19.12.1969
Efri deild: 32. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1732 í B-deild Alþingistíðinda. (2214)
Þinghlé
Ólafur Jóhannesson:
Í nafni þdm. vil ég leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir góð orð og góðar óskir í okkar garð. Jafnframt vil ég, og ég veit að ég mæli þar fyrir munn allra, þakka honum góða og réttláta fundarstjórn og gott samstarf við okkur þdm. á þeim starfstíma, sem af er þessu þingi. Ég vil óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og gleðilegrar hátíðar. Ég vil biðja hv. þdm. að rísa úr sæti og staðfesta þessi orð mín og árnaðaróskir. — [Dm. risu úr sætum.]