22.01.1970
Neðri deild: 40. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1631 í B-deild Alþingistíðinda. (2097)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Ég vil fá að segja aðeins örfá orð til þess að láta í ljós skoðun mína á þessum málum. Loðnan er komin. Hún er nú fyrir Austfjörðum og flotinn liggur tilbúinn að fara á veiðar. Verksmiðjurnar eru tilbúnar að taka á móti og sjóveðrið er komið. Það er þannig ástatt nú í dag. Og hver dagur, sem dregst, að loðnan verði nýtt, hefur í för með sér stórfellt tjón fyrir þjóðarbúið og allan þann fjölda fólks, sem getur haft miklar tekjur af þessari vinnslu, ef vel tekst til um veiðarnar, sem allar líkur eru til að mundi verða. Hér er því mikið í húfi og sannarlega þýðingarmikið, að höfð séu á því hröð handtök að koma þessum málum í lag. Ég vildi alveg sérstaklega benda mönnum á — og hæstv. ríkisstj. — þessi atriði, hve mikið einmitt er nú í húfi og hvað hver dagur er dýr í þessu, því að loðnan bíður ekki. Hún heldur áfram sína leið og það er alveg takmarkaður tími, sem hún heldur sig við ströndina. Það vitum við.

Nú er alveg framúrskarandi gott verð á þessum afurðum og í mörgum þeim plássum, sem mundu fá loðnu til vinnslu, er mjög slæmt atvinnuástand ofan á allt annað, þannig að nú ættu allir að sameinast um að drífa flotann af stað.

Ég vil lýsa stuðningi mínum við þá lausn, að það yrði fallið frá því að taka svona hátt gjald í verðjöfnunarsjóðinn, og útvegsmenn og sjómenn hafa boðið þá miðlun að taka helminginn af því, sem hæstv. ríkisstj. hefur hugsað sér, þ. e. a. s. í staðinn fyrir að taka 22 aura af kg í sjóðinn verði teknir 11 aurar. Þetta finnst mér vera skynsamleg miðlun. Þá er farið af stað með þá merkilegu nýjung að byggja upp verðjöfnunarsjóð, en farið varlega í málið og ekki þannig, að efnt sé til deilna um það í upphafi. Það er afar slæmt fyrir mál eins og þetta, að það byrji með stórdeilum, og mætti komast hjá því, ef farið væri gætilega af stað. En þarna er um mjög viðkvæma hluti að ræða einmitt í sambandi við síldariðnaðinn, eins og hv. 4. þm. Austf. benti á, og stjórn Síldarverksmiðja ríkisins benti á í fyrra, að allur síldariðnaðurinn má kallast vera í rúst efnalega, síldarverksmiðjurnar yfirleitt í greiðsluþroti. Síldarútgerð bátanna hefur einnig gengið mjög illa undanfarið og sjómenn borið skarðan hlut, þannig að það er ekki skynsamlegt að gera ráð fyrir, að það sé hægt að taka stórfé út úr þessum atvinnuvegi nú inn í verðjöfnunarsjóð — eða það sé skynsamlegt að fara geyst af stað í að byggja upp verðjöfnunarsjóð með framlögum úr þessari atvinnugrein, eins og þessi málefni standa núna. Aftur á móti gæti þetta breytzt.

Ég held, að það sé mjög þýðingarmikið að leggja einmitt áherzlu á þessi atriði, að þarna er að mínu viti á ferðinni miðlun, vegna þess að þeir, sem að þessari atvinnugrein standa, sætta sig við, að þrátt fyrir þessa gífurlegu örðugleika síldariðnaðarins og erfiða afkomu bátaflotans og síldarsjómanna undanfarið verði samt sem áður byrjað á því að byggja upp sjóðinn, en bara farið gætilega fyrst. Ég vil einlæglega vona, að hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að fallast á þessa miðlunarleið, sem þarna hefur komið fram, og það verði gert strax, því að hér er mikið í húfi og liggur mikið á. Við, sem ekki stöndum beint í útgerðinni, eigum áreiðanlega margir erfitt með að gera okkur grein fyrir því, hvað það er þýðingarmikið að taka skjótar ákvarðanir einmitt í málum eins og þessum, því að fiskurinn bíður ekki og allra sízt loðnan.