10.04.1970
Sameinað þing: 44. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1612 í B-deild Alþingistíðinda. (2079)

Utanríkismál

Utanrrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Mér ber nú sjálfsagt að þakka hv. 6. þm. Reykv. fyrir það, að hann hefur verið svo vinsamlegur, eftir því sem hann segir, að leiðrétta fyrir mig á hverju ári það, sem ég fer rangt með. Ég er bara ekki alveg viss um, að þetta sé rétt, sem hann er að segja um þessa hluti. Það er á vitorði allra manna í heiminum, að það eru tvö kínversk ríki til, þó að það sé ekki formlegt. Þetta er orðhengilsháttur. Það vita allir, að Formósa er út af fyrir sig og Peking-Kína er út af fyrir sig. Menn vita það, hvað sem hv. þm. kann um þetta að segja.

Hv. þm. minntist líka á dvöl hersins, sem nú er í landinu, og vildi láta það koma fram, að á meðan þessi herseta væri hér, væri útilokað, að hér gætu allir orðið sammála um utanríkismál. Ég vildi í því sambandi segja það, að dvöl hersins er í sjálfu sér ekki nema að nokkru leyti utanríkismál. Hún er fyrst og fremst mál Íslands sjálfs um varnir landsins til þess að tryggja sjálfstæði þess og öryggi. Það er það, sem varnarliðið á að gera og gerir. Hann vildi tala um það í heldur léttum tón, að mér skildist, að það hefði verið fenginn Kanadamaður til þess að meta þörf okkar til varna, og það mundi hafa verið heppilegra að fá einhvern annan. Ég geri nú ráð fyrir, að í þessu máli verði sama hvað við gerum. Hv. þm. verður alltaf á móti, því að hann vill fyrst og fremst, að Ísland verði varnarlaust land, sem sé opið fyrir hverri þeirri þjóð, sem vill leggja sig niður við það að taka það af okkur. Ég get ekki skilið annað. En það er hættuleg stefna, hvað sem allri utanríkismálastefnu okkar að öðru leyti líður, sem ég a. m. k. fellst aldrei á.

Hann vildi líka halda því fram og gera jafnvel gys að því, sem ég sagði um það, að það væri að verulegu leyti Atlantshafsbandalaginu að þakka, að friður hefði haldizt í Evrópu. Allar hans teoretísku bollaleggingar um nýlenduþjóðir Evrópu skal ég nú ekki fara út í, en ég er ekki alveg viss um það, að það væri ekkert ríki í Evrópu, sem vildi hugsa sér til hreyfings, ef ekkert Atlantshafsbandalag væri til. Ég er ekki alveg viss um það, og það væri öruggara fyrir okkur að vera við því búnir, að eitthvað slíkt gæti komið fyrir.

Um það, að Bandaríkin séu komin inn í þessa nýlendumynd, sem hann sagði, að væri nú að mestu leyti horfin af gömlu Evrópulöndunum, þá vildi ég bara segja það, að Bandaríkin hafa ekki, það ég veit eða hef getað séð, hugsað sér að stofna til einhverra nýlendna í Evrópu, hvað illt sem hægt er að segja um þau að öðru leyti. — Ég sé svo ekki ástæðu til þess að segja meira út af því, sem hv. þm. sagði hér áðan.