20.01.1970
Neðri deild: 39. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í C-deild Alþingistíðinda. (2278)

70. mál, heimild til handa Kvennaskólanum að brautskrá stúdenta

Björn Pálsson:

Herra forseti. Þetta mál var rætt dálítið hér í fyrra. Ég man ekki, hvort ég talaði þá, enda skiptir það ekki máli. En þar fyrir vildi ég segja nokkur orð um það.

Ég álít, að skólamál okkar séu ekki nógu vel skipulögð, en það er mjög áríðandi, að það verði gert sem fyrst. Það gefur auga leið, að ef skólarnir eru hæfilega stórir — ég skal ekki fullyrða, hvað stórir er æskilegt, að þeir séu — að þá eru þeir ódýrari í rekstri fyrir þjóðfélagsheildina, og þá er auðveldara að fá hæfari kennara þar, þannig að frá hagfræðilegu sjónarmiði er það á allan hátt betra, að þetta sé skipulagt. Það er ekki endilega aðalatriðið, hvar þeir séu staðsettir, því að samgöngur eru orðnar það góðar og ekki það mikill kostnaður að færa sig til. Aðalatriðið er, að skólarnir séu góðir og stærð þeirra sé hæfileg, þá er hægt að hafa meira kennaraval. Aðalatriðið er, að þeir séu reknir á sem hagkvæmastan hátt fyrir þjóðfélagið. Ég er sannfærður um, að ef þetta væri gert, þá yrði hægt að komast af með minna fé til menntunar í landinu og ná betri árangri.

Það hefur verið að veltast hér í þinginu í tvö ár, held ég, frv. um menntaskóla. Ég hef nú ekki haft neina sérstaka trú á því, að menntmrh. okkar hæstv. kæmi fram með viturlegri frv. en aðrir menn, síður en svo, en þetta frv. líkaði mér vel. Það gladdi mig að lesa þetta frv., því a. m. k. eitthvað af þeim, sem stóðu að því, skilur, að þörf er á að breyta menntaskólamálum okkar, og hafa víðsýni til þess að skýra frá skoðun sinni í því efni. En það er einkennilegt, að þegar þarna kemur gott og viturlegt frv., þá dregst úr hömlu að samþykkja það. En ef einhver vitlaus frv. koma í þingið, þá eru þau hespuð í gegn á tiltölulega fáum dögum.

Viðvíkjandi menntaskólunum þá er það þannig, að frá því menn hafa lokið barnaskólaprófi og þangað til þeir taka stúdentspróf, þurfa þeir að eyða 7 árum. Þeir vinna e. t. v. fyrir einhverju af því, sem námið kostar, að sumrinu. En það eyðast 7 góð ár fyrir þeim til þess að ná þessu blessaða stúdentsprófi, og þegar þeir eru búnir að ljúka því, hvar standa þeir? Í raun og veru kunna þeir ekkert nema hrafl í nokkrum tungumálum, þeir hafa lesið eitthvað í mannkynssögu og landafræði og náttúrufræði, en þeir eru ekki fullfærir í nokkru tungumáli. Það má deila um það, hvort við ættum að breyta skólakerfi okkar þannig, að árin verði færri og námstíminn lengri á ári og það er mjög athugandi, þegar erfitt verður fyrir nemendur að fá vinnu að sumrinu, hvort ekki ætti að gera það. Ég hygg að það sé í ýmsum öðrum löndum, en undir öllum kringumstæðum ættum við að gera námið hagkvæmara og hafa frjálst val um námsgreinar. Hvaða vit er í því að vera að grauta í fimm eða sex tungumálum og læra öll illa? Væri ekki nær að taka eitthvert stórmálið, t. d. eitt Norðurlandamálið og eitthvert stórmál og hafa þar frjálst val, og jafnvel að skylda nemendur til þess að vera eitthvað í þessum löndum til þess að læra að tala það til þess að þeir væru dálítið færir í því máli? Þeir gætu þá, ef þeir þyrftu, farið síðar til þess lands til þess að ljúka háskólanámi, ef þeir óskuðu eftir eða þyrftu að læra eitthvað, sem ekki væri kennt hér við Háskólann.

Það er eðlilegt að þetta sé á frumstigi hjá okkur, og skólamálin séu í deiglunni. Þeir, sem hafa stjórnað skólamálum okkar, eru flestir lærðir í þessum gömlu skólum, sem voru dálítið miðaldalegir. — Ég hef gaman af sögu, hef lesið talsvert í henni — það var þannig með prestana okkar hér áður fyrr. En guðfræði var eiginlega það eina, sem kennt var hér. Menn fóru á Skálholtsskóla, Hólaskóla og síðan Bessastaðaskóla, og aðalnámið var latína. Þetta voru stórgreindir menn. Og þeir gátu talað latínu. Ég hef lesið ferðabækur, og þessir ferðamenn hittu presta, sem gátu talað latínu, en þeir skildu ekkert í ensku. Jón Vídalín gat ort á latínu, en tæknikunnátta Íslendinga var engin. Aðalmenntunin var latínulærdómur, sem var algerlega óhagnýt. Það hefur víst fram á þennan dag verið lögð dálítil áherzla á það í máladeild menntaskóla að læra latínu. Það er ekkert nema gott um það að segja, latína er merkilegt mál. En þetta er bara ekki hagnýtt, og við megum ekki eyða allt of miklum tíma í það nám.

Ég held, að við þurfum að gera menntaskólana hagnýtari, en stytta námið. Þegar þessir blessaðir menn koma eftir 10–20 ára nám úr skólum, eins og læknarnir t. d., þá eru þetta slitnir menn. Sannleikurinn er sá, að við höfum alveg nóg af stúdentum í okkar landi. Við höfum of mikið af hagfræðingum og of mikið af lögfræðingum, og það er grátlegt að sjá þessa menn, sem eru greindir og hafa mikla starfsorku, búnir að eyða milli 10–20 árum í skólum og eru svo eiginlega ekki til neins nýtir, nema þá að verða óbreyttir rukkarar eða semja einhverjar vitlausar ályktanir í hagfræði, sem koma þjóðfélaginu á hausinn.

Einn af göllum núverandi kjördæmaskipunar er sá, að ef einhver þingmaður kemur með eitthvert frv. um eitthvað, sem hinir halda, að hann geti unnið einhver atkv. á, þá geysast hinir fram án tillits til þess hvort vit er í málinu eða ekki, og fara jafnvel í kröfum fram fyrir þann, sem kom með frv. upphaflega, til þess að vera vissir um, að hann hafi ekki nein atkv. af sér með því móti. Þetta er hættulegur hlutur.

Líklegt væri, og ég satt að segja álít það sé mjög sennilegt, að hæstv. menntmrh. okkar hafi töluvert vit á skólamálum. Sjálfur var hann afburða námsmaður í skóla, og við vitum, að hann á ákaflega létt með að tala, en ég hef þar fyrir mjög litla trú á gáfum hans viðvíkjandi því, sem snertir atvinnulíf og fjármál. Og það er ekki neinn ljóður á ráði manns, þó að hann hafi ekki hæfileika í allar áttir. Það hefur enginn. Þannig væri hægt að ætlast til, að hann hafi mikið vit á skólamálum, og ég verð að segja það, að s. l. sumar virtist mér hann verða fyrir ósanngjörnum árásum út af skólamálum. Raunar efast ég ekki um, að það voru prófessorarnir í Háskólanum, sem fóru fram á, að takmörkuð væri tala læknanema, og eins var með Kennaraskólann. Aðsóknin var þar orðin meiri en þeir gátu raunverulega annað. Í sjálfu sér var ekkert við það að athuga. Það má deila um, hvernig á að haga þeim takmörkunum. Hitt gefur auga leið, að það er ekki endalaust hægt fyrir kennarana, hvort sem það eru prófessorar eða kennarar við aðra skóla, að taka við óendanlega mörgum nemendum. Það er ekki verjanlegt, ef kennsluskilyrði eru ekki fyrir hendi. Vitanlega höfðu prófessorarnir alveg rétt fyrir sér í því, að það voru ekki skilyrði til þess að taka óendanlega marga nemendur í skólann, og það er ekki verjandi að taka það marga menn, að ekki sé hægt að kenna þeim sómasamlega. Hitt getur svo komið til mála, að það þurfi að breyta húsaskipan og kennaraliði, þannig að það sé hægt að taka fleiri.

En viðvíkjandi læknunum, þá höfum við kennt nógu mörgum læknum, en þeir vilja bara ekki vinna, þar sem þörfin er fyrir þá. Ég skal ekki dæma um í hverju þetta liggur. E. t. v. liggur það að einhverju leyti í því, og ég hef heyrt raddir um það, að það sé að einhverju leyti Háskólanum að kenna, að þar hafi verið miðað of mikið við sérfræðinám, en ekki við hina almennu lækna. En staðreyndin er, að þrátt fyrir hve mörgum læknum er kennt, þá hlaupa þeir til Bandaríkjanna og Svíþjóðar, eða húka hér í Reykjavík, en út á landsbyggðina er ekki nema takmarkaður hluti þeirra, sem treystir sér að fara, þrátt fyrir að þeir hafi geysileg laun. Þarna er hugsunarháttur, sem þarf að uppræta. En hvers vegna ættum við að vera að kosta miklu fleiri lækna heldur en við höfum þörf fyrir? Hvað eigum við að vera að kosta lækna fyrir Svía? Þeir geta kennt sínum læknum sjálfir.

Það er eitt atriði enn viðvíkjandi Háskólanum. Það er verið að deila um, að það sé ekki nógu fjölbreytt námið, en er nokkur ástæða til þess að setja upp sérstaka deild, ef við þurfum ekki nema 5–6 menn í einhverju fagi? Er ekki ódýrara að kosta þá að öllu leyti í öðrum löndum; en setja það vitanlega að skilyrði, að þeir komi heim aftur og vinni hér, heldur en að setja upp sérstaka námsdeild? Við erum smáþjóð með 200 þús. manna íbúatölu, og hvernig í ósköpunum eigum við að keppa við háskóla, sem hafa milljónir á bak við sig? Og það er hreint ekki nein hagfræði í því. Annað er það, að við þurfum ekkert að efast um, að þessir menn geta fengið meiri viðsýni og á vissan hátt meiri menntun að læra í skólum hjá stórþjóðum. Við skulum ekkert vera að gera okkur of stóra.

Það hefur legið allmikil krítík t. d. á Iðnskólanum hér. Ég efast ekki um, að hún hefur við rök að styðjast. Ég var á fundi einu sinni, þar sem iðnskólanemar voru, og þeir voru að segja sögur af því, hvernig kennararnir mættu í tímunum og hvernig kennslu væri bagað og ýmislegt fleira. Ég er ekki dómbær á þetta að öllu leyti, hvað rétt er í þessu, en ég efast ekki um það, að við erum ekki það tæknilega menntaðir, að við höfum nægilega góða aðstöðu til að kenna iðnnemum, hvorki tæknilega og jafnvel ekki að öðru leyti heldur. Eftir því, sem við þróumst í iðnaðarmálunum, þá ættum við að vera hæfari til þess, og vitanlega þurfum við að láta þessa menn, sem eiga að kenna iðnnemunum, menntast í löndum, sem eru iðnþróuð, til þess að þeir geti kennt þeim, sem heima fyrir eru. Og við getum aldrei orðið iðnþróuð þjóð nema hafa opin augun og reyna að læra allt, sem við getum, af öðrum. Við getum séð, hvernig Japanir fóru að, þeir hafa alltaf verið að læra. Þeirra iðnaður og þeirra söluaðferðir byggðust á því, að þeir reyndu að læra af þeim, sem voru lengra komnir en þeir sjálfir. Við verðum að hafa augun opin fyrir því, að ennþá erum við ekki tæknilega þróuð þjóð í iðnaðarmálum. Við stöndum tiltölulega framar í landbúnaði og fiskveiðum.

Þetta er að vissu leyti útúrdúr. Ég áleit af menntaskólafrv. og einnig af framkomu hæstv. menntmrh., að í hjarta sínu væri hann ekki fylgjandi menntaskóla á Ísafirði. Ég hef talað hér áður um Menntaskólann þar. Ég hef minnzt áður á það mál, og ég væri ekkert hikandi að vera með því máli, ef ég áliti það Ísfirðingum til góðs. En ég álít þennan skóla hættulegan fyrir Ísafjörð. Sannleikurinn er sá, að raunverulega þyrftum við okkar mestu afburðamenn fyrir skipstjóra á fiskiskipin okkar, svo þurfum við þá í iðnað og landbúnað, en eigum ekki að gera þá að lögfræðingum eða hagfræðingum eða viðskiptafræðingum. Sitja hér í nokkur ár í Háskólanum að læra viðskiptafræði og vera þó allra manna vitlausastir í öllum viðskiptum, þegar þeir útskrifast. Geta ekki einu sinni haft hestakaup af viti, þegar þeir koma þaðan. Maður, sem hefur þá eiginleika að hafa bisnesvit, þarf ekki að vera í neinum skóla. Ekki fór Vilhjálmur Þór í viðskiptaskóla. Hann var gerður hér hálf útlægur af landinu, af því að hann hafði vit á fjármálum, en það var ekki nema eðlilegt.

Jæja, en þannig er nú þetta. Það er ekki hægt að gera stirðan og latan klár að reiðhesti, og það er ekki hægt að gera mann, sem er óhneigður fyrir viðskiptamál, að neinu séníi í þeim málum. Þetta er meðfæddur eiginleiki, og menn þurfa ekki að sitja á skólum í mörg ár til að læra þetta, ef þeim er það eiginlegt. Það er ekki hægt að gera mann, sem er óhneigður fyrir að vera læknir, að góðum lækni. Þetta þarf að vera í eðli mannsins. Það er ekki hægt að gera bjána að góðum bónda, þó að hann sé í 4–5 ár á búnaðarskóla. Hann er jafn vitlaus eftir sem áður. Það er hlutur sem hann getur ekki lært.

Menntaskóli á Ísafirði verður til þess, að allir, sem eitthvað geta lært, reyna að verða stúdentar, svo fara þeir í háskóla, annað hvort hér í Reykjavík eða til fjarlægra landa, og koma aldrei aftur. Þannig að Ísfirðingar fara að hafa meðalmenn og þar fyrir neðan fyrir skipstjóra, í staðinn fyrir að undanfarið hafa þeir haft afburðamenn yfirleitt, og á því hefur Ísafjörður lifað. Og á því hafa Vestfirðingar lifað. Þetta hefur verið afburðafólk að dugnaði og þreki, og þegar farið er að tína úrvalið úr og hitt er skilið eftir, þá er það stórhættulegt fyrir byggðarlagið.

Ég hafði gaman af að lesa Skagamannasögu. Þar er talað um Björn Ólsen. Hann ólst upp á Vindhæli hjá Ólafi föður sínum, og hann, faðir hans, hafði mikla trú á honum, þó að hann væri lítill og greppleitur, og bað hann einu sinni að vera formann. Þá var Björn um fermingu eða innan við fermingu, en faðir hans fór ekki í þann róður. Svo gerði vont veður, en drengurinn kláraði sig og kom í land, en karl var lagztur í rúmið og var búinn að breiða yfir höfuð. Hann hélt, að þeir mundu drukkna, en þá rölti hann niður að sjó og sagði drengnum að héðan af skyldi hann vera formaður á bátnum. En þessi maður var mesti afburðaformaður við Húnaflóa um margra ára bil, og faðir hans var það einnig, þannig að þegar hinir skipstjórarnir sáu, að hann lagði af stað heim, þá fóru allir á eftir, því hann var svo veðurglöggur.

Það eru einmitt svona menn, sem við þurfum. Við þurfum ekki að halda, að þjóðinni nýtist bezt miklir hæfileikamenn hér til að vera rukkarar á lögfræðiskrifstofu eða viðskiptafræðingar uppi í Seðlabanka. Við þurfum að fá gáfumennina okkar og þrekmennina sem stjórnendur. Við þurfum að fá þá í atvinnulífið og sannarlega veitir ekki af þeim til að endurskipuleggja iðnaðinn. Það er ekki nóg að gera þá að stúdentum og láta þá dunda í 5—10 ár í einhverjum háskóla. Á því gerum við þá að mannleysum og aumingjum. Þannig að þegar þið eruð að basla við að koma þessum skóla upp á Ísafirði þá eruð þið að gera Ísafirði meira illt en þið getið ímyndað ykkur.

Við þurfum vitanlega að hafa stúdenta, en við eigum að láta miðlungsmenn í það. Við eigum að gera þá að sýslumönnum og lögfræðingum. Það yrði þá ekki tekið svo ákaflega hart á því, þó að þeir dæmi vitlausa dóma, sýslumennirnir okkar. En við þurfum afburðamenn til að vinna, til að bera aðalbyrðar þjóðfélagsins. En þetta. þarf að skipuleggja og við þurfum að rífa okkur upp úr þessum kotungssjónarmiðum og þessari hreppapólitík. Við þurfum að skipuleggja skólakerfið betur og framkvæma það á sem allra hagkvæmastan hátt fyrir þjóðarheildina og fyrir fólkið sjálft um leið. Í sannleika sagt eru þessi útgjöld orðin of þung. Alger martröð miðað við þau litlu laun, sem alþýða manna hefur hér í landi. Fólkið er blátt áfram pínt, að ég tala nú ekki um þessa innheimtu hér í höfuðborginni, því að það er sama, hve snauður maður er. Þó að hann eigi ekki nema stólgarm, þá er tekið lögtak. Það þekkjum við ekki úti á landinu.

En viðvíkjandi þessum blessuðum Kvennaskóla, þá er það um hann að segja, að ef við gerðum einhverri persónu greiða með því að samþykkja frumvarpið, þá væri álitamál hvort við ættum ekki að samþykkja það. En þið skuluð ekki ímynda ykkur, að kvenfólkið hafi áhuga fyrir þessu. Nei, það er þveröfugt. Við getum ekki gert stelpunum meiri ógreiða heldur en fara að hafa einhverja kynferðisskóla, þar sem þær fá ekki að vera með strákunum, því sannleikurinn er sá, að kvenfólki hálfleiðist að vera þarna einu. Og þeirra lífsgleði snýst um það að vera einhvers staðar í námunda við karlmennina. Keppa við okkur, og sannleikurinn er sá að kvenfólk hefur ávinning af því á vissum sviðum. Nei, við gerum því engan greiða. Það er vafalaust, að skólaráði Kvennaskólans er þetta eitthvert metnaðarmál með þennan blessaða Kvennaskóla. En hver eiga þá takmörkin að vera? Hverju má neita? Geta ekki fleiri kvennaskólar komið og beðið um að fá að útskrifa stúdenta? Geta ekki bændaskólarnir komið og beðið um það? Kvennaskólar eiga að kenna matreiðslu og saumaskap alveg eins og bændaskólar eiga að kenna bændunum að hirða kindur og bera á túnin sín. Hvar eiga takmörkin að vera? Geta svo ekki gagnfræðaskólar út um land komið og beðið um að fá að útskrifa stúdenta? Hvar eiga takmörkin að vera? Er ekki viturlegra að reyna að skipuleggja þetta af einhverju viti í byrjun og vera svo ekki að svara svona naggi. Ég held að það sé skynsamlegra. En það er ekki neinn greiði við stúlkurnar að samþykkja þetta frumvarp. Þær fá aðeins lakari menntun og leiðinlegri skólaveru með því að hafa þarna einhliða menntaskóla fyrir konur.

Þeir víðsýnni og yngri eru að taka við og allt er breytingum háð. Þessi blessaða latínumenntun, sem prestarnir okkar höfðu hér áður fyrr ég ætla ekki að fara að gera lítið úr henni, en hagnýt var hún ekki. Íslendingum hefði verið nær að reyna að haga menntun sinni á annan hátt og kynna sér verkmenninguna betur, en vera ekki eins og steinaldarmenn, þegar kom fram á síðari hluta 19. aldar, eins og við vorum. En það þýðir ekki að tala um það, Þrátt fyrir það, gerðu þó þessir sveitaprestar okkar að ýmsu leyti gagn. Þeir eiga heiðurinn af því, að þeir hjálpuðu unglingunum og einmitt þeim mönnum, sem voru frumkvöðlar að því, að við fórum að rétta úr kútnum á síðari hluta 19. aldar og jafnvel um miðja 19. öld. Þeir hjálpuðu þeim af stað. Þeir kenndu þeim undir skóla og þeir hvöttu þá til náms. Þetta voru afburða námsmenn, og þetta getum við alltaf virt við okkar gömlu presta. Við eigum þeim að þakka að ýmsir efnilegir menn fóru í skóla fyrir aldamótin. Það voru prestarnir, sem hvöttu þá til dáða og hjálpuðu þeim í byrjun. Prestarnir áttu mikinn þátt í að kenna unglingum lestur og skrift og viðhalda þó þessari litlu menntun, sem var í okkar dreifðu byggðum.

En þessir tímar eru liðnir, og nú skulum við taka raunhæft á hlutunum, vera vaxnir upp úr allri hreppapólitík og metingi, líta aðeins á aðalatriðin. Þá þurfum við að skipuleggja okkar menntunarmál og gera þau hagnýtari og frjálsari heldur en þau hafa verið, og við eigum að styðja þær hugmyndir, sem koma fram í menntaskólafrv., sem liggur hér fyrir í þinginu, að hafa meira og frjálsara val um námsgreinar, gera nemendurna ekki of þreytta, áður en þeir fara út í lífið, með gagnslausum lærdómi, heldur að gera menntunina hagnýtari en hún hefur verið. Ég ætla að vera á móti þessu frv. vegna þess, að það er fáum þægð í því og verður engum til gagns, þó að það yrði samþykkt.