04.05.1970
Efri deild: 92. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 1737 í B-deild Alþingistíðinda. (2234)

Starfslok deilda

Björn Jónsson:

Ég vil leyfa mér fyrir hönd hv. þdm. að þakka hæstv. forseta d. fyrir hlý orð og árnaðaróskir í okkar garð. Ég veit, að ég mæli fyrir munn okkar allra, þegar ég þakka honum réttláta, röggsama og sérstaklega drengilega fundarstjórn og ágætt samstarf á því þingi, sem nú er að ljúka. Ég flyt hæstv. forseta og fjölskyldu hans velfarnaðaróskir okkar allra og læt í ljós ósk um, að við megum hitta hann heilan á húfi að loknu sumarleyfi Alþingis. Ég bið hv. þdm. að rísa á fætur til að staðfesta orð mín. — [Dm. risu úr sætum.]