12.12.1969
Efri deild: 25. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1642 í B-deild Alþingistíðinda. (2108)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Jón Árnason:

Herra forseti. Við þessa aths., sem hv. 1. þm. Norðurl. v. hefur borið hér fram varðandi vinnubrögð í sjútvn. og afgreiðslu mála í n., hef ég engar réttmætar afsakanir fram að bera sem formaður þeirrar n. Hins vegar vil ég taka það fram, að ég viðurkenni það, að formanninum ber samt skylda til að kalla saman n. og taka málin til afgreiðslu. Hins vegar er það nú svo, að það eru fleiri í hverri n. heldur en formaðurinn einn, og ég held, að ég upplýsi það rétt, að enginn nm. hefur á þessu tímabili komið að máli við mig að halda fund eða taka fyrir eitt eða neitt af þessum málum, sem hér um ræðir, í n. Ég tek fram aftur, að það er engin afsökun fyrir mig sem formann n. að hafa ekki haldið aðra fundi en þennan fyrsta, en ég tel eigi að síður rétt, að slíkt komi fram, þegar verið er að ræða um afgreiðslu mála í hinum einstöku nefndum. Þess vegna álít ég það sýnilegt, að aths. hv. þm. sé ekki fyrst og fremst byggð á umhyggju hans fyrir því að afgreiða þessi umræddu mál, sú aths., sem hér kemur fram, því að ef hann hefði viljað beita sér fyrir, að einhver sérstök mál hefðu fengizt tekin fyrir, þá var í lófa lagið að hreyfa því við formann, þó að þess ætti ekki að vera þörf, að fundur yrði haldinn til þess að taka fyrir, eins og hv. þm. sagði áðan, taka málin og koma þeim til umsagnar til viðkomandi stofnana, sem málin snerta. Mér finnst því augljóst, að það, sem vakir fyrir hv. þdm. og reyndar kom fram í ræðu hans, það sé ekki, eins og ég sagði áðan, umhyggja fyrir málunum, heldur sé hitt aðalatriðið, eins og hann tók skýrt fram, að það muni vera sérstaklega fylgzt með því, að Ríkisútvarpið skýri ekki aðeins frá þessari umr., sem hér fer fram, heldur orðrétt frá því, sem hv. þm. sagði um afgreiðslu Alþ. á hinum ýmsu málum. Og það kann að vera, að þar hafi hann skýrt hreinskilnislega frá því, sem fyrir honum vakti, þegar hann kom hér inn á Alþ. með þessa aths. utan dagskrár.

Ég sé ekki ástæðu til þess að orðlengja þetta frekar. Ég endurtek það, sem ég sagði í upphafi, að ég hef engar afsakanir, sem réttlætt gætu það, að ég hafi ekki boðað til fundar í sjútvn. til þess að koma þessum málum til afgreiðslu. En ég vil jafnframt, eins og ég hef gert, láta það koma fram, að engir af hv. meðnm. mínum hafa komið að máli við mig á þessu tímabili um það að taka þessi mál fyrir eða vísa þeim til umsagnar hinna einstöku aðila, sem að sjálfsögðu verður gert í þessum tilfellum, eins og jafnan hefur verið gert áður.