19.12.1969
Neðri deild: 35. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1733 í B-deild Alþingistíðinda. (2217)

Þinghlé

Lúðvík Jósefsson:

Ég vil fyrir hönd okkar þdm. þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í okkar garð. Ég þakka honum fyrir gott samstarf við okkur þm. og fyrir góða og réttláta fundarstjórn. Ég flyt hæstv. forseta og fjölskyldu hans óskir um gleðilega jólahátíð og um gott og farsælt komandi ár. Ég vil biðja þm. um að taka undir óskir mínar til forseta með því að rísa úr sætum. — [Dm. risu úr sætum.]