03.02.1970
Sameinað þing: 35. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1735 í B-deild Alþingistíðinda. (2229)
Þinghlé
Forseti (BF):
Samkvæmt forsetabréfi því, sem hæstv. dómsmrh. hefur lesið, verður fundum Alþ. frestað um skeið. Ég vil leyfa mér að vænta þess, að að loknu þessu hléi á störfum Alþ. megum við öll hittast hér heil á húfi að nýju. Ég vil einnig geta þess, að þrátt fyrir að þetta hlé verður gert á störfum þingsins eru það tilmæli þingforseta, að þingnefndir starfi áður en þing kemur saman að nýju, þannig að það geti þá orðið til þess að greiða fyrir þingstörfum. Væri þá gott að nefndarformenn, sem eiga óleyst verkefni í sínum n., kölluðu saman þingnefndir a. m. k. viku áður en sjálft þingið kemur saman. — Þessum fundi er slitið.