24.04.1970
Sameinað þing: 47. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1727 í B-deild Alþingistíðinda. (2198)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
Frsm. (Jón Þorsteinsson):
Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað kjörbréf Sigurðar E. Guðmundssonar skrifstofustjóra, sem er 2. varaþm. kjörinna þm. Alþfl. í Reykjavík og ætlað er að taka sæti hér á Alþ. í fjarveru hæstv. sjútvrh., 8. þm. Reykv. En frá 1. varaþm. kjörinna þm. Alþfl. í Reykjavík liggur fyrir bréf um, að hann geti ekki mætt á þingi. N. rannsakaði, eins og áður segir, kjörbréf Sigurðar E. Guðmundssonar skrifstofustjóra, sem út er gefið af yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis 12. júní 1967. N. hafði ekkert við bréfið að athuga og leggur til, að kosning Sigurðar E. Guðmundssonar verði metin gild og kjörbréfið samþ.