13.11.1969
Neðri deild: 14. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (2273)

70. mál, heimild til handa Kvennaskólanum að brautskrá stúdenta

Frsm. (Benedikt Gröndal) :

Herra forseti. Á s. l. vori flutti menntmn. þessarar hv. deildar samkvæmt ósk menntmrn. frv. um heimild til handa Kvennaskólanum í Reykjavík til að brautskrá stúdenta. Málið hlaut góðar viðtökur í d., en sökum þess, hve áliðið var orðið, náði það ekki endanlegri afgreiðslu.

Í byrjun þessa þings skrifaði menntmrn. n. og óskaði, að hún flytti frv. á nýjan leik. Að þessu sinni varð n. ekki sammála um að endurflytja frv., og er það því flutt af meiri hl. menntmn.

Mál þetta var allmikið rætt á s. l. vori, og sé ég því ekki ástæðu til að rifja upp efnisatriði þess eða fjalla um þau, en vil aðeins fylgja frv. úr hlaði með þessum orðum um formsatriði þess og leggja til, herra forseti, að því verði vísað til 2. umr.