur eigi að síður komið í ljós, að ellilífeyrir er of lágur og eðlilegt er að bæta þar um með greiðslum úr lífeyrissjóðum. Þess vegna þurfa allir landsmenn að eiga aðgang að lífeyrissjóði. Öryrkjar, sem fá jafnháar greiðslur og ellilífeyrinum nemur, þurfa einnig á því að halda að fá viðbótargreiðslur. Sjálfsagt má benda á fleiri tryggingaþega, sem þannig stendur á um.
Til þess að geta haldið uppi öflugu tryggingakerfi og opinberum framkvæmdum þurfa atvinnuvegirnir að geta starfað með blóma. Atvinnuvegirnir hafa oft og tíðum verið reknir með halla, og má minna á verðfallið, sem varð á útflutningsvörunni 1967 og 1968, og aflatregðuna, sem varð því samfara. Það var mikið áfall fyrir þjóðarbúskapinn að missa á tveimur árum nær helming útflutningsteknanna. Þá var þjóðin að glíma við verstu efnahagsörðugleika, sem nokkur þjóð hefur átt við að stríða á friðartímum. Sá prúði maður, Eðvarð Sigurðsson, var óvenjulega ófyrirleitinn hér í kvöld. Hann sagði, að stjórnarliðið bæri ábyrgð á tekjumissi almennings, þegar útflutningstekjurnar lækkuðu um helming vegna aflatregðu og verðlækkunar á útflutningsvörunni. Með þessum ummælum gerði hv. þm. ræðu sína marklausa. Það var mikil hjálp í því, að þjóðin hafði safnað gjaldeyrisvarasjóði, meðan sæmilega áraði, en það, sem mestu máli skipti, var, að ríkisstj. beitti sér fyrir nauðsynlegum aðgerðum til þess að mæta erfiðleikunum og sigrast á þeim. Gjaldeyrisvarasjóðurinn eyddist til þess, af eðlilegum ástæðum, að koma í veg fyrir að almenningur fyndi eins tilfinnanlega til örðugleikanna og orðið hefði, ef varasjóðurinn hefði ekki verið fyrir hendi. Almenningur tók ráðstöfunum ríkisstj. skynsamlega og gerði sér fulla grein fyrir nauðsyn þeirra. Stjórnarandstaðan á Alþ. hafði lítið fyrir sitt erfiði, sem var fólgið í því að gera lítið úr erfiðleikunum og telja launþegum trú um, að ekki væri nauðsynlegt að stilla kröfum í hóf og gera sérstakar ráðstafanir í efnahagsmálum. Ýmsir gera sér grein fyrir því, hversu þýðingarmikið það er fyrir velferð þjóðarinnar í nútíð og framtíð, að við erfiðleikunum var brugðizt af manndómi og festu. Flestir, sem um þessi mál hugsa, vita, að illa hefði farið, ef ríkisstj. hefði flúið af hólmi, þegar mest reið á, í stað þess að gera viðeigandi ráðstafanir.
Sem betur fer er nú erfiðleikatíminn liðinn. Nýr gjaldeyrisvarasjóður hefur myndazt og er nú orðinn 2500 millj. kr. Atvinna hefur aukizt. Atvinnuleysi verður útrýmt. Þeir, sem fóru af landi burt í atvinnuleit, munu flestir koma heim aftur reynslunni ríkari. En sumir þeirra hafa ekki farareyri. Er nú komin fram till. á Alþ. um að veita aðstoð víð heimflutninginn.
Núverandi ríkisstj. hefur unnið að því að skapa traustan grundvöll fyrir fjölþættu atvinnulífi. Atvinnujöfnunarsjóður er stórt spor í þá átt. Verkefni sjóðsins er að lána fé til atvinnuuppbyggingar um land allt. Megintekjur atvinnujöfnunarsjóðs koma frá álverksmiðjunni og geta orðið árlega um 100 millj. kr. — Stjórnarandstæðingar segjast vilja uppbyggingu atvinnulífsins, en þeir sáu sér ekki fært að styðja stórvirkjun í Þjórsá og álverksmiðjuna í Straumsvík. — Þá er iðnþróunarsjóðurinn, 1250 millj. kr., sem einnig verður notaður til atvinnuuppbyggingar. Iðnþróunarsjóðurinn er til kominn vegna EFTA-aðildar Íslands. Ekki sáu stjórnarandstæðingar sér fært að greiða atkvæði með því, frekar en mörgu öðru, sem til hagsbóta og uppbyggingar horfir. Er það út af fyrir sig mikil raunasaga, að annar stærsti stjórnmálaflokkur landsins situr ýmist hjá eða greiðir atkvæði á móti mikilvægum hagsmunamálum þjóðarinnar. Frv. um Fjárfestingarfélag Íslands hefur nýlega orðið að lögum. Hlutverk þess er að lána til atvinnuuppbyggingar og stuðla að auknum framkvæmdum í landinu. Þessar þrjár stofnanir munu verða mikill aflgjafi í íslenzku atvinnulífi. Með tilkomu þeirra ásamt öðrum lánastofnunum er fenginn möguleiki til stóraukinnar uppbyggingar atvinnulífsins og útrýmingar atvinnuleysis í landinu.
Þeir, sem skoða málin í réttu ljósi, munu sannfærast um, að rétt er stefnt í efnahags- og atvinnumálum. Nú ríður á að halda í horfinu og eyðileggja ekki það, sem áunnizt hefur.
Í næsta mánuði renna út kaup- og kjarasamningar. Ríður mikið á, að vel takist um lausn þeirra og ekki verði stofnað til verkfalla og vandræða, eins og oft hefur átt sér stað. Hagur þjóðarbúsins hefur batnað og þjóðartekjurnar aukizt. Það er því ekkert efamál, að almenningur á að njóta þess. Nú er tækifæri til þess að fá raunhæfar kjarabætur. En til þess að svo megi verða, þarf að reikna út, hversu miklar kauphækkanir atvinnuvegirnir geta tekið á sig. Dagsbrún og fleiri verkalýðsfélög hafa gert kröfu um 25% kauphækkun. Hér skal enginn dómur á það lagður, hvað sanngjarnt er í þessu efni eða hversu miklar kauphækkanir efnahagskerfið þolir. Það er hagur launþega og alls almennings, að ekki verði gengið lengra í kröfum á hendur atvinnuvegunum en gjaldgeta þeirra leyfir. Kjarabæturnar verða ekki raunhæfari, þótt kauphækkunin verði mikil í krónum, ef atvinnuvegirnir verða reknir með halla og ríkissjóður þarf með einum eða öðrum hætti að leggja þeim til fé. Þá er hætt við, að mestur hluti kauphækkananna verði aftur tekinn af almenningi í einu eða öðru formi, eins og gert var á mjög áberandi hátt, þegar hinir svokölluðu verkalýðsflokkar og Framsfl. voru saman í ríkisstj. Farsæla lausn í kaupgjaldsmálunum mætti fá með því að skipa hlutlausan dóm, sem báðir aðilar, vinnuveitendur og launþegar, kæmu sér saman um að tilnefna í og hétu því fyrirfram að hlíta úrskurði hans. Dómurinn þarf að vera þannig skipaður, að hann megi njóta fyllsta trausts bæði launþega og vinnuveitenda, líkt og Hæstiréttur Íslands. Með þessu móti væri nokkurn veginn öruggt, að þær kauphækkanir, sem launþegar fengju, mættu vera raunverulegar kjarabætur og til þess að auka kaupmátt teknanna. Það er auðvitað reikningsdæmi, sem nauðsynlegt er að reiknað sé rétt, hversu mikil kauphækkunin má vera, án þess að til þess komi, að atvinnuvegirnir leiti á náðir ríkisstj. eftir styrkjum, sem síðar kalla eftir skattlagningu á almenning.
Ef þjóðin ber gæfu til þess að leysa kaupgjaldsmálin báðum í hag með eðlilegum hætti, þá er enginn vafi á, að lífskjörin munu batna mikið á þessu ári. Kaupmáttur launanna mun aukast og þjóðin í heild njóta þess, að árferði hefur batnað. Við skulum vona, að vel og farsællega verði að því unnið að leysa vandann með hagsmuni allrar þjóðarinnar fyrir augum. Þarf þá engu að kvíða um framtíðina. — Góða nótt.