22.01.1970
Neðri deild: 41. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

123. mál, tollskrá o.fl.

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég vil fyrst nota þetta tækifæri til þess að þakka hv. fjhn. þessarar d. og raunar báðum fjhn. þingsins, fyrir það, hve ötullega þær hafa unnið að því, að fara yfir tollskrárfrv., sem er mikill bálkur og eins og hv. frsm. bæði meiri og minni hl. hafa tekið fram, svo mikill bálkur, að það er auðvitað gersamlega útilokað að kryfja það til mergjar í öllum einstökum atriðum. Og ég vil ekki hvað sízt þakka formanni n. í þessari hv. d. fyrir það frumkvæði, sem hann hefur haft um það, að þoka þessu máli áleiðis, og hvernig að þessu hefur verið unnið á jákvæðan hátt.

Ég tel sérstaklega nauðsynlegt, að það komi fram, þó að ég hafi reyndar tekið það fram áður, að ástæðan til þess á sínum tíma, er ég lagði tollskrárfrv. fram, að ég lagði áherzlu á, að reynt yrði að afgreiða það fyrir jól, byggðist ekki á neinni löngun til þess að beita ofríki, heldur eingöngu á því, að það hafði þá verið gert ráð fyrir, að Alþ. kæmi ekki saman fyrr en að afloknum fundi Norðurlandaráðs í febrúar og það lá í augum uppi, að það var gersamlega útilokað, að bíða með afgreiðslu tollskrárinnar til þess tíma. Eftir að ráðið hafði verið, að Alþ. kæmi hins vegar saman snemma í janúarmánuði, eða 12. janúar, eins og niðurstaðan hefur orðið, þá var auðvitað ekkert því til fyrirstöðu, að fresta málinu fram yfir áramót og athuga það nánar og það er rétt, sem á hefur verið bent, að þetta hefur leitt til þess, að á því hafa verið gerðar mjög margar breytingar, að tölunni til hátt á 2. hundrað, — þó að þær að vísu efnislega séu nú ekki svo margar, vegna þess að hér er um að ræða fjölda margar till., sem grípa hver inn í aðra og í þeim eru teknir fyrir stórir flokkar, eins og hv. formaður n. hér vék að, sem snerta mjög mörg tollskrárnúmer, en hins vegar ekki hægt að segja, að það sé verið að gera sjálfstæðar breytingar. Þetta er allt tengt hvað öðru.

Það er þó auðvitað alveg ljóst og hlaut að vera það, að það eru svo mörg álitamál í sambandi við tollskrána, að þó við sætum með hana enn þá í alllangan tíma, þá er engum efa bundið, að það gætu komið fram fjölda margar brtt. til viðbótar. Það má a.m.k. endalaust um það ræða, hvort tiltekin vara, efnivara eða fullunnin vara, á að vera í þessum tollflokki eða ekki. Jafnvel þó að við höldum okkur við EFTA–vörurnar sjálfar, þá hefur það komið á daginn við nánari könnun, að það er ekki enn þá ljóst um allar vörur, hvort þær muni teljast EFTA–vörur eða ekki og það kemur þá til síðar að athuga það, eftir því sem reynslan sýnir okkur, hver niðurstaðan verður í þessum efnum, hvort það þurfi að gera hér frekari brtt. eða ekki. Tollskrárnefnd rn. hefur unnið sleitulaust fyrri hluta janúarmánaðar að athugun á öllum ábendingum, sem fram hafa komið, bæði frá iðnrekendum og öðrum, um nauðsynlegar breytingar og lagfæringar, og það hefur verið gengið til móts við ýmsar af þessum óskum, hvort sem það nú strengilega hefur verið óumflýjanlegt, vegna þeirrar stefnu sem var búið að marka, eða vegna þess að það hefur þótt af öðrum ástæðum sanngjarnt. Það læt ég liggja á milli hluta. Ég tel það enga hneisu fyrir rn. sem slíkt, að þessar brtt. hafa komið fram og tillit hefur verið tekið til þeirra, heldur sýnir það aðeins viðleitni í þá átt, að reyna með öllum hætti að ganga til móts við óskir, sem taldar eru sanngjarnar, en þó að sjálfsögðu innan þess ramma, sem ég veit, að allir hv. þdm. gera sér grein fyrir, að það verður að horfa einnig á þann tekjumissi, sem hér er um að ræða fyrir ríkissjóðinn, ella yrði enn að gera nýjar tekjuöflunarráðstafanir, – sem mér skilst, að öllum hv. þm. sé nú fremur á móti skapi að þurfa að hugsa sér, — jafnvel það að hækka söluskattinn enn meir en hefur verið gerð till. um. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir, að það þurfi að grípa til þeirra úrræða, þó að þær breytingar séu gerðar, sem hér liggja till. um. Rétt er hjá einum hv. ræðumanni, eða hv. frsm. 2. minni hl., að það tekjutap, sem hér af verður, mun geta numið um 30 millj. kr. á ársgrundvelli. Þó er það allt álitamál, sem ekki er þægilegt að gera sér grein fyrir. En a.m.k. eru allar þessar breytingar innan þess ramma, að ég hef ekki séð ástæðu til að gera sérstakar ráðstafanir til tekjuöflunar til þess að mæta þeim. Hitt er rétt, að það hafa komið fram óskir um margar aðrar breytingar, sem eru með þeim hætti, — þó að það megi telja þær vera æskilegar og ánægjulegt, ef hægt væri að framkvæma þær, – að þær hefðu í för með sér svo mikið tekjutap, að það kæmi ekki til neinna mála, að fallast á þær.

Í meginefnum tel ég líka, að frv., eins og það liggur fyrir með þeim breytingum, sem n. hefur gert, horfi allt í þá átt, að það verði staðið við þær yfirlýsingar, sem iðnaðinum hafa verið gefnar fyrst og fremst varðandi tollabreytingar á hráefnum í sambandi við þær tollalækkanir, sem þurfa að verða á innfluttum vörum. Það hefur verið gengið til móts við óskir um lækkanir á hráefnatollum og vélatollum, svo sem umr. hafa snúizt um, enda þótt það sé að vísu svo, að menn hefðu óskað eftir því, að vélatollar yrðu algerlega felldir niður. Það hefur ekki verið talið mögulegt og ég tel það ekki með nokkru móti mögulegt á þessu stigi málsins. Hins vegar var gengið það langt, að upphaflega var gert ráð fyrir að lækka þessa tolla í 10%. En niðurstaðan varð sú, að lækka þá í 7%, til þess að vega upp á móti söluskattshækkuninni, þannig að það á ekki að verða bein hækkun á þessum vélum að neinu leyti af þeirri ástæðu, því að 1/2% gerir þar að sjálfsögðu hvorki til né frá í flestum tilfellum.

Það hefur ekki komið hér fram nein sérstök gagnrýni á þau vinnubrögð, sem hér hafa verið viðhöfð, önnur en sú, að það hefur verið látin í ljós ósk um það eða ábendingar, að það væri æskilegt að taka fleiri atriði tollskrárinnar til meðferðar. Vissulega er það rétt, að það eru margvísleg atriði í henni, sem þörf væri á að endurskoða. Ég vék að því sjálfur í framsöguræðu minni fyrir jólin um tollskrárfrv., að rn. teldi, að það væru ýmis atriði tollskrárinnar, sem þyrfti að taka til athugunar og endurskoðunar. Það hafa á undanförnum árum verið gerðar stórvægilegar endurskoðanir og lagfæringar á tollskránni, sérstaklega með það í huga, að lækka hina óviðunandi háu tolla, sem eru, eins og hér hefur verið bent á, óþekktir í okkar nágrannalöndum og skapa að sjálfsögðu margþætt vandamál. Það er alveg rétt sem hv. frsm. 2. minni hl. sagði, að það væri æskilegt að lækka ýmsa tolla og endurskoða þá um leið tekjuöflunarmál ríkisins í heild. Þetta er það, sem eðlilegt og nauðsynlegt er að gera, og eins og ég sagði, hefur verið gert og verður haldið áfram að vinna að, en getur aldrei gerzt í allt of stórum áföngum í einu. Af því yrði of mikil röskun. En vitanlega er endalaust hægt að deila um það fram og aftur, hvað séu eðlilegir tollar, bæði í meginstefnu og einnig hvaða tollar eigi að vera á einstökum vörutegundum, þó svo að við slepptum þessu EFTA–máli, sem er mál út af fyrir sig, þar sem menn hafa bundið sig við ákveðnar lækkanir. En varðandi aðra flokka, gætum við tekið búsáhöld og ótal margt annað, sem vitanlega væri æskilegt að hafa í lægri tollflokkum, en þar komum við þá aftur inn á þann vanda, hvort það eru þá til eðlilegri leiðir til að afla þess fjár, sem ríkið þarf á að halda hverju sinni. Allt er þetta álitamál og vill nú verða svo, að mönnum sýnist sitt hvað um það, þegar kemur að því, að það þarf að afla þessara tekna.

Varðandi það, sem hv. 2. minni hl. fjhn. gerir hér till. um, að afnema alveg vélatollana, þá hef ég áður vikið að því, að ég tel það með engu móti fært, eins og sakir standa nú, enda ekki sérstök rök fyrir því að afnema þá. Það er hér um að ræða mjög verulega lækkun almennt á vélatollum iðnaðarins, auk þess sem sú heimild er sett inn í tollskrána, sem hefur geysimikla þýðingu, að sé um nýjar framleiðslugreinar að ræða og framleiðslugreinar, sem þurfa að keppa við ótollverndaðan innflutning, þá er heimildarákvæði í tollskránni um að lækka megi tolla af vélum til slíkrar framleiðslu niður í 0%. Hér er vitanlega um mjög þýðingarmikið atriði að ræða, sem er til þess að koma ekki í veg fyrir það, að eðlileg þróun geti orðið í iðnaðinum. Það verður engin sérstök breyting, hvorki hjá landbúnaði né sjávarútvegi, sem gerir ástæðu til þess að fara lengra niður með tolla hjá þessum framleiðslugreinum heldur en er nú í dag. Það er ekkert sérstakt í EFTA–aðildinni, sem leiðir til þess, þó að það megi segja, að það væri æskilegt, að þeir tollar væru ekki til staðar. En þau rök eru ekkert sérstök nú, miðað við það, að það er gert ráð fyrir að lækka tollana þannig, að söluskatturinn hafi ekki áhrif til hækkunar nema að svo litlu leyti, að það getur ekki talizt neitt atriði. Og það var náttúrlega ekki beinlínis hvatning til þess að lýsa yfir samþykki við till. hv. 2. minni hl., þegar hann boðaði það, að ef till. hans núna yrðu samþykktar, mundi hann safna saman nýjum lista fyrir 3. umr., til þess að afnema tolla á enn fleiri vörutegundum. Ég verð að segja, að frá mínum bæjardyrum séð finnst mér það ekki sérlega hvetjandi til þess að samþykkja þessa till. Ég veit hins vegar, að það er hárrétt, sem hv. þm. sagði, að það var auðvitað ástæðulaust að fara í gegnum alla tollskrána og taka upp allar hugsanlegar vélategundir. Þannig voru full rök fyrir því, að hafa þennan lista ekki lengri.

Varðandi það atriði, að hefjast nú handa, eins og gert er ráð fyrir í till. frá hv. 2. minni hl., um það, að stefna að því að afnema alla hráefnatolla nú þegar á næsta þingi, þá tel ég það fjarri lagi. Það er allt annað mál, að við þurfum að halda áfram að gera einhverjar ráðstafanir til að lækka eitthvað hráefnatollana, en ég held, að það væri iðnaðinum ekki til neins sérstaks ávinnings, að fella þá alveg niður. Það verður núna fjögurra ára aðlögunartími að EFTA–aðildinni og að gera núna slíka stökkbreytingu, — sem iðnaðurinn hefur heldur í rauninni alls ekki borið fram neina alvarlega ósk um, að afnema alla tolla, gæti leitt til þess hreinlega, að hér risi upp ýmiss konar iðnaður í skjóli tollverndar, sem hann svo missti eftir nokkur ár. Þannig gæti orðið hér mjög óeðlileg þróun í iðnaðinum, ef of langt væri gengið í þessu efni.

Næstu 4 ár eru vissulega mjög þýðingarmikið aðlögunartímabil fyrir iðnaðinn og það hefur í meginefnum verið gengið inn á óskir iðnaðarins, til þess að gera honum kleift að mæta þessum vanda, sem hér er við að glíma. Það var höfuðósk hans, að fá hráefnistollana lækkaða niður um 50%, sem hefur verið gert, þó að það sé ekki gert í öllum tilfellum, sem enda hefur þá verið samþykkt af iðnaðinum, því í þeim tilfellum þegar vinnsluvirði vöru er ákaflega lítið, þá er auðvitað óeðlilegt að fara með tollalækkunina niður í 50%. Það hefur verið reynt að meta það í hinum ýmsu tilfellum, þó að það geti vel verið, að það hafi eitthvað orðið þar út undan, sem þarf þá að skoða og enda kom í ljós, frá því að frv. var lagt fram, að það voru vissar iðngreinar, sem þótti rétt að taka til sérstakrar athugunar og nefni ég þar t.d. gullsmíðaiðnaðinn. Í sambandi við hann höfðu ekki verið gerðar neinar ráðstafanir í þessa átt. Verð ég þó að segja, að sanngjarnt er að ganga til móts við hann, því þó að framleiðsla hans sé að vísu talin lúxusvara, þá er það engu að síður mjög efnilegur iðnaður hér á landi, sem þar er um að ræða.

Varðandi till. frá hv. 1. minni hl. fjhn. vil ég segja það, sem ég veit, að öllum hv. þdm. og honum raunar líka, hlýtur að vera fullkomlega ljóst, að slíka till. er útilokað að samþykkja. Þátttaka okkar í EFTA byggist að sjálfsögðu á því, að við veitum EFTA–löndunum sérstök fríðindi og það sé gerður munur á tollum frá EFTA–löndum og öðrum löndum. Ef ætti að fara inn á þá braut að fella niður tolla jafnt frá EFTA–löndum og öðrum löndum, þá væri hér um einskisverð hlunnindi að ræða fyrir EFTA–þjóðirnar sem slíkar, en þær veita okkur aftur á móti og því vil ég vekja athygli á, stórkostleg fríðindi umfram alla aðra á þann hátt, að þær fella nú niður alla verndartolla á vörum, sem við flytjum til þeirra landa þegar í stað, þó að við þurfum ekki að lækka okkar tolla nema um 30%. Þetta gera að sjálfsögðu ekki þau lönd, sem eru utan EFTA, þannig að hér væri EFTA þá að veita okkur stórfelld ný fríðindi. En þær þjóðir, sem ekki eru EFTA–þjóðir, mundu þá í staðinn fá að njóta fríðinda frá okkar hendi á sama hátt og EFTA–þjóðirnar gera, enda þótt þær þjóðir gerðu ekkert að sínu leyti til þess að lækka tolla á okkar vörum.

Það er rétt, sem hv. þm. vék að, að menn hafa fullkomlega opin augu fyrir mikilvægi viðskiptanna við bæði austur og vestur, þ.e.a.s. Rússland og Bandaríkin. Varðandi austurviðskiptin er það að segja, að það hefur komið í ljós, að meginhluti þeirra vara, sem við kaupum þaðan, er í mjög lágum tollflokkum, þannig að þær breytingar, sem hér verða, geta ekki haft nein áhrif á þau viðskipti. Sumar þessar innflutningsvörur njóta beinlínis réttinda samkv. tollskránni núna, t.d. timbrið, sem ekki er gerður neinn greinarmunur á, hvort flutt er inn frá EFTA–landi eða ekki. En það er einmitt vara, sem er mjög mikilvæg viðskiptavara frá Austur-Evrópu einnig.

Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að fara að orðlengja frekar um málið og vil ekki fara að efna til neinna umr. um það að öðru leyti, taldi aðeins rétt að láta þessi orð koma fram frá minni hálfu. Það voru fullkomlega áreitnislausar þær ræður sem hv. minnihlutafulltrúar fluttu í málinu og þeir héldu sig efnislega við það, þannig að þær gefa vissulega ekki tilefni til neinna ádeilna á þá. Ég vildi aðeins láta þessi orð mín koma fram sem skoðun á þeim atriðum, sem þar var bent á og ég held, að ættu ekki að þurfa að leiða til neinna deilna. Aðeins er um að ræða mismunandi mat á hlutunum, þar sem sérstaklega er um að ræða, bæði þetta um að fella niður tolla frá öllum löndum, sem ég gat um og hin till., en þar er í rauninni um tvær megin till. að ræða, þ.e. að afnema algerlega vélatollana og ákveða nú á þessu stigi, að hráefnatollarnir skulu allir afnumdir frá næstu áramótum. Enga þessara þriggja till. tel ég mögulegt, eins og öll aðstaða er nú, að samþykkja og tel heldur ekki sérstök rök fyrir, að það sé gert í sambandi við þessa tollskrárbreytingu.