20.01.1970
Efri deild: 36. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í C-deild Alþingistíðinda. (2265)
18. mál, sveitarstjórnarlög
Frsm. meiri hl. (Björn Fr. Björnsson) :
Herra forseti. Hv. frsm. minni hl. tókst, svo sem vita mátti, þar eð hann er talinn allgóður málflutningsmaður, að gera þokkalega grein fyrir frv. sínu og máli sínu, en hins vegar fannst mér hann seilast nokkuð langt til raka fyrir frv. í bréfi sumra sýslumanna. Ég satt að segja vildi ekki í minni frumræðu leggja það á hv. þdm. að fara að lesa upp þessi bréf, en efni þeirra er mun lengra en frsm. minni hl. las upp, og væri ekki ófróðlegt að lesa nokkur niðurlög þessara bréfa, en ég tel vart ástæðu til þess. Það, sem við segjum í okkar nál. um afstöðu sýslumannanna til þessa frv., hefur alls ekki verið hrakið þrátt fyrir þennan upplestur frsm. minni hl. á bréfum frá sýslumönnunum.
En það, sem skiptir máli, höfuðmáli, að okkar áliti er það, að málefni sýslunefnda þurfa öll að takast fyrir og enn fremur, hvernig haga skuli kjöri til sýslunefnda, ekki sízt þegar farið verður að hrófla við sýsluumdæmum, sem nú má vera, að verði fyrr en síðar. Við í meiri hl. teljum ekki svo brýna nauðsyn að ganga til þessarar breytingar, þegar þannig stendur á, að innan tíðar geta legið fyrir fullrannsökuð málefni sýslunefndanna, þar á meðal kjörbréf til sýslunefndar. Ég veit ekki, hvað hefur knúið hv. flm. til þess að leggja þetta frv. sérstaklega fram núna og krefjast þess, að þetta verði afgreitt án frekari athugunar og sambands við önnur málefni sýslunefnda.
Ég skil það ákaflega vel, að hann sæki sitt mál fast, og það er ákaflega eðlilegt. En það versta við þessar umsagnir er það, að þær koma ekki frá sýslunefndunum. Það hefur engin sýslunefnd í landinu fengið þetta mál til athugunar. Það væri náttúrlega í raun og veru langeðlilegast, að þær fengju á sínum sýslufundum á næsta vori tækifæri að taka þetta mál til yfirvegunar og fá það þar formlega afgreitt. Þess vegna sýnist mér allt bera að sama brunni um það, að það sé engin ástæða til þess að samþykkja þetta frv. núna. Það geti ósköp vel beðið. Þessi ákvæði um kjör í sýslunefndir hafa verið það lengi í gildi, að ég hygg, að það mundi engan, a. m. k. mjög fáa saka, þó að þau héldu svolítið lengur sínu gildi, meðan verið væri að athuga nánar um þessi mál.
Ég tel svo ekki ástæðu af minni hálfu að fjalla frekar um þetta. Þetta mál liggur ákaflega ljóst fyrir öllum hv. þdm., en ég ítreka það, að við í meiri hl. leggjum til, að frv. verði, eins og nú háttar og ástæður eru allar, fellt.