02.02.1970
Efri deild: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1676 í B-deild Alþingistíðinda. (2128)
Ómæld yfirvinna ríkisstarfsmanna
Fjmrh. (Magnús Jónsson):
Herra forseti. Ég er hv. 11. þm. Reykv. alveg sammála um það, að það sé æskilegt, að um öll kjaramál sé samið milli ríkisins og gagnaðila þess, sem lögum samkv. nú er Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Og ég skal taka það fram, að af minni hálfu vil ég gjarnan, að svo sé. Hins vegar veit hv. 11. þm. Reykv. það jafnvel og ég, að það eru viss vandamál, sem nú er við að glíma, sem ég skal ekki út í fara og ég tel ekki rétt að fara að ræða hér, því að kjarasamningamál eru ekki almennt til umr., en voru m. a. orsök þess, að ég taldi heppilegra, þó að ég teldi sjálfsagt að ræða það mál við BSRB, að það væri einhliða ákvörðun af hálfu rn. að breyta vísitölugreiðslunum um síðustu áramót, en ekki formlegir samningar milli rn. og BSRB, og ég tjáði formanni Bandalags starfsmanna ríkis og bæja beinlínis, hvaða ástæða lægi þar til grundvallar. Ég er ekki að segja, að hann hefði verið mér sammála um, að sú ástæða ætti að ráða úrslitum í þessu efni, en ég tel rétt, án þess að ég vilji tilgreina hér, hver ástæðan var, að það voru, ef svo má segja, — það er kannske skakkt að segja herfræðilegar ástæður, en það er við að glíma slík vandamál í sambandi við samningsaðild af hálfu opinberra starfsmanna og viss upplausn, sem þar er um að ræða, sem gerir það að verkum, að það er nokkuð vandasamt að taka á þessum málum núna. Og það var ástæðan til þess, en ekki sú, að ég hefði neina löngun til þess að ganga fram hjá BSRB. Og ég held ekki, að hv. 11. þm. Reykv. geti með sanngirni sagt það, að ég hafi sýnt sérstaka viðleitni í þá átt að vilja ganga á hlut BSRB, meðan ég hef haft með þessi mál að gera. Og nóg um það.
Varðandi svo hitt atriðið í sambandi við forstjórana, þá vil ég aðeins, að það komi skýrt fram, til þess að það bendi ekki til, að það sé um að ræða óafsakanlega vanþekkingu af minni hendi, að vitanlega er mér það mætavel ljóst, að lögformlega á BSRB að hafa samningsaðild fyrir alla opinbera starfsmenn, eins og málum er nú háttað, og einnig fyrir forstjóra ríkisstofnana. Það, sem ég sagði hins vegar í mínu máli og vil endurtaka hér, er það, að þessir forstjórar hafa í rauninni ekkert samband við BSRB og í fjölmörgum greinum geta þeir ekki einu sinni komið þar fram sem aðilar, þeir geta ekki verið meðlimir í þeim félögum, sem starfsfólk í viðkomandi stofnun eru meðlimir í, þannig að raunverulega er það svo, eins og oft hefur verið talað um, að það er spurning, hvort á ekki að taka forstjóra a. m. k. fyrir tilteknar ríkisstofnanir út úr launakerfinu, vegna þess að BSRB hefur enga aðstöðu til þess að fara með samningsaðild fyrir þá, af því að þeir eru alls ekki félagar í BSRB, þó að þannig sé frá málum gengið.
Þetta var það eina, sem ég átti við og tel, að efnislega sé rétt, en ekki hitt, að auðvitað er það hárrétt hjá hv. 11. þm. Reykv., að lögformlega séð, eins og þessum málum öllum er háttað, hefur BSRB samningsaðildina. En bara aðeins að lokum þetta. Við vitum, að samningsaðildarmálin eru mikið vandamál, og ég held, að á þessu stigi sé ekki rétt að fara að efna til mikilla umr. um það. Það er nógu mikið vandamál, hvernig á að leysa þann hnút allan saman.