13.04.1970
Neðri deild: 71. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (2192)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

forseti (MÁM):

Mér hefur borizt svo hljóðandi bréf: „Þar sem Emil Jónsson utanrrh., 3. þm. Reykn., er farinn til útlanda í opinberum erindum og mun því ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér samkv. beiðni hans og með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Ragnar Guðleifsson kennari, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.

Gylfi Þ. Gíslason,

formaður þingflokks Alþýðuflokksins.

Til forseta neðri deildar Alþingis.“

Kjörbréf Ragnars Guðleifssonar kennara, 1. varaþm. Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, hefur áður verið rannsakað og tekur hann því sæti í hv. d. og er boðinn velkominn.