04.05.1970
Neðri deild: 97. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1700 í B-deild Alþingistíðinda. (2151)

Námslán

Þórarinn Þórarinsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svör hans, þó að mér hins vegar þætti þau ekki vera nógu ljós. Fyrri fsp. var sú, hvenær þess mætti vænta, að ríkisstj. gæti sagt eitthvað ákveðið um það, hvað hún mundi gera eða ætlaði sér að gera í málum námsmanna, og það var sama svarið hjá hæstv. ráðh. eins og áður, að þetta yrði allt athugað í sambandi við undirbúning fjárlaga. En það er ákaflega teygjanlegt hugtak. Við vitum það, að í raun og veru er undirbúningur fjárlaga nú þegar hafinn og stendur alveg fram að þeim tíma, sem fjárlagafrv. liggur fyrir, sem er oftast ekki fyrr en seint, í fyrsta lagi seint í september eða þá í byrjun októbermánaðar. Og ef þessi svör geta ekki legið fyrir fyrr en þá, þá er það allt of seint fyrir námsmenn. Eins og hér hefur verið bent á, þurfa þeir eiginlega strax núna í vor að fara að ákveða það, hvort þeir eiga að halda áfram, þeir sem eru byrjaðir á námi, og þeir, sem verða stúdentar í vor, þurfa jafnframt að ákveða það nú í sumar, hvað þeir eiga að gera. Þess vegna er það ekki nægilegt að fá þau svör hjá hæstv. ráðh., að þetta muni verða tekið til athugunar í sambandi við undirbúning fjárlaga, vegna þess að undirbúningur fjárl. stendur allt sumarið. Það, sem þessir menn þurfa að fá, er að fá ákveðna vitneskju frá hæstv. menntmrh. ekki síðar en t. d. 1. júní eða 1. júlí. Þess vegna vil ég enn á ný beina því til hæstv. ráðh., hvort hann muni a. m. k. ekki vilja vinna að því og stuðla að því, að hann geti gefið ákveðin svör fyrir þann tíma. Það væri að sjálfsögðu talsvert annað en að svara með því, að þetta verði látið bíða og tekið upp í sambandi við undirbúning fjárlaga.

Síðari fsp. mín var sú, hvort hæstv. ráðh. reiknaði ekki með því, að námslánin eða námsaðstoðin mundi aukast miðað við það, sem nú er, og ég gat ekki skilið hann öðruvísi en á þá leið, að hann teldi það víst, að það mundi verða einhver aukning á námsaðstoðinni. Og ég er honum þakklátur fyrir það svar. Ég vil hins vegar benda honum á, að það verður að vera meira en einhver lítils háttar aukning, sem þar er um að ræða, vegna þess að hjá fjölmörgum námsmönnum er ástandið þannig, að ef þeir fá ekki verulega aukna aðstoð miðað við það, sem nú er, þá verða þeir að hætta námi. Og ég vænti þess, að hæstv. ráðh. taki tillit til þess.

Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en mér þætti fróðlegt að heyra, hvort hæstv. ráðh. vildi ekki gefa yfirlýsingu um það, að a. m. k. fyrir sitt leyti vildi hann stuðla að því, að einhver ákveðin vitneskja um aukna aðstoð námsmönnum til handa lægi fyrir ekki seinna en t. d. 1. júní eða fyrir 1. júlí. En það vil ég taka undir, sem hæstv. ráðh. sagði, að ríkisstj. má vera viss um það, að allt það, sem hún gerir og stefnir í þá átt að bæta aðstoð námsmanna, verði samþ. á Alþ., svo að hún þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af því.