15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (2193)

Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs

Forseti (BF):

Svo hljóðandi bréf hefur borizt: „Guðlaugur Gíslason, 3. þm. Sunnl., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna anna heima fyrir mun ekki geta sótt þingfundi næstu vikur, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og, með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþingis, að óska þess, að vegna forfalla 1. varamanns taki 2. varamaður Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi, séra Jóhann Hlíðar, sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um, að þér látið fram fara í sameinuðu þingi rannsókn á kjörbréfi varamanns.

Matthías Á. Mathiesen,

forseti neðri deildar.

Til forseta sameinaðs Alþingis.“

Fyrir liggur einnig svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 10. apríl 1970.

Vegna sérstakra anna get ég ekki tekið sæti á Alþingi í fjarveru Guðlaugs Gíslasonar, 3. þm. Sunnl.

Ragnar Jónsson.“

Ég leyfi mér að biðja hv. kjörbréfanefnd að taka kjörbréf Jóhanns Hlíðars til rannsóknar. Á meðan verður gert fundarhlé. — [Fundarhlé.]