12.01.1970
Sameinað þing: 29. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1734 í B-deild Alþingistíðinda. (2224)

Þinghlé

Forseti (ÓB):

Samkv. forsetabréfi því, sem hæstv. forsrh. hefur nú kunngert, hefjast fundir Alþingis að nýju. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forsrh. fyrir góðar óskir hans í minn garð og hv. alþm., og ég óska honum og þingheimi öllum velfarnaðar á nýbyrjuðu ári.