19.03.1970
Sameinað þing: 40. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1566 í B-deild Alþingistíðinda. (2068)

Utanríkismál

Forseti (BF):

Forseti vill leiðrétta eitt atriði í ræðu hv. 1. þm. Norðurl. v. Það er, að hv. 4. þm. Reykv. er ekki fyrsti maður á mælendaskrá, heldur er það hv. 5. þm. Reykn. En ég mun, vegna þessara ákveðnu andmæla gegn því, að umr. verði frestað, hafa þann hátt á, að ég mun slíta þessum fundi, og boða til nýs fundar, þegar að honum loknum, og verður þá tekin á dagskrá skýrsla utanrrh. um utanríkismál og umr. um hana haldið áfram.