22.01.1970
Neðri deild: 41. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

123. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. 2. minni hl. (Þórarinn Þórarinsson):

Herra forseti. Þessi ræða hæstv. ráðh. gefur ekki tilefni til mikilla aths. Ég held, að það sé mesti misskilningur hjá honum, að staða íslenzks iðnaðar sé þannig í dag, að það mundi hlaupa í hann einhver óeðlilegur ofvöxtur, þó að tollar væru alveg felldir niður af vélum og hráefnum til hans. (Fjmrh.: Ég átti við hráefnið.) Já, hráefni. Jæja, jafnvel þó að tollar af hráefnunum einungis væru felldir niður. Ég held, að staða iðnaðarins sé þannig í dag, að bara til þess að geta staðizt þá lækkun verndartolla, sem verið er að framkvæma með þessu frv., þá þurfi hann á því að halda að hráefnatollarnir séu alveg felldir niður og raunar miklu meiri aðgerðum heldur en það. Iðnaðurinn þarf jafnframt að fá margs konar fyrirgreiðslu í sambandi við lánamál sín og annað þess háttar, t.d. lagfæringar á skattamálum, ef hann á að geta staðizt þessa samkeppni og ef hæstv. ráðh. kynnti sér þessi mál til hlítar, hvernig staða iðnaðarins er í dag, þá mundi hann áreiðanlega komast að raun um, að ekki mundi af því veita, að hráefnatollarnir væru felldir niður. Og ef hann væri iðnrekandi og héldi eins fast á málum við það að tryggja sæmilega afkomu hjá sínu fyrirtæki og hann gerir hjá ríkissjóði, þá er ég viss um það, að hann mundi styðja þá till. okkar, sem hér liggur fyrir, um að fella hráefnatollana niður. Það er sennilega tilgangslaust á þessu stigi að vera að ræða frekar um þetta atriði við hæstv. ráðh. Ég vil aðeins vona það, að hann athugi þessi mál nánar og þá treysti ég svo vel á hans góðu greind, að það líði ekki langur tími, þangað til hann sannfærist um það, að það er réttmætt, sem felst í þessum till. okkar í 2. minni hl. fjhn., um að nauðsynlegt sé fyrir iðnaðinn að fá alveg fellda niður tollana af hráefninu. Það kann að vera, að það sé einstaka iðngrein, sem ber sig það vel, ég skal ekki fullyrða um það almennt, að hún hafi ekki sérstaka þörf fyrir þetta. En ég er viss um, að það gildir hins vegar um meiri hluta iðnfyrirtækjanna, að þau hafa þörf fyrir slíka fyrirgreiðslu.

En það var aðeins eitt atriði til viðbótar því, sem hér hefur borið á góma, sem ég vildi grennslast fyrir um hjá hæstv. ráðh. Og það er það, að upplýst hefur verið í fjhn., að til stæði að leggja framleiðslugjald á vissar iðnaðarvörur, en lækka þá ekki verndartollinn á þeim vörum. Það hefur t.d. sérstaklega í því sambandi verið talað um tvöfalt gler og fleiri glertegundir, sem eru framleiddar hér á landi. Samkv. okkar samkomulagi við EFTA hefði verndartollurinn á þessum vörum átt að lækka um 30%, en hann er látinn standa óbreyttur í tollskránni. Hins vegar sagt, að ríkisstj. sé að undirbúa frv. um framleiðslugjald, sem eigi að leggjast á þessar iðnaðarvörur og það eigi að jafngilda því, sem lækkun verndartollsins mundi nema, ef málið væri afgreitt á þann veg. Mér skilst því, að þetta nýja framleiðslugjald eigi að samsvara 30% lækkun á verndartollinum, þannig að innlend framleiðsla stæði nokkuð svipað að vígi, hvort heldur verndartollurinn væri lækkaður um þessi 30% eða framleiðslugjaldið kæmi í staðinn. Ég held, að hér sé um dálítið vafasama aðferð að ræða og sama reglan eigi að gilda gagnvart öllum. Mér finnst eðlilegt í þessu tilfelli, að EFTA–tollurinn verði lækkaður um 30%. Það hefur verulega þýðingu fyrir byggingariðnaðinn, því að glervaran er nokkuð stór kostnaðarliður í honum. Það mundi ekki gera aðstöðu hinna innlendu fyrirtækja neitt lakari, vegna þess að þau eiga ekki að fá bætta aðstöðu við það, að tollurinn stendur óbreyttur, því þau eiga að greiða framleiðslugjald í staðinn. Ég vil spyrja hæstv. ráðh. að því hvort það sé raunverulega ásetningur ríkisstj. að taka þetta framleiðslugjald upp og hvort það muni ekki verða álitið hyggilegra nú við framhaldsathugun þessa máls í fjhn., að lækka verndartollinn á þessum vörum, en falla í staðinn frá þessu fyrirhugaða framleiðslugjaldi.