04.05.1970
Neðri deild: 97. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (2144)
Námslán
Magnús Kjartansson:
Herra forseti. Þegar ég mælti fyrir þeirri till., sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, um sérstaka áætlunargerð um aukningu á fjármagni lánasjóðs íslenzkra námsmanna, þá komst ég svo að orði, að það væri ekki unnt fyrir Alþingi Íslendinga að fjalla um lög um námslán og námsstyrki einvörðungu á þann hátt að framkvæma mjög litla leiðréttingu, hversu sjálfsögð sem hún væri, vegna þess að þetta væri það mikið vandamál, að Alþ. gæti hreinlega ekki farið heim án þess að leggja á ráðin um að leysa það. Við vitum allir alþm., hversu mikil ólga hefur verið meðal námsmanna að undanförnu af þessu tilefni. Og þessi ólga heldur áfram. Við heyrðum það í hádegisfréttum rétt áðan, að stúdentar í Osló bíða nú í sendiráði Íslands þar í borg eftir vitneskju um það, hvað hæstv. ríkisstj. ætlar að gera í þessu máli. Og ég verð að lýsa því, að það er alveg furðulegt, að hæstv. ríkisstj. skyldi stöðva frv. um breyt. á l. um námslán og námsstyrki, vegna þess að þessi mál voru tekin þar á dagskrá í heild, því að það var augljóst, að það var verk ríkisstj. að stöðva það frv.
Sú hugmynd, sem námsmenn hafa borið fram um eflingu lánasjóðsins, er engin nýjung. Þegar þessi lög voru sett 1967, fólst það einmitt í þeim, að tilgangurinn með lánasjóði íslenzkra námsmanna ætti að vera sá að tryggja opinbera aðstoð við námsmenn, sem nægi hverjum námsmanni til að standa straum af árlegum námskostnaði, þegar eðlilegt tillit hefur verið tekið til aðstöðu hans til fjáröflunar. Það er sem sé tilgangur sjóðsins að geta fullnægt þessari þörf námsmanna á Íslandi. Og þegar þetta frv. var lagt fyrir, lýsti hæstv. menntmrh. því sem miklu fagnaðarefni, að þessi lög hefðu verið sett og þetta væri tilgangur þeirra. Síðan hefur það dregizt allt of lengi, að ráðstafanir væru gerðar til þess að breyta þessu almenna orðalagi í áþreifanlegan veruleika. Og hugmyndirnar um það, að þetta verði gert fyrir 1974, eru á engan hátt óraunsæjar og í þeim felst síður en svo nokkur óbilgirni. Hins vegar hefur komið fram af hálfu hæstv. menntmrh. alveg furðuleg óbilgirni, sérstaklega í ræðum hér á hinu háa Alþ. Hann hefur leyft sér að hafa hér uppi mjög ósæmilegan munnsöfnuð og hrokafullan í garð námsmanna, sem hefur borið vott um það, að þessi hæstv. ráðh. hefur engan skilning á þeim mjög svo alvarlegu vandamálum, sem námsmenn eiga nú við að etja. Og þetta tal hæstv. ráðh. er þeim mun alvarlegra, sem það hefur orðið til þess að magna upp hvers konar fólk til þess að hafa í hótunum við námsmenn hér í blöðum og bera fram kröfur um, að þeir verði fangelsaðir eða þeim verði refsað með fjárhagslegum refsiaðgerðum, vegna þess að þeir hafi gripið til ráðstafana, sem menn eru ekki ánægðir með. Slík afstaða sem þarna hefur komið fram er þjóðfélagi okkar til hreinnar minnkunar og það alvarlegasta er, þegar ábyrgir menn eins og hæstv. menntmrh. og raunar hæstv. dómsmrh. beita sér fyrir því að reyna að egna skammsýnt fólk til slíkra ummæla í garð námsmanna.
Ég heyrði það, að hæstv. ráðh. lýsti því enn einu sinni yfir hér áðan, að þessi mál væru til athugunar og yrðu til athugunar. En svona loðin ummæli nægja engan veginn. Það á að vera ákaflega auðvelt fyrir þennan hæstv. ráðh. að lýsa því yfir, að það sé vilji hans, að að þessu verði stefnt og að þessi áætlun verði framkvæmd á 4 árum. Það er engin óbilgirni að fara fram á slíkt. Og ef hæstv. ráðh. lýsir því yfir hér nú úr þessum ræðustól, að ríkisstj. muni gera ráðstafanir til þess, að slík áætlun verði gerð, og leggja fram um það tilteknar till. í haust, þá mundi hann leggja fram skerf til þess að leysa þessi alvarlegu mál.
Fyrst þessi mál hefur hér borið á góma, þá er kannske rétt að minnast á það, að ég lagði hér fram fyrir nokkru fsp. um, hvaða ráðstafanir hæstv. ríkisstj. ætlaði að gera til þess að tryggja sumaratvinnu skólafólks. Það er nú augljóst, að þeirri fsp. verður ekki svarað. En einnig þar er um stórmál að ræða. Þetta hefur verið mikið vandamál á undanförnum sumrum. Það leit mjög ískyggilega út í fyrrasumar. Það rættist betur úr því en menn óttuðust, en engu að síður voru tekjur námsmanna í fyrra miklu lægri en þær þurftu að vera, og einmitt það er ein af ástæðunum fyrir því, hversu hagur námsmanna er bágborinn núna. Þó að þessi fsp. mín liggi ekki formlega fyrir, þá vil ég leyfa mér að mælast til þess við hæstv. ríkisstj., að hún greini frá því hér, hvaða ráðstafanir hún hyggst gera til þess að reyna að tryggja námsmönnum atvinnu í sumar. Það mundi einnig geta stuðlað að því að auðvelda námsmönnum þessa mjög erfiðu efnahagsbaráttu, ef hægt væri að tryggja það, að menn hefðu sæmilegar tekjur fyrir sumaratvinnu sína nú á þessu sumri.