02.02.1970
Efri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1666 í B-deild Alþingistíðinda. (2123)

Ómæld yfirvinna ríkisstarfsmanna

Fjmrh. (Magnús Jónsson):

Herra forseti. Ég hef síður en svo á móti því að svara því, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. spurði hér um, og þykir í rauninni ágætt að fá tækifæri til þess að skýra það mál, sem hér er um að ræða. Ég hef séð þessa klausu í Frjálsri þjóð, sá satt að segja ekki ástæðu til að elta ólar við það, þó að þar sé um að ræða, að í veigamiklum atriðum sé farið skakkt með.

Í blaði með frásögn af þessu, ef ég man rétt, segir, að það sé venja eða hafi verið venja að greiða vissum toppmönnum embættiskerfisins ómælda yfirvinnu árlega, eins og það er orðað. Þetta er ekki rétt. Það hefur komið fyrir, að einstaka yfirmönnum hefur verið greidd yfirvinna eða nokkur uppbót, sem svari því, sem talin hefur verið raunveruleg yfirvinna að mati ráðh. viðkomandi stofnunar, en þetta hefur verið í mjög fáum tilfellum. Og að það sé orðin föst venja, að einhverjir tilteknir embættismenn fái greidda slíka yfirvinnu, er ekki rétt. Og það er metið frá ári til árs. Það er rétt, að nú í ár var nokkrum embættismönnum, ég má ekki nákvæmlega með töluna fara, sem eru forstöðumenn umfangsmikilla ríkisstofnana, greidd viss fjárhæð, við getum kallað það, hvort sem menn vilja láta það heita svo eða ekki, ómælda yfirvinnu, en það er að vísu ekki rétt orðalag, vegna þess að það var fallizt á þetta með því skilyrði einu saman, að viðkomandi ráðh., sem stofnunin heyrði undir, teldi þar málum þannig háttað, að það væri augljóst, að forstöðumaður viðkomandi stofnunar hefði lagt það mikið á sig umfram það, sem eðlilegt væri, og unnið það mikla aukavinnu, að það væri sanngjarnt með hliðsjón af öllum atvikum að bæta það með einhverjum hætti.

Nú kann þetta að orka tvímælis. Það er ekki gert ráð fyrir því í lögum, að menn í vissum launaflokkum og fyrst og fremst forstöðumenn stofnana fái greidda neina yfirvinnu. Það er aftur á móti þannig, eins og öllum hv. þm. er kunnugt, að um marga forstöðumenn hinna þýðingarmestu stofnana ríkisins er það að segja, að þeir hafa miklum mun lægri laun en fjöldinn af þeirra starfsmönnum. Og skal ég þá fyrst og fremst nefna þá, sem eru verkfræðingar að menntun og er samið um eftir allt öðrum launaskala í mörgum tilfellum hjá ríkinu heldur en gildir í þeim launaflokki, sem ætlazt er til að verkfræðingar séu í, þannig að þessir verkfræðingar, sem eru forstöðumenn stofnana, og það eru allt mjög veigamiklar stofnanir, eru launalægstir af þeim verkfræðingum, sem við stofnanirnar vinna. Og þó að ég sé þeirrar skoðunar, að það eigi ekki að vera venja að greiða yfirmönnum stofnana aukavinnu, enda vandmeðfarið, hver á að meta þá aukavinnu, þá verð ég að segja það, og þar tek ég á mig ábyrgðina af, að það hefur verið talið, miðað við allar aðstæður, óverjandi annað í vissum tilfellum en að gera þessum mönnum einhverja úrlausn af þessum ástæðum, eins og atvik öll standa til. Það hefur verið talið, að enda þótt gert sé ráð fyrir því, að þetta sé svo, að þessir menn fái ekki greidda yfirvinnu, þá sé ekki slíkt fortakslaust bann við því, að þeir fái hana, að það verði talið brot hjá ráðh. að fallast á einhverjar slíkar greiðslur.

En það, sem ég legg ríka áherzlu á, um leið og ég viðurkenni það, að þetta hefur átt sér stað í nokkrum tilfellum og það hefur byggzt á mati viðkomandi ráðh. á því, að hér væri um forstöðumenn að ræða, sem tvímælalaust hefðu unnið miklum mun meira en eðlilegum vinnutíma svaraði, þá legg ég á það ríka áherzlu, að hér er ekki meiningin að skapa neina venju, þannig að tilteknir embættismenn geti gengið að því sem vísu að fá greiðslu sem þessa, hvernig sem málum er háttað, heldur verði það metið hverju sinni, alveg nákvæmlega eins og það er metið, hvort ástæða er til almennt að greiða starfsmönnum yfirvinnu eða ekki. Þetta á ekki að verða föst launauppbót að þessu leyti, heldur metið nákvæmlega eftir því, sem atvik standa til hverju sinni, ekki með þeim hætti, eins og hafði tíðkazt í mörgum tilfellum, meðan laun voru mjög lág, það má kannske segja, að þau séu það enn í dag. Í ýmsum stofnunum hafði það þróazt, að mönnum var greidd beinlínis yfirvinna, þó að hún væri ekki unnin. Það hefur verið lögð á það rík áherzla við viðkomandi rn., að hér kæmi ekki til greina nein greiðsla, nema því aðeins að það væri mat rn., að þessi vinna hefði verið af hendi leyst. Hér er um tiltölulega fáa starfsmenn að ræða, en ég skal hins vegar játa það, að vegna þess að það er mjög erfitt um mat á þessu milli einstakra embættismanna, þá er það rétt hjá blaðinu, að þessi upphæð var ákveðin nú 60 þús. kr. fyrir þessa embættismenn. En það, sem er rangt, eins og ég segi, er, að hér hafi myndazt einhver árleg hefð um það, að þetta væri gert. Þetta hefur komið fyrir áður, að hefur verið gert við einstaka starfsmenn, en eins og ég segi, það er algerlega metið frá ári til árs og fer alveg eftir atvikum, hvað hér er um háar upphæðir að ræða.

Það er ekkert vandamál, ef þess verður óskað síðar, að fá upplýsingar um það, hvaða embættismenn hafa fengið launauppbót að þessu leyti, og það er auðvitað mjög villandi, sem birt er þarna, að tilgreina þá starfsmenn sérstaklega, sem tekið er fram í blaðinu. Það eru ýmsir aðrir, sem miklu fremur hefði mátt tilgreina í þessu sambandi. Ég skal taka það fram, að það eru menn eins og póst- og símamálastjóri og vegamálastjóri og vitamálastjóri, sem allir eru verkfræðingar og gegna embættum, sem þannig er ástatt með, að þeir eru launalægstu mennirnir af mönnum með þá menntun í sínum stofnunum, þannig að ég geri ekki ráð fyrir því eða a. m. k. trúi því ekki, að það verði af hv. þm. talið stórlega vítavert, eins og atvik liggja til, að greiða þessum mönnum, sem bera þunga af mjög stórum stofnunum, einhverjar uppbætur, eins og atvikum öllum er háttað.

En sem sagt, um þetta verða menn að hafa sínar skoðanir. En ég sé enga ástæðu til þess að leyna þessu, sem í því hefur gerzt, og er mér því fullkomlega ljúft að svara þessari spurningu frá hv. þm. Hvort það telst nægilegt svar eða ekki, það verður hann að gera upp við sig, en ég er sem sagt reiðubúinn til þess síðar með formlegum hætti, ef þess verður óskað, að gefa um það nánari upplýsingar.