23.10.1969
Neðri deild: 5. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í B-deild Alþingistíðinda. (2162)
Þingfréttir í dagblöðum
Þórarinn Þórarinsson:
Herra forseti. Ég hef því miður ekki aðstöðu til þess að kynna mér það, hvað er rétt í þessari aths. hæstv. dómsmrh. Það má vel vera, að þessar tölur, sem hann fer með, séu réttar og það hafi gætt einhvers misskilnings í þeirri frétt, sem var í Tímanum í morgun, og það er alveg sjálfsagt, ef það kemur í ljós, að þar hafi eitthvað verið ranglega farið með tölur, að það verði leiðrétt. En mér heyrðist samt á þeim tölum, sem hæstv. ráðh. nefndi áðan, að það munaði ekki miklu á úthaldsdögum varðskipanna á þessu ári það, sem af er þessu ári, — og frá því, sem var í fyrra á sama tíma, þrátt fyrir það að sú breyting hafi á orðið, að þörfin fyrir landhelgisgæzluna hefur stórkostlega aukizt á þessu ári.
Eins og hv. þm. að sjálfsögðu minnast, þá var leyfi til landhelgisveiða stórkostlega aukið þegar á síðasta þingi, og það kallar að sjálfsögðu á það, ef ekki á að hljótast af því mikill voði, að landhelgisgæzlan verði stórlega aukin frá því, sem verið hefur. En mér virðist á þeim tölum, sem ráðh. nefndi hér, að jafnvel þó að úthaldsdagarnir verði eitthvað fleiri á þessu ári heldur en í fyrra, sé ekki um þá aukningu að ræða, sem þyrfti að vera til þess að mæta þessum aukna ágangi — mæta því, að leyfi til togveiða hafi verið stórkostlega aukin og ekki aðeins aukin, heldur hefur gæzlan verið gerð miklu erfiðari í framkvæmd heldur en áður með því að opna viss svæði. Línan, sem skipin máttu ekki stunda togveiðar innan, var miklu hreinni og beinni áður heldur en nú er orðið, síðan hinir svokölluðu pokar voru teknir upp í sambandi við þá breytingu, sem gerð var á síðasta þingi.
Ég held, að það sé þannig komið þessum málum, að það sé nauðsynlegt að taka störf landhelgisgæzlunnar og skipulag landhelgisgæzlunnar upp til nýrrar athugunar. Verkefnin hafa það mikið breytzt. Og ég hygg, að í þeim efnum mundi t. d. vera hægt að læra verulega af Norðmönnum, en mér er tjáð það, að þeir hagi gæzlu sinni á talsvert annan veg en við gerum. Við leggjum okkar metnað í að byggja stór og mjög hraðskreið skip. Það er t. d. mikill meiningarmunur um það, hvort sú vél, sem var valin í nýjasta varðskip okkar, hafi verið heppilega valin. Hún er sterk og hefur mikla orku. Hraðinn hefur hins vegar ekki aukizt að sama skapi. En hún er ákaflega dýr í rekstri og hefur því miður reynzt stórgölluð, eins og kunnugt er, af því að skipið er búið að liggja hér lengi til viðgerðar. Ég held, að það mál hafi ekki heldur verið nægilega undirbúið á sínum tíma, nægilega kannað þá, í hvaða formi ætti að byggja landhelgisgæzluna upp. En mér er sagt, að Norðmenn hagi henni að verulegu leyti á þann veg, að þeir hafi ákveðin skip til að annast gæzluna á vissum svæðum, en láti ekki sama skipið vera að hringsóla meðfram allri ströndinni. Og það kemur áreiðanlega mjög til athugunar, einmitt síðan sú breyting var gerð á landhelgislínunni, sem gerð var hér á síðasta þingi, að slíkt fyrirkomulag yrði tekið upp hjá okkur, að það yrði t. d. staðsett ákveðið varðskip fyrir Norðurlandi, annað fyrir Austurlandi, Suðurlandi o. s. frv., sem annaðist fasta gæzlu þar, en þessu væri ekki skipt niður á fá, stór skip, eins og nú er gert, þegar við bætist svo, að þessi skip eru oft látin liggja tímum saman.
Það verður að sjálfsögðu aðstaða til þess að ræða þetta mál nánar öðruvísi en í umr. utan dagskrár. En í tilefni af því, sem hæstv. ráðh. gerði sérstaka aths. við, þá vil ég aðeins endurtaka það, að ef það reynist rétt, að í Tímanum hafi verið farið eitthvað rangt með þær tölur, sem hann flutti á Alþ. í gær, þá er sjálfsagt að láta koma fram leiðréttingu á því. En það breytir ekki hinu höfuðatriði málsins, að landhelgisgæzluna þarf að auka stórlega frá því, sem nú er, ef hún á að sinna því hlutverki, sem henni er ætlað, sérstaklega eftir þær breytingar, sem voru gerðar á landhelgislínunni á síðasta þingi.