15.10.1969
Sameinað þing: 3. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1645 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)
Atvinnuleysi
Lúðvík Jósefsson:
Herra forseti. Um miðjan septembermánuð ritaði framkvæmdastjórn Alþb. hæstv. forsrh. bréf og óskaði eftir því, að Alþ. yrði þá þegar kvatt saman til þess að gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi á komandi vetri. Nokkru áður eða í ágústmánuði höfðu öll stærstu verkalýðsfélögin hér á höfuðborgarsvæðinu efnt til ráðstefnu um horfurnar í atvinnumálum, og þeirri ráðstefnu var síðan fram haldið um miðjan septembermánuð. Það var augljóst, að allir helztu forustumenn verkalýðssamtakanna hér á höfuðborgarsvæðinu voru sammála um það, að útlitið í atvinnumálum væri mjög uggvænlegt og þeir óttuðust mjög mikið atvinnuleysi á komandi vetri, ef ekki yrðu gerðar ráðstafanir til úrbóta fljótlega. Samþykktir þessarar ráðstefnu báru þessa greinilegan vott.
Við höfum í huga, að á s. l. vetri var hér meira og almennara atvinnuleysi víðs vegar á landinu en hafði verið um langan tíma áður. Skráðir atvinnulausir menn voru í kringum 6 þús., þegar atvinnuleysið var mest. Það liggur einnig fyrir, að nokkurt atvinnuleysi hefur verið viðvarandi í allt sumar í ýmsum stærstu kaupstöðum landsins. Skráðir hafa verið atvinnulausir 800–1000 manns yfir sumarmánuðina, og þó er þess að geta, að á þeim tíma hafa farið í atvinnuleit til annarra landa 200–400 iðnaðarmenn, sem ekki gátu fengið nægilega vinnu hér heima. Það er því ofureðlilegt, að allir þeir, sem láta sig atvinnumálin verulegu máli skipta, sæki fast á um það að fá vitneskju um, hvað ríkisstj. hugsar sér að gera til þess að koma í veg fyrir það, að slíkt ástand endurtaki sig, sem varð í þessum efnum á s. l. vetri. Það er að vísu bent á það, að allfjölmennur hópur námsmanna hverfi af vinnumarkaði í haustbyrjun, þegar skólarnir taka til starfa. En á móti því kemur hins vegar það, að það er vitað, að útiframkvæmdir leggjast að talsverðu leyti niður eða þær dragast mikið saman, þegar kemur fram á haust og vetur. Einnig er þess að gæta, að þegar líður fram á haustið leggst algerlega niður sjósókn á smæstu fiskibátunum, trillubátum og smærri fiskibátum, en við þau störf vinna í landinu býsna margir menn, sem síðan koma inn á vinnumarkaðinn, þegar þessu úthaldi þeirra er lokið, enda hefur reynslan jafnan verið sú, að mest hætta hefur verið á atvinnuleysi, þegar dregur fram á vetur.
Það er skoðun okkar Alþb: manna, að hæstv. ríkisstj. hafi ekki í viðbrögðum sínum sýnt það, að hún hafi áttað sig til fulls á því alvarlega vandamáli, sem hér er við að eiga, og hversu mikið það er. Það er greinilegt, að hún hefur verið mjög sein til nauðsynlegra ráðstafana, og síðan hefur það gengið harla seint að fá þau loforð framkvæmd, sem gefin hafa verið til úrbóta. Ég tel, að gott dæmi um þennan seinagang hafi einmitt verið, hvernig hæstv. ríkisstj. hefur brugðið við og hvernig til hefur tekizt með skipabyggingar innanlands. Við Alþb.-menn höfðum flutt hér á þingi till. æ ofan í æ um það, að gerðar yrðu ráðstafanir til þess að koma upp skipulagðri smíði á fiskibátum hér innanlands og nýta þá möguleika, sem hér voru fyrir hendi í þeim efnum. Samtök iðnaðarmanna höfðu gert kröfur um þetta efni, og ýmsir aðrir aðilar hér á Alþ. höfðu tekið undir þessar kröfur og flutt þær hér inn á þing einnig. Ríkisstj. gerði ekkert eða harla lítið til þess að opna fyrir þessa möguleika hvað viðbótarlánsútvegun snerti eða a. m. k. til þess að úr framkvæmdum gæti orðið í þessum efnum. En á s. l. vetri, þegar atvinnuleysið var orðið mest, lofaði ríkisstj. þó að leggja fram fé til þess að hrinda af stað þessum bátasmíðum innanlands. Því var lýst yfir, að 50 millj. kr. af þeim 300 millj., sem atvinnumálanefnd ríkisins átti að hafa til meðferðar til þess að auka við atvinnu í landinu, skyldi varið í þessu skyni. En þó að þessu væri lofað á s. l. vetri, er enn ekki byrjað á neinum framkvæmdum samkv. þessu loforði. Það er fyrst nú um miðjan október, sem opinberir aðilar eru að tilkynna um þær reglur, sem eigi að gilda í þessum efnum í aðalatriðum. En þá liggur að sjálfsögðu fyrir, að skipasmíðastöðvarnar þurfa að láta teikna skipin, sem nú á að byggja, gera áætlanir um það, hvernig að verkinu skuli staðið, fá samþykkt réttra stofnana og yfirvalda innanlands á teikningum og sínum áætlunum og síðan þarf að panta efnið erlendis frá, en það tekur marga mánuði og það er varla mögulegt að atvinna verði við þessar framkvæmdir fyrr en eftir 2–3 mánuði, þó að allvel sé staðið að framkvæmdum. Þetta dæmi sýnir að mínum dómi, hve hér hefur verið unnið að með miklum vettlingatökum.
Það er engu líkara en hæstv. ríkisstj. og þeir, sem hún hefur falið framkvæmd á þessum málum, hafi ekki gert sér grein fyrir því, hve hér er um mikilvæg mál að ræða. Það er skoðun okkar Alþb.-manna, að úr því sem nú er komið megi ekki dragast öllu lengur að gera raunhæfar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi í vetur. Við álítum, að það sé nauðsynlegt, að ríkisstj. taki upp náið samstarf við Alþ. um það, hvernig að þessum málum skuli staðið, við alla flokka hér á þingi, að hún taki einnig upp miklu nánara og virkara samband við verkalýðshreyfinguna en gert hefur verið til þessa, því að það samstarf, sem við hana hefur verið haft í gegnum atvinnumálanefndirnar, er að okkar dómi allsendis ófullnægjandi. Og þá teljum við einnig mjög nauðsynlegt, að ríkisstj. hafi náið samband við forustumenn sveitarstjórnarmála í landinu, en þeir hafa að sjálfsögðu mikinn áhuga á því, hvernig þessum málum vindur fram, og hafa aðstöðu til þess að geta efnt til aukinna atvinnuframkvæmda, ef fjárhagsfyrirgreiðsla er veitt þeim að einhverju leyti.
Ég vil því beina því til hæstv. ríkisstj., að hún bregði nú skjótt við og hlutist til um, að gerðar verði nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi á komandi vetri. Það er till. okkar Alþb.manna, eins og ég hef sagt, að ríkisstj. taki upp samstarf við Alþ. um lausn atvinnumálanna, við alla flokka þingsins, og taki jafnframt upp nánara og virkara samstarf við verkalýðshreyfinguna en gert hefur verið til þessa. Jafnframt leggjum við svo ríka áherzlu á, að það sé haft, eins og ég hef sagt, náið samstarf við forustumenn sveitarstjórnarmála um lausn atvinnumálanna, því að það er enginn vafi á því, að sveitarstjórnirnar geta í mjög mörgum tilfellum efnt til aukinnar atvinnu, ef þeim er veittur eðlilegur fjárhagsstuðningur, sem ég efast ekkert um, að ríkisvaldið getur gert. Ég vil undirstrika, að það er skoðun okkar Alþb.-manna, að eins og nú er komið, megi ekki tapa neinum tíma til þess að gera ráðstafanir. Nú verði að hefjast handa um atvinnuaukningu strax og sjá um, að það, sem samþykkt er, verði undanbragðalaust og tafarlaust framkvæmt. Ég vænti þess, að hæstv. ríkisstj. fallist á það, að nú sé orðið nauðsynlegt að finna úrræði til þess að koma í veg fyrir atvinnuleysi á komandi vetri.