15.04.1970
Sameinað þing: 45. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1725 í B-deild Alþingistíðinda. (2194)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Pálmi Jónsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur athugað kjörbréf séra Jóhanns S. Hlíðars, 2. varaþm. Sjálfstfl. í Suðurlandskjördæmi. Með tilvísun til þess, að fyrir liggur bréf frá 1. varaþm. flokksins í þessu kjördæmi, Ragnari Jónssyni, þar sem því er lýst, að hann geti ekki vegna anna tekið sæti á Alþ. um þessar mundir, þá leggur n. til, að kjörbréf Jóhanns S. Hlíðars verði samþ. og kosning hans metin gild og seta hans hér á Alþ. samþ. með tilliti til þess.