17.04.1970
Efri deild: 73. fundur, 90. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (2347)
38. mál, togarakaup ríkisins
Frsm. meiri hl. (Jón Árm. Héðinsson) :
Herra forseti. Það virðist vera vonlaust að rökræða við hv. 5. þm. Reykn. Hann virðist draga ýsur í staðinn fyrir að standa í aðgerð, og við slíka menn er ekki hægt að tala. Það kom aldrei fram hjá mér, og ég mun verja hvar sem vera skal, að það væri rétt að skipta togarakaupunum, sem fyrir dyrum stæðu, í fleiri gerðir heldur en þessir sex verða af. Ég tel það hiklaust rétt og mælti með því, en hæstv. ríkisstj. lagði til, að það yrðu boðin út sex skip í einu. En ég skammast mín ekkert fyrir að segja það, að það væri rétt að bjóða út þrjú af þeim stærri og þrjú af þeim minni, og láta reynsluna síðan meta eða vera okkur til hjálpar, með hvaða hætti við skulum endurnýja togaraflota okkar áfram, eins og hæstv.þm. virðist vera að tala um. En að ætla að kaupa 15 stykki á einu bretti er út í hött, og það hlustar enginn á svoleiðis gaspur, enginn ábyrgur maður, ekki nokkur. Og það mun enginn maður gera, sem hefur vit á útgerð. En það er hægt að gaspra svona fyrir þá, sem ætla sér að lifa á því að safna tilvitnunum í aðra.