10.04.1970
Sameinað þing: 44. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1594 í B-deild Alþingistíðinda. (2073)
Utanríkismál
Birgir Kjaran:
Herra forseti. Í sjálfu sér er frá hendi stuðningsmanna núv. ríkisstj. efnislega ekki miklu að bæta við ýtarlega ræðu, sem hæstv. utanrrh. flutti hér á Alþingi fyrir fáum dögum. Það er of sjaldan, sem málefnaflokkar eru raktir hér í þingsölunum, sögulega og málefnalega, jafngagngert og raun varð á að þessu sinni, enda utanríkismálin þann veg vaxin, að þau geta gefið þeim, sem með þau fara, breiðari vettvang en sum þrengri verksvið, þótt mikilvæg kunni að vera. Án þess að spónn sé úr hans aski eða annarra tekinn, tel ég þó, að sögunni séu ekki rétt skil gerð, án þess að stefnumarkandi áhrifa Sjálfstfl. og forystumanna hans á íslenzk utanríkismál sé að nokkru getið. Og vona ég, að það verði ekki til metings talið, heldur aðeins upprifjan staðreynda, sem gjarnan má minnast.
Fyrst mun ég þó aðeins í fáum orðum rekja þær skipulagsbreytingar, sem orðið hafa á meðferð utanríkismála okkar á liðnum áratugum. Í sambandslögunum frá 1918 var ákvæði um, að Danir færu áfram með utanríkismál Íslands, og féll það í hlut forsrh. að hafa viðskipti við danska utanrrn. um þau efni, þar eð forsrh. hafði ekki fyrst í stað neina sérskrifstofu, en gegndi jafnframt stjórnarforsæti dóms- og kirkjumála. Utanríkismálin voru fyrst í stað ekki umsvifamikil og fólust fyrst og fremst í bréfaskriftum og skeytasendingum til danska utanrrn. til afgreiðslu í þessu rn. Þegar skipting starfa var ákveðin milli ráðh. 1924, var það lögformlega staðfest, að utanríkismálin skyldu heyra til embætti forsrh., og var sá háttur hafður á um alllanga hríð, eða allt til ársins 1938, þegar utanríkismálin voru skilin frá störfum þeim, er fylgja forsrh.-embættinu. Aðdragandi þessa máls var m. a. sá, að alllöngu áður, eða árið 1928, hafði Alþ. samþ., að kosin skyldi í Sþ. fastanefnd, er nefndist utanrmn., og var ætlunarverk hennar að ræða og taka til meðferðar öll meiri háttar utanríkismál, sem að garði kynni að bera. Árið 1937 var svo af hálfu þáverandi stjórnarflokka borin fram þáltill. um að skora á ríkisstj. að undirbúa í samráði við utanrmn. skipulag á meðferð utanríkismála, innanlands og utan, sem bezt kynni að henta Íslendingum, er þeir tækju alla stjórn þessara mála í eigin hendur. Einn af flm. þessarar till. var einmitt núv. utanrrh., Emil Jónsson. Í grg., er fylgdi till., segir m. a. svo, með leyfi hæstv. forseta:
„Ákvörðun verður að gera um, á hvaða stöðum erlendis þarf að hafa íslenzka sendimenn og ræðismenn, og hvernig verði á öðrum stöðum tryggt, að umboðsmenn verði fyrir íslenzka ríkið, sem annist nauðsynleg sendisveitar- og ræðismannsstörf. Þá þarf og að skipa málum þessum heima fyrir með sérstakri stjórnardeild og til allra þessara starfa að sjá fyrir hæfum mönnum í tíma og þó þannig, að nauðsynlegs sparnaðar verði gætt í hvívetna.“
Tillaga þessi var samþykkt dálítið breytt að orðalagi, þannig: „Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa nú þegar í samráði við utanrmn. þá tilhögun utanríkismála, innanlands og utan, sem bezt kann að henta, er Íslendingar neyta uppsagnarákvæðis sambandslaganna og taka alla meðferð mála sinna í eigin hendur.“
Smám saman urðu viðfangsefni íslenzkra utanríkismála viðameiri og urðu þau sérstök deild í forsrn., en þegar heimsstyrjöldin síðari brauzt út, varð snögglega mikil breyting á viðfangsefnum og störfum deildarinnar, einkum eftir að Danmörk var hernumin 9. apríl 1940, því þá var Dönum gert ókleift að fara lengur með utanríkismál Íslendinga. Daginn eftir, eða aðfaranótt 10. apríl 1940, samþ. Alþ. þáltill. um, að Ísland skyldi taka meðferð utanríkismála í sínar hendur. Vil ég leyfa mér hér að leiðrétta þá missögn, sem fram kom hjá fyrra ræðumanni, að þetta hafi verið í maí, en það eru einmitt í dag rétt 30 ár síðan þetta skeði. Á grundvelli þessarar þáltill. voru síðan gefin út brbl. 8. júlí 1940 um utanríkisþjónustu erlendis, og eftir útgáfu brbl. var hætt að nefna skrifstofuna utanríkismáladeild og tekið upp nafnið utanrrn. Brbl. voru lögð fyrir Alþ. 1941 og gerðar á þeim nokkrar orðalagsbreytingar til þess að gera ákvæðin skýrari, og í 1. gr. þessara laga segir svo: „Með utanríkismál Íslands fer sérstakt rn. í Reykjavík, er nefnist utanríkisráðuneytið.“ Síðan utanrrn. var stofnað, hefur störfum þess að líkum fjölgað mjög og þau vaxið, sérstaklega jukust þau mjög á ófriðarárunum, m. a. vegna veru setuliðsins hér á landi og margháttaðra vandamála og skipta við það. Þá komu og til sögunnar eftir stríðslok fjölmargar alþjóðastofnanir, sem Íslandi var nauðsyn ýmist að eiga aðild að eða að fylgjast með störfum þeirra vegna hagsmuna landsins. Má þar m. a. nefna Sameinuðu þjóðirnar, Atlantshafsbandalagið, Efnahags- og framfarastofnunina í París, Evrópuráðið o. fl. Þá tók og baráttan fyrir útfærslu fiskveiðilandhelginnar og allar þær ráðstefnur og fundir, sem voru því máli samfara, drjúgan starfstíma utanríkisþjónustunnar. Síðar hefur komið í hlut utanrrn. að fjalla um þau mál, sem lúta að veru varnarliðsins í landinu, og viðskiptasamningar hafa auðvitað jafnan verið snar þáttur í störfum þess. Þó má segja, að sú hlið málsins hafi fremur farið minnkandi, einkum eftir að viðskipti urðu frjálsari milli þjóða og með tilkomu viðskmrn. og Efnahagsmálastofnunarinnar. Hins vegar hefur nauðsyn upplýsingaþjónustu rn. farið stöðugt vaxandi, og alltaf kunna störf við að gæta hagsmuna íslenzkra ríkisborgara erlendis að reynast nokkuð tímafrek, þótt þau séu kannske ekki öll stórvaxin á alþjóðamælikvarða. Utanríkisþjónustan og kostnaður af henni hefur því eðlilega vaxið töluvert, en að mínu viti alls ekki óeðlilega.
Nú er skipan utanríkisþjónustunnar í stórum dráttum með þessum hætti: Ísland hefur nú sendiráð í 9 höfuðborgum og auk þess fasta skrifstofu í New York vegna aðildar að Sameinuðu þjóðunum og í Genf vegna aðildar að EFTA og öðrum alþjóðastofnunum, sem þar hafa höfuðstöðvar. Allir sendiherrarnir eru sendiherrar í fleiri en einu landi og ýmsir eru jafnframt fastafulltrúar hjá alþjóðastofnunum, auk Sameinuðu þjóðanna og EFTA má t. d. nefna NATO, Evrópuráðið og OECD, UNESCO og Efnahagsbandalag Evrópu. Alls hefur Ísland formlega stjórnmálasamband við nær 40 lönd. Skv. fjárl. fyrir 1970 er gert ráð fyrir, að utanríkisþjónustan kosti tæpar 129 millj. kr., þar af eru 30 millj. kr. framlög til alþjóðastofnana. Þetta mun nema nálega 1.6% af ríkisútgjöldum og skiptist þannig: yfirstjórn 0.2%, löggæzla Keflavíkurflugvallar 0.3%, sendiráðin 0.7%, alþjóðastofnanir 0.4%, eða samanlagt 1.6% af ríkisútgjöldunum.
Mönnum kann að þykja, að ég hafi ef til vill verið orðmargur um þessa tæknilegu hlið málsins. Hins vegar hef ég ekki verið það að mínu viti að ástæðulausu, sökum þess að mér virðist þess oft gæta, að af ókunnugleika sjái menn ofsjónum yfir því fé, sem ríkið ver til þessara hluta. En að mínu mati er þar sízt of miklu til mikilsverðra mála varið, þótt eitthvað megi vafalaust um starfshætti bæta þar sem annars staðar. Einkum tel ég það mikinn ljóð á, svo sem fyrri ræðumaður gat hér um, að ekki hefur verið lögð meiri áherzla á að skipa sérstaka viðskiptafulltrúa í þeim löndum, sem okkur er mest nauðsyn á að kynna afurðir okkar og útflutningsvarning, og aðra, sem ekki þyrftu endilega að hafa fasta búsetu erlendis, en gætu ferðazt um og unnið að nýrri markaðsöflun. Virðist mér þarna vera um verkefni að ræða, sem nauðsynlegt sé að taka skjótlega föstum tökum og hafa um þau samráð bæði við samtök framleiðenda og útflytjenda almennt.
En víkjum nú frá almennri sögu íslenzkra utanríkismála að afskiptum Sjálfstfl. og stefnumarkmiðum hans í þessum efnum.
Síðan Sjálfstfl. var stofnaður, hafa tveir menn farið með utanríkismál úr hópi hans, Ólafur Thors, skamma stund árið 1942 og síðan á árunum 1944–1947, og Bjarni Benediktsson, árin 1947–1953. Áður höfðu Jón Magnússon, árið 1918, og Jón Þorláksson, 1924–1926, úr Íhaldsflokknum, sem síðar varð annar stofn núverandi Sjálfstfl., farið með þessi mál, jafnframt því sem þeir gegndu stjórnarforsæti. Bjarni Benediktsson forsrh. hefur einna lengst gegnt embætti utanrrh., og það einmitt á þeim tímum, sem mikil breyting varð almennt í alþjóðamálum, nýjar stofnanir settar á fót og ný viðfangsefni og vandamál tekið til meðferðar. Á sínum tíma, eða árið 1949, ritaði hann bækling, er bar titilinn: „Utanríkismál Íslands.“ Þar er að finna mjög raunsætt mat á íslenzkum utanríkismálum, eins og þau blöstu þá við, og raunar margt af því, sem þar er sagt, tímabært enn í dag. Hann hefur mál sitt í þessum bæklingi, með leyfi hæstv. forseta, á þessa leið: „Íslendingar eru óvanir meðferð utanríkismála. Við vorum óviðbúnir að taka einir við meðferð þeirra 10. apríl 1940, þekktum minna til þeirra en ýmsar aðrar þjóðir.“ Þetta segir hann vissulega ekki að ófyrirsynju, því að hann undirstrikar þetta síðar, orðrétt, með leyfi hæstv. forseta: „Utanríkismálin hafa úrslitaþýðingu um velferð þjóðarinnar.“ Og þetta rökstyður hann réttilega með þeirri staðreynd, að „þýðing utanríkismála fyrir allar þjóðir, og þó einkum Íslendinga, hefur mjög aukizt hin síðustu ár. Aukin tækni og vaxandi viðskipti hafa gert þjóðirnar miklu háðari hverja annarri en áður var.“ Þá getur hann og þeirra markmiða, sem keppa beri að, og orðar þau þannig: „Helzta markmið utanríkisstefnu hverrar þjóðar er að tryggja, að hún geti lifað í friði og farsæld í landi sínu, óáreitt af öðrum. Annað höfuðmarkmiðið er að efla menningartengsl og samskipti við aðrar þjóðir og auðvelda sölu afurða landsmanna og öflun nauðsynja annars staðar frá.“ Þá bendir hann og á, að hlutleysi veiti enga vernd í þeim harðhenta heimi, sem við nú lifum í, og því séu varnir landsins nauðsynlegar og samvinna um þær eina úrræðið fyrir þjóðir, sem séu vopnlausar og geti ekki varið sig sjálfar, auk þátttöku í þeim alþjóðasamtökum, sem stuðla vilja að friði og frelsi manna.
Þessi hefur og stefna Sjálfstfl. verið. Þess vegna var Sjálfstfl. fylgjandi inngöngu Íslands í Sameinuðu þjóðirnar á miðju sumri 1946, og var hann raunverulega ekki einn um það, því að 36 þm. greiddu málinu atkv., en aðeins 6 voru á móti, 5 framsóknarmenn og 1 Alþýðuflokksmaður. Þess vegna voru sjálfstæðismenn fylgjandi stofnun og aðild að Atlantshafsbandalaginu, er sá samningur var undirritaður 4. apríl 1949. Þess vegna voru sjálfstæðismenn meðmæltir aðild Íslands að Evrópuráðinu, sem við gengum í í marz 1950. Sjálfstfl. hefur verið fylgjandi sem víðtækastri alþjóðlegri samvinnu og á sem breiðustum grundvelli.
Við sjálfstæðismenn viljum vissulega sem bezta og nánasta samvinnu við nágranna okkar og frændur. Þó mundi ég persónulega ekki telja það númer eitt, eins og hæstv. utanrrh. gerði í ræðu sinni, því að a. m. k. í viðskiptalegum efnum eigum við ekki alltaf sérlega nána samleið með sumum hverra þessara vinaþjóða okkar, þótt menningarlega og pólitískt liggi leiðirnar oftast sama veginn. Ég tel, að við eigum í heild efnahagslega þýðingarmeiri samleið með ýmsum öðrum löndum, ekki sízt í V.-Evrópu og Ameríku, og vil ég þó síður en svo láta pólitíska fordóma standa í vegi fyrir eðlilegum viðskiptum og almennum samskiptum við aðrar þjóðir, sem við aðra stjórnarhætti búa, eins og t. d. ríki A.-Evrópu. Enda þarf fámenn þjóð með einhæfa framleiðslu og atvinnulíf og efnahag, sem byggir að mestu á útflutningi, að eiga vingott við sem flesta, og hennar er ekki að standa í pólitískum ýfingum við aðrar þjóðir, ekki sízt nú þegar okkur liggur hvað mest á skilningi og meðhaldi stórþjóðanna við að fá viðurkenningu á yfirráðum landgrunnsins, sem lengi hefur verið baráttumál sjálfstæðismanna og sem betur fer flestra annarra stjórnmálaflokka, að ég bezt veit, þótt stundum hafi nokkuð borið á milli, hversu áfangarnir skyldu vera stórir að hverju sinni.
Ég hef í þessu máli ekki nennt að eltast við ásakanir og gagnrýni stjórnarandstæðinga í þessum umr., enda býst ég við, að hæstv. utanrrh. verði létt um vik að senda þær til heimahúsanna. Framsóknarmönnum vorkenni ég í þessu máli sem fleirum, því eins og ljóslegast kom fram hjá þeim, sem talaði hér næst á undan mér, er obbi þeirra í þessum efnum í raun og veru í hjarta sínu sammála. Í garð Alþb. skal ég ekki vera með neinar getsakir, enda er líklegt, að skoðanir þeirra á utanríkismálum séu ef til vill jafnmargar og flokksbrotin eru, og það er þeirra mál að glíma við.
Máli mínu vil ég svo ljúka með því að árétta enn einu sinni í sölum þessarar virðulegu stofnunar, Alþingis Íslendinga, stefnu Sjálfstfl., eins og hún var skýrt mörkuð á 18. landsfundi flokksins, en þar var gerð svofelld samþykkt, með leyfi hæstv. forseta:
„Á sviði utanríkismála telur flokkurinn enn sem fyrr, að efla beri samtök hinna Sameinuðu þjóða, þannig að þau verði fær um að standa vörð um heimsfriðinn. Enn fremur ber að efla norræna samvinnu og treysta menningar- og viðskiptatengsl við þessar náskyldu þjóðir. Á sviði viðskiptamála verði að því stefnt, að auka viðskipti Íslendinga við allar þjóðir, sem við þá vilja skipta með okkur hagkvæmum kjörum. Þátttaka Íslands í aðstoð við þróunarlöndin verði aukin, eftir því sem geta þjóðarinnar leyfir á hverjum tíma. Sjálfstfl. telur, að reynslan hafi sannað, að aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu hafi verið nauðsynleg. Flokkurinn telur, að í landinu þurfi að vera viðbúnaður öllu til varnar, ef á það yrði ráðizt. Ber að haga honum á hverjum tíma með hliðsjón af hagsmunum þjóðarinnar og friðarhorfum í heiminum.“
Þessi hefur að mínu viti verið stefna Sjálfstfl., og var nú enn á ný skýlaust mörkuð einmitt á þessum síðasta landsfundi.