03.03.1970
Neðri deild: 54. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1729 í B-deild Alþingistíðinda. (2207)

Kosning forseta neðri deildar

Forseti (MÁM):

Ég vil leyfa mér að þakka það traust, sem mér hefur verið sýnt með því að kjósa mig sem forseta þessarar hv. d. Um leið vil ég láta í ljós óskir um gott samstarf milli mín sem forseta d. og allra hv. þdm. svo og hæstv. ríkisstj.

Þar sem sæti 2. varaforseta hefur við þessa skipan losnað, ber að kjósa 2. varaforseta deildarinnar.

2. varaforseti var kosinn

Gunnar Gíslason, 2. þm. Norðurl. v., með 19 atkv., Björn Pálsson, 3. þm. Norðurl. v., hlaut 1 atkv., en 17 seðlar voru auðir.