20.04.1970
Neðri deild: 78. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1681 í B-deild Alþingistíðinda. (2132)

Aðgerðir námsmanna í sendiráði Íslands í Stokkhólmi

Magnús Kjartansson:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. menntmrh. fyrir þessa frásögn hans. Við alþm. erum nú nokkru fróðari um þessa atburði en við vorum áður. Ég veit ekkert um þessa atburði annað en það, sem var hér í hádegisfréttum og hæstv. ráðh. hefur sagt hér áðan. Hins vegar var frá því greint í hádegisfréttum útvarpsins, að námsmennirnir mundu senda frá sér greinargerð eða hefðu þegar gert það og hún mundi verða birt í útvarpinu síðar í dag, en mér virtist sem hæstv. ráðh. hefði ekki fengið hana í hendur enn þá.

Hæstv. ráðh. tók nokkuð mikið upp í sig, fannst mér, af þessu tilefni og notaði tilfinningaorð, talaði um reginósvinnu, alvarlegan blett á heiðri íslenzkra námsmanna erlendis og heiðri Íslands, held ég, að hann hafi sagt. Og hann fór fram á það, að ég tæki þátt í því með sér að harma þessa atburði.

Ég harma það mjög, að íslenzkir námsmenn erlendis hafi talið óhjákvæmilegt að grípa til slíkra ráðstafana til þess að vekja athygli á hinni erfiðu aðstöðu sinni. Ég held, að það hafi ekki farið fram hjá neinum hv. þm., að samþykktum og greinargerðum frá þessum námsmönnum hefur hreinlega rignt yfir okkur seinustu árin, frá því að gengislækkanaskriðan síðasta dundi yfir, þegar gengi erlends gjaldeyris var hækkað um meira en helming. Það ætti að vera á allra vitorði, að þær gengislækkanir skertu mjög stórlega tækifæri námsmanna til þess að stunda nám erlendis. Enda þótt hæstv. ráðh. birti hér tölur um hækkaðar upphæðir úr lánasjóðum og styrktarsjóðum, þá er það engu að síður staðreynd, að almenna reglan hefur verið sú að láta styrki og lán halda sér óbreytt í erlendum gjaldeyri. Það hefur verið almenna reglan. En því, sem á milli ber styrkjanna og lánanna og hins vegar þeirra fjármuna, sem stúdentar ráða yfir, hefur öllu saman verið velt á námsmenn, og það er svo, að verulegur hluti námsmanna hefur kiknað undir þessari byrði eða er að kikna undir henni. Og þetta er fullkomlega alvörumál.

Raunar hefur hæstv. ríkisstj. viðurkennt það sjálf, að þetta sé mikið alvörumál. Fyrir nokkrum árum gerðust þau tíðindi, þegar hæstv. forsrh. kom til Stokkhólms, þá sátu fyrir honum þar íslenzkir námsmenn og þeir greindu honum frá erfiðleikum sínum, og það leiddi til þess, að forsrh. Íslands fór fram á það við sænskstjórnarvöld, að þau legðu fram fé til þess að aðstoða íslenzka námsmenn í Svíþjóð. Ég hef áður vikið að þessum atburði hér í þinginu og sagt, að mér hafi fundizt þarna vera lotið lágt. Við þurfum ekki á þessu að halda. En þetta gerði hæstv. forsrh., og með þessu viðurkenndi hann, að aðstaða íslenzkra námsmanna í Svíþjóð og annars staðar erlendis er ekki sambærileg við þá aðstöðu, sem námsmenn í þessum löndum hafa. Mér er kunnugt um það, að í Svíþjóð er þannig háttað lánum og styrkjum frá opinberum aðilum, að þar er að verða um raunveruleg námslaun að ræða, menn eiga kost á því að fá af opinberu fé þá upphæð, sem þeir þurfa, sem samsvarar umframfjárþörfinni. Ég held, að það sé ekkert vafamál, að að þessu verðum við einnig að stefna. Og við eigum ekki að læsa okkur inni í einhverri hneykslun út af því, að atburðir séu ekki í samræmi við það, sem mönnum kann að finnast viðeigandi. Þessi atburður sýnir, að þarna er um mikið alvörumál að ræða, og við eigum að bregðast þannig við að greiða úr þessum mjög alvarlegu vandkvæðum. Ég tel, að Alþ. ætti ekki að fara heim núna án þess að kynna sér þetta mál til hlítar og án þess að tryggja þá fjármuni, sem til þarf að rétta hlut námsmanna þannig, að svo og svo margir þeirra verði ekki að hætta við nám í miðjum klíðum og hverfa hingað heim. Það er mikið alvörumál og tilfinningamál fyrir ungt fólk, og við skulum ekki undrast, að það gripi til sinna ráðstafana, þegar þannig stendur á.