22.04.1970
Sameinað þing: 46. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1704 í B-deild Alþingistíðinda. (2157)
Starfshættir Alþingis
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að vekja athygli hæstv. forseta og hv. þm. á því, að á dagskrá þessa fundar er 21 mál. Það er talið nú, að þingi muni verða slitið um næstu mánaðamót, og samkv. venju, sem virðist hafa verið ríkjandi á þessu þingi, væri þessi fundur, sem nú er haldinn í dag, næstsíðasti fundur í Sþ., a. m. k. af þeim fundum, sem boðaðir eru til þess að hafa með höndum venjulega meðferð mála. Mér sýnist allt útlit fyrir, að margt mála, sem liggur fyrir Sþ., muni verða óafgreitt og þar á meðal mál, sem borin voru fram snemma á þinginu. Ég vil leyfa mér að láta í ljós þá skoðun, að til þess að gera mögulega hæfilega afgreiðslu mála, a. m. k. þeirra, sem lengst hafa legið fyrir þinginu, þyrfti að halda fleiri fundi og lengri, áður en þinginu lýkur. Ég vil sérstaklega leyfa mér að minnast hér á tvö mál, sem nú eru á dagskránni, það eru 7. og 8. mál. Í báðum þeim till., sem þar er um að ræða, kemur fram viðleitni til þess að bæta úr miklu vandamáli, sem margir eiga við að stríða, og það er læknaskorturinn í strjálbýlinu. Ég er ekki flm. þessara till., en ég á sæti í n., sem hefur afgreitt fyrir nokkuð löngu báðar þessar till., og í röð þingmála er önnur till. 64. mál og hin 69. mál. N. hefur eins og ég sagði áðan, afgreitt frá sér báðar þessar till. einróma eða að mestu leyti einróma, ef ég man rétt. Það stendur þannig á, að formaður þeirrar n., sem í hlut á, er vikinn af þingi, og m. a. af þeirri ástæðu finn ég hvöt hjá mér til þess að minna á þessar till., og ég vil leyfa mér að beina því til hæstv. forseta, að hann hlutist til um það, að þessar till., sem svo lengi eru búnar að liggja fyrir þingi, verði afgreiddar.