04.05.1970
Neðri deild: 97. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (2150)
Námslán
Menntmrh. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Ég skal með ánægju svara þessum fsp., sem voru efnislegar og ég tel algerlega eðlilegar.
Hv. þm. virðist ekki hafa tekið nógu vel eftir niðurlagi fyrstu ræðu minnar hér áðan, þar sem ég svaraði fsp. um örlög frv. um Hvanneyrarnemendurna, en þar sagði ég orðrétt, — ég vil leyfa mér að lesa það aftur, með leyfi hæstv. forseta:
„Ríkisstj. hefur haft lánamál námsmanna heima og erlendis til gaumgæfilegrar athugunar og er m. a., eins og áður hefur verið skýrt frá, að kanna, hvernig námsaðstoð er hagað í nálægum löndum. Með hliðsjón af niðurstöðum þeirra athugana mun hún taka till. stjórnar lánasjóðsins í fyrrnefndu bréfi til velviljaðrar athugunar við undirbúning næstu fjárlaga.“
Undirbúningur fjárlaga fer fram í sumar, eins og allir vita. Ef ríkisstj. fær till. lánasjóðsstjórnarinnar nógu tímanlega, sem ég hef enga ástæðu til að draga í efa, ég veit, að þær eru í undirbúningi, það fara fram miklar athuganir á vegum stjórnarinnar á þessum málum, — ef þær berast nógu tímanlega, þá mun ríkisstj. taka fyrir sitt leyti ákvarðanir sínar um þetta í sumar á grundvelli þeirra till. Og það á að vera algerlega ástæðulaust að óttast það, að Alþ. samþykki ekki a. m. k. það, sem ríkisstj. kemur til með að leggja fram í fjárlagafrv., sem mun verða fullbúið einhvern tíma síðari hluta sumars. Stjórn lánasjóðsins mun þá að sjálfsögðu verða gert kunnugt um ákvörðun ríkisstj. í þessu efni, þannig að hún geti gert námsmönnum ljóst, hver verða muni fjárhagur lánasjóðsins á árinu 1970, áður en næsta skólaár hefst. Þannig hafa vinnubrögðin yfirleitt verið í þessum efnum á undanförnum árum.
Þá spurði hv. þm. enn fremur, hvort gera mætti ráð fyrir því, að námsaðstoðin mundi aukast. Ég tel mig í raun og veru áður vera búinn að margsvara efnislega séð þessari fsp. Ég vitna til þess, að námsaðstoð hefur aukizt hröðum skrefum á undanförnum árum, og ég reikna tvímælalaust með því, að á þeirri stefnu muni verða áframhald, þannig að námsaðstoðin muni aukast mjög hröðum skrefum a. m. k. jafnhratt á næstu árum og hún hefur gert á undanförnum árum.
Í þessu sambandi er líka rétt að minna á þá hugmynd, sem uppi hefur verið nokkur undanfarin ár, að breyta tilhögun úthlutunarinnar. Eins og allir þm. væntanlega vita, er námsaðstoð úthlutað í tvennu lagi, fyrri úthlutunin nokkru eftir áramót, venjulega í febrúar, og hin síðari síðast að vorinu. Til athugunar hefur verið að breyta þessu þannig, að fyrri úthlutunin fari fram fyrir jól, en síðari úthlutunin eftir jól. Þetta er framkvæmanlegt vegna þess, þó að fjárlög taki ekki gildi fyrr en 1. janúar eins og allir vita, að lánasjóðurinn hefur einnig mikla fyrirgreiðslu hjá bankakerfinu, hefur margar millj. til ráðstöfunar frá því, auk þess sem hann hefur eigin tekjur, og þetta fé gæti verið til ráðstöfunar áður en fjárlög taka formlega gildi. Þessi hugmynd hefur verið til athugunar í rúmt ár. Af ástæðum, sem ég hirði ekki um að greina frá hér, hefur þetta hingað til ekki verið talið framkvæmanlegt, en að loknum vissum athugunum, sem fram hafa farið í sumar, er vel hugsanlegt, að þetta reynist framkvæmanlegt á hausti komanda.