22.01.1970
Neðri deild: 41. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (210)
123. mál, tollskrá o.fl.
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Það var aðeins í tilefni af fsp. hv. þm., sem ég taldi rétt að láta það koma fram, að það mun verða lagt hér fyrir Alþ. frv. til l. um breyt. á núgildandi l. um innlent tollvörugjald eða framleiðslugjald, sem er óumflýjanlegt að leggja fyrir þingið, vegna þess að það er gert ráð fyrir því, að vissar vörutegundir, svo sem gosdrykki, verði leyft að flytja inn. Og af því leiðir, að það þarf að sjálfsögðu að gera ráðstafanir til þess að leggja hliðstæð gjöld á þá vöru, til þess að fara ekki of harkalega með innlendar framleiðslugreinar á þessu sviði. Hver sem framhaldsstefnan verður svo með hin innlendu tollvörugjöld, – sem er nú sannast sagna dálítið vandræðamál allt saman, það tollaform og ætti að breytast með einhverjum hætti, – það skal ég ekki segja um. Það mál er enn þá í athugun í rn. En í sambandi við glerið og e.t.v. eina vörutegund aðra hefur þetta komið til álita og ég get alveg sagt hv. þm., hvernig stendur á því, að það hefur komið til álita að fara þessa leið. Það er eingöngu vegna þess sjóðs, sem hann taldi mig kannske bera meira fyrir brjósti heldur en iðnaðinn, þ.e. ríkissjóðs, vegna þess, að hér er um að ræða stórfellt tekjutap fyrir hann í sambandi við gler. Þetta kom ekki upp fyrr en mjög seint, að gler væri EFTA–vara, og kom í rauninni ekki fram fyrr, en það komu sérstakar kvartanir frá vissum EFTA–löndum um það, að gler ætti að vera þarna með, en hafði ekki verið á EFTA–listanum og ég er a.m.k. ekki á þessu stigi reiðubúinn til þess að fórna þeim tekjum, sem um er að ræða í því efni. Það er rétt, sem hv. þm. sagði, að fyrir iðnaðinn sjálfan kemur það út með mjög svipuðum hætti, hvora leiðina er farið, ef þess er gætt að hafa hlutfallið það sama, hvort sem framleiðslugjald er á lagt eða tollar lækkaðir, en það sem þýðingu hefur að sjálfsögðu er það, að í öðru tilfellinu er ekki um neitt tekjutap að ræða fyrir ríkissjóð, nema síður sé, því við fáum heldur auknar tekjur. En hins vegar er rétt, sem hann einnig sagði, að glerið lækkar þá náttúrlega ekki til kaupenda. Það er annað mál. En ástæðan er sú ein, sem ég gat um, að hér er um að ræða mjög mikið tekjutap og í ofanálag á það tekjutap, sem þegar er orðið í sambandi við fyrirhugaðar breytingar á tollskrárfrv., þá er það miklum vafa bundið, að mögulegt sé að missa þær tekjur, sem þarna er um að ræða. Þess vegna hefur þetta komið til álita, án þess að það sé búið að slá því endanlega föstu, hvaða leið verður farin í þessu efni.