29.01.1970
Efri deild: 42. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í B-deild Alþingistíðinda. (227)

123. mál, tollskrá o.fl.

Frsm. meiri hl. (Sveinn Guðmundsson):

Herra forseti. Á þskj. 294 er fram borið nál. meiri hl. fjhn. um tollskrá o.fl. [ 123. mál Nd.] Eins og getið er um í nál., þá er þetta frv. flutt til samræmis við skuldbindingar, sem leiða af inngöngu í EFTA, svo og til að jafna aðstöðu íslenzks iðnaðar vegna EFTA–aðildar. Inn í frv. hafa svo bætzt önnur atriði, sem breytinga hefur verið þörf á. Fjhn. beggja þd. hafa unnið saman að þessu máli undanfarið og hefur fjhn. Ed. þegar komið sjónarmiðum sínum á framfæri við meðferð málsins í Nd. Tollskrárnefnd hefur í samráði við fjmrn. gengið frá þessu frv. eins og það er prentað á þskj. 167, en brtt. við frv., sem samþ. voru í hv. Nd., eru saman dregnar á þskj. 268 og þskj. 283, en það síðarnefnda liggur nú hér fyrir til umr.

Þegar frv. var lagt fram í Nd., var gengið út frá nær 500 millj. kr. tekjumissi ríkissjóðs á ársgrundvelli, vegna lækkana á svokölluðum verndartollum 245 millj., vegna lækkana á hráefnum og vélum 180 millj., vegna lækkana á öðrum vörum 40 millj., vegna aukins innflutnings, samkvæmt áætlun fjárlaga, 30 millj. kr. Auk þess koma svo breytingarnar, sem n. gerði á frv. Má áætla, að þær nemi allt að 50 millj. Er því raunveruleg heildarlækkun tolla 545 millj. kr.

Meginstefnan í frv. er sú, að lækka tolla af fullunnum iðnvarningi, innfluttum frá EFTA–löndum, um 30 af hundraði og innfluttu hráefni til framleiðslu á iðnaðarvörum um 50 af hundraði. Varðandi framleiðsluvélar atvinnuveganna, sjávarútvegs, landbúnaðar og iðnaðar, er meginstefna frv. hins vegar sú, að þessar vélar eru færðar niður í 7% toll úr 15, 25 og 35%, sem þær eru í nú. Þó að langmestu leyti úr 25% í 7%. Frá þessu eru þó ýmis tilvik, bæði til að gera fjárhagstjón ríkissjóðs ekki meira en nauðsynlegt er og svo til að gera framleiðendum hér sem léttast að standast þær breytingar, sem innganga í EFTA hefur í för með sér.

Ég geng út frá því, að hv. þdm. hafi kynnt sér rækilega frv., eins og það var lagt fram í Alþ. á þskj. 167, en skal nú skýra í stórum dráttum þær breytingar, sem orðnar eru, á þskj. 268 og 283, þær er verulegu máli skipta.

Sojabaunir eru færðar niður úr 20% tolli í 0%. Þessi vara er flutt inn til landsins í lausu formi og notuð til blöndunar í fóðurkökur. Ætti það því að koma bændum og síðar neytendum vel, að þessi vara verði tollfrjáls.

Ljósmynda– og kvikmyndavörur margs konar eru lækkaðar úr 70% tolli í 35% toll. Nokkur iðnaður á þessu sviði er að myndast í landinu og sjálfsagt þótti að taka tillit til þess og ekki sýnt, að ríkið tapi við það neinum verulegum tolltekjum.

Efnivörur til gull– og silfursmíða lækka úr 40% í 20%. Ljóst er, að þessi iðnaður stendur á gömlum merg hér innanlands og vonir standa til, að hann geti haslað sér völl á stærri markaði, ef vel verður að honum búið frá löggjafans hendi.

Margs konar vefnaður til innlendrar framleiðslu hefur verið færður úr 40% í 20% EFTA–toll, en í 25% frá öðrum löndum. Þá hefur nær allur járn– og stálflokkur tollskrár, eða 73. kaflinn, verið færður úr 5% niður í 2%, en þó nokkuð úr 25 og 35% niður í 7% toll, svo sem margs konar vír.

Skiptiverkfæri fyrir iðnaðarvélar, sem nú bera 35% toll, eru færð niður í 7%, eins og vélarnar sjálfar. Hér er um geysi þýðingarmikið atriði að ræða fyrir íslenzkan iðnað, að bæði vélar og skiptiverkfæri í vélar beri sama toll eða 7%.

Þá koma vélar til framleiðslu á smjörlíki og ávaxtasafa og ýmsar vélar fyrir landbúnað, svo sem garðyrkju og alifuglarækt, sem nú eru í 25% tolli, en færðar eru niður í 7%. Einnig dráttarvélasæti, sem nú hafa 90% toll. Þá eru girðingarstaurar færðir úr 20% í 10% og gildir það jafnt fyrir stál, tré eða staura úr gerviefni.

Snjósleðar, sem eru með 60% tolli, eru færðir niður í 40%. Vörubifreiðar yfir 3 tonn færast úr 40% tolli niður í 30%, en tollur á öðrum bifreiðum verður óbreyttur, en eins og hv. þm. er kunnugt, liggur fyrir að fellt verði niður 60% leyfisgjald af öllum bifreiðum, sem það bera, þ.e. vörubifreiðum undir 3 tonnum, sendiferðabifreiðum og fólksbifreiðum, en auk þess er heimildarákvæði um að endurgreiða toll af bifreiðum til leiguaksturs úr 90% í 70%.

Björgunar– og slysavarnatæki, sem nú eru í 20% tolli, falla niður í 0. Frystiþjöppur eru færðar niður úr 15% tolli í 7%. Og háþrýstislöngur úr 35% tolli niður í 7%. Er þetta mikilsvert fyrir hraðfrystiiðnaðinn, einnig er notkun á háþrýstislöngum mikil í sambandi við margs konar stórvirkar vinnuvélar, dráttarvélar og háþrýstibúnað fiskiskipa. Þá eru margs konar mælitæki færð niður úr 35% tolli í 7%. Hefur þetta mikla þýðingu til vöruvöndunar fyrir íslenzkan iðnað, sem nú þarf að bæta sína framleiðslu sem mest má verða.

Tollar af öllum spónaplötum eru nú samkvæmt gildandi tollskrá 40%. Í brtt. er lagt til að plötur úr slíku efni, 15 mm og þykkari, fari niður í 20% toll. Frv. gerir hins vegar ráð fyrir að slíkar plötur, þynnri en 15 mm, fari niður í 30%. Þetta er mikilsvert atriði, sérstaklega fyrir húsgagnaiðnaðinn, en þykkar spónaplötur eru uppistaðan í þeirri framleiðslu.

Tollur á grammofónplötum til tungumálakennslu er færður úr 50% niður í 0. Einnig segulbönd með fræðsluefni, sem bera nú 75% toll. Barnavagnar eru færðir niður í 50% toll úr 90%.

Ég hef nú lýst í stórum dráttum meginbreytingum á 1. gr. frv., þeim sem nefndar eru á þskj. 268 og 283. Einnig eru mikilvægar breytingar við 3. og 4. gr. frv.

Lagt er til, að niður sé felldur síðari hluti 12. liðar 3. gr., þar sem er heimildarákvæði til lækkunar eða niðurfellingar á tolli efnivöru í iðnaðarframleiðslunni. Í frv. er gert ráð fyrir að tollur efnisins þurfi að vera verulegur þáttur í kostnaðarverði innlendu iðnaðarvörunnar, en í brtt. er heimildin rýmri og orðin „verulegur þáttur“ felld niður.

20. liður 3. gr. er nýr og veitir hann fjmrn. heimild til að fella niður gjöld af bókum á íslenzku, prentuðum erlendis, enda séu tæknilegir annmarkar á að slíkt prentverk verði framkvæmt hérlendis. Frv. gerir hins vegar ráð fyrir byltingu með niðurfærslu tolla á pappír og bókagerðarefni, t.d. er prent– og skrifpappír færður niður úr 30% í 0%. Sama gildir um bókbandspappa. Prentlitir eru hins vegar færðir niður úr 20 í 10%. Ákvæði 14. liðar eru undanþágur aðflutningsgjalda af bifreiðum sendiráðsstarfsmanna og ráðherrabifreiðum í samræmi við reglur um bílamál ríkisins.

Þá er veigamikil breyting á 28. lið 3. gr., þar sem endurgreiðsla er heimiluð á tolli vegna skipaviðgerða innanlands. Er miðað við 100 þús. kr. viðgerðarupphæð í stað 500 þús. kr. í frv. Einnig er að sjálfsögðu óbreytt endurgreiðsla á efni til nýbygginga skipa. Hér er um mikilsverðar breytingar að ræða fyrir eigendur fiskiskipa og að sjálfsögðu einnig íslenzkan málmiðnað.

Í 50. lið 3. gr. hefur heimild til endurgreiðslu efnistolla verið gerð nokkuð einfaldari. Gr. gerir ráð fyrir endurgreiðslu á tollum á hráefni vegna iðnaðarframleiðslu, sem flutt var inn eftir 1. des. s.l. Bætt er einnig við gr. heimildarákvæði vegna tolla af timbri, innfluttu eftir 1. ágúst s.l.

52. liður 3. gr., sem er nýr liður, kveður sérstaklega á um endurgreiðsluheimild á tollum á efni til framleiðslu rafagnatækja og efni til rafhitunar og rafmagnsvatnshitunartækja. Ég vek athygli á, að á þskj. 283, 52. lið á bls. 4, hefur orðið rafagnatæki misritazt, og hefur skrifstofu Alþ. verið gert aðvart um það. Heimildin vegna rafhitunartækja er til komin af því, að slík tæki eru framleidd í landinu, en tollur af þeim er með frv. færður úr 80% niður í 35% skv. sérstakri beiðni Sambands ísl. rafvirkja, en rök fyrir því eru að auka notkun rafmagns til húshitunar, sem að sjálfsögðu er mikilsvert.

Við 4. gr., þar sem frv. veitir undanþágumöguleika á tollum af munum, sendum til aðvinnslu erlendis, er heimildin rýmkuð með brtt., þannig að slík vara þarf ekki að seljast á erlendum markaði, til þess að endurgreiðsla sé heimil. Dæmi eru til þess, að slík endurgreiðsla á sama rétt á sér, þótt varan sé seld á innlendum markaði.

Ég hef nú lýst meginbreytingum, sem brtt. á þskj. 268 og 283 fela í sér, en freistandi væri að fara nokkrum orðum um frv. í heild, svo veigamikið sem það er og á væntanlega eftir að verða lyftistöng fyrir ekki aðeins íslenzkan iðnað, heldur alla þætti íslenzks atvinnulífs. Eins og ég tók fram, þá hafa verið gerðar verulegar breytingar á tollum yfirleitt, þótt megintilgangurinn væri hins vegar EFTA–aðildin og aðlögun íslenzks iðnaðar að EFTA–markaði. Ég er sannfærður um, að þeir, sem stunda iðju og iðnað, mega vel við sinn hlut una, og ég róma þann samstarfsvilja og lipurð sem hæstv. fjmrh. og starfsmenn hans, sem starfað hafa með fjhn. þingdeildanna, hafa sýnt í hvívetna. Ég vil líka fullyrða, að landbúnaður og sjávarútvegur bera heldur ekki skarðan hlut frá borði. Í heild ætti þessi breyting á tollskránni að verða íslenzkum atvinnuvegum og landsmönnum öllum til góðs og stuðla að meira jafnvægi og betri atvinnumöguleikum.

Enda þótt hv. stjórnarandstaða hafi ekki viljað samþykkja meirihlutaálit fjhn. og mæla með þessu lagafrumvarpi og brtt., þá skilst mér, að óánægja þeirra risti ekki djúpt og að þeir séu raunverulega sammála öllum breytingum sem gerðar hafa verið. Hins vegar liggur fyrir till. frá þeim um nokkra tollaniðurfellingu, sams konar till. og hv. 4, þm. Reykv., Þórarinn Þórarinsson, o.fl. fluttu í Nd., en náði þar ekki fram að ganga. Geta má þess einmitt í sambandi við frekari tollaniðurfellingu, að eftir beiðni hv. 4. þm. Norðurl. e., Björns Jónssonar, sem er sjúkur, útvegaði fjhn. Ed. upplýsingar frá fjmrn., hvað kosta mundi að fella alveg niður vélatollinn, frá 7% niður í 0. Það er talið nema 85 millj. kr. En að fella alveg niður tollinn af efni til iðnaðar er talið mundu kosta 150 millj. kr. Hvort tveggja er þetta miðað við vélar og efni, sem frv. gerir ráð fyrir að mundi lækka, en með brtt. hefur verið gengið mun lengra, svo gera má ráð fyrir að slíkt mundi kosta ríkissjóð hátt í 300 millj. til viðbótar þeim 545 millj., sem áætla má tekjumissi nú.

Meiri hl. fjhn. leggur því til, að frv. verði samþ. til 3. umr. án frekari breyt. heldur en gert er ráð fyrir á þessum 2 þskj., 268 og 283.